Læknablaðið - 15.01.2013, Blaðsíða 7
RITSTJÓRNARGREIN
Vörn og sókn fyrir heilbrigðisvísindi
á íslandi
Inga
Þórsdóttir
prófessor og forseti
heilbrigðisvísindasviðs
Háskóla íslands
ingathor@hi.is
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla íslands
byggist á 6 deildum sem menntað hafa meira
en 95% af faglærðu heilbrigðisstarfsfólki í
landinu. Menntun og rannsóknir heilbrigð-
isgreina fela óhjákvæmilega í sér þátttöku í
heilbrigðisþjónustu og starfsnám er mikil-
vægur hluti námsins. Deildir sviðsins eru
læknadeild, þar sem kennd er læknisfræði,
sjúkraþjálfun, geislafræði og lífeindafræði,
hjúkrunarfræðideild, lyfjafræðideild, mat-
væla- og næringarfræðideild, sálfræðideild
og tannlæknadeild. Ekki er hægt að kenna
læknisfræði eða aðrar greinar heilbrigðis-
vísinda án þess að leiðbeina nemanda sem
æfir sig og kenna í raunverulegu klínísku
umhverfi. Innan sviðsins starfar þess vegna
fólk sem þjónustar almenning þegar mest á
reynir í lífinu, þegar barn fæðist, þegar slys
verða og þegar veikindi steðja að. Miðað
við mikilvægi þessarar menntunar kann
mörgum að finnast sérkennilegt að fjórar
af 6 deildum sviðsins hafi verið reknar
með tapi undanfarin ár þar sem fjárfram-
lög til þeirra eru of lág. Léleg fjárhagsleg
staða er einnig ótrúleg þegar horft er til
þess að heilbrigðisvísindasvið er það svið
Háskólans sem tengist flestum sprotafyrir-
tækjum, en nýsköpun á öllum sviðum sem
varða heilsu er ein öflugasta vaxtargrein
þekkingariðnaðarins. Sprotafyrirtæki sem
hafa þróast og orðið til innan heilbrigðis-
vísindasviðs eru meðal annars á sviði
læknisfræði, lyfjafræði og sjúkraþjálfunar.
Þýðing matvæla- og lyfjaiðnaðar er mikil í
útflutningi okkar og þjóðartekjum. Lyfja-
iðnaður er til dæmis stærri hluti af hagkerfi
íslendinga en tíðkast í flestum löndum og
skilar lyfjaútflutningur um það bil 3-4%
af útflutningstekjum okkar. Starfið innan
heilbrigðisvísindasviðs er atvinnulíf sem
felst í kennslu, rannsóknum og nýsköpun
heilbrigðisvísinda og er þess vegna órjúf-
aplegur hluti af íslensku atvinnulífi.
Fjármögnun allra deilda Háskóla ís-
lands er byggð á mati á árangri í kennslu
og rannsóknum. Kennsluárangur miðast
við fjölda stúdenta sem þreyta próf og ár-
angur í rannsóknum er metinn eftir fjölda
birtra greina og tilvitnana í þær, eftir þeim
styrkjum sem fást úr samkeppnissjóðum,
og eftir því hversu margir meistara- og
doktorsnemar ljúka námi. Sé horft til þessa
fjármögnunarlíkans er vandi heilbrigðis-
vísindasviðs aðallega tvenns konar. í fyrsta
lagi getum við ekki fjölgað nemendum sem
þreyta próf á sama hátt og margar aðrar
greinar sem ekki fela í sér klínískt nám eða
mikið verklegt nám. Kennsluárangur okk-
ar er því nokkuð stöðugur en heildarfjöldi
nema í Háskóla íslands vex stöðugt. Fjöldi
nemenda við Háskóla íslands er umfram
það sem greitt er fyrir af stjórnvöldum, sem
leiðir til þess að greiðsla vegna kennsluár-
angurs er of lág. Með því að hækka reikni-
flokka fyrir heilbrigðisvísindasvið mætti
leiðrétta þetta og þá væri unnt að mæta
hækkuðum kostnaði vegna viðhalds og
uppbyggingar innviða fyrir kennslu og
rannsóknir. 1 öðru lagi er ósamræmi milli
þess hve öflugt rannsókna- og vísindastarf
er unnið innan heilbrigðisvísindasviðs,
og þess að styrkir til rannsóknanna sem
berast inn í skólann eru tiltölulega lágir.
Þetta skapar þyngra rannsóknarumhverfi,
og erfiðleika við að halda við aðstöðu og
tækjum og við að sinna langtímarann-
sóknum. Helsta ástæða þessa er verulegur
skortur á hérlendu styrkjafé fyrir heil-
brigðisvísindi. Rúmlega helmingur rann-
sóknasjóðs RANNÍS er ætlaður tækni-,
verk- og náttúrufræðirannsóknum svo og
allmargir, og þar á meðal langstærstu, sér-
sjóðir hér á landi. Staða íslenskra heilbrigð-
isvísinda virðist mun verri. Fyrirkomulag
samkeppnissjóða í landinu er nú þannig
að opinbert fjármagn samkeppnissjóða til
rannsókna á sviði heilbrigðisvísinda er sem
svarar um fjórðungi eða fimmtungi þess
sem veitt er til rannsókna á ofannefndum
sviðum. Nauðsynlegt er að til verði sjóður
fyrir rannsóknir á sviði heilbrigðisvísinda.
Mikilvægi rannsókna er ótvírætt skilyrði
gagnreyndrar þekkingar á sviði velferðar-
og heilbrigðismála.
Það er einnig augljóst að heilbrigðis-
vísindi við Háskóla Islands þurfa sam-
eiginlegt húsnæði. Starfsemi sviðsins er nú
mjög dreifð, sem er talið kosta landsmenn
háar upphæðir vegna hærri rekstrarkostn-
aðar og ekki síður vegna allra þeirra tæki-
færa sem ætla má að glatist vegna dreifing-
arinnar. Það eru tækifæri til þverfaglegrar
kennslu, sameiginlegra alþjóðlegra verk-
efna og rannsókna, nýsköpunar og nýrra
leiða við forvarnir, meðferð og umönnun.
Það er því hagur allra landsmanna að bætt
verði úr þessu hið fyrsta eins og áformað
er með nýjum Landspítala. Heilbrigðisvís-
indasvið háskóla um allan heim eru tengd
sjúkrahúsum og það er báðum aðilum
nauðsynlegt. Þessi landfræðilega nálægð
er hagur allra sem þiggja heilbrigðisþjón-
ustu. Hún eykur líkur á bestu mögulegu
þjónustu spítalans, þjónar nemendum, og
þar með framtíðarheilbrigðisþjónustu, og
er að auki þjóðfélaginu hagkvæm.
Til að leysa fjárhagsvanda heilbrigðis-
vísindasviðs þarf að tvinna saman
margar leiðir. Allt starf sviðsins byggist
á góðu samstarfi við heilbrigðisvísinda-
stéttir í landinu. Þverfaglegt samstarf
innan sem utan háskólans og samstarf við
Landspítala, auk Heilsugæslunnar, Hjarta-
verndar, Embættis landlæknis, DeCode,
Krabbameinsfélagsins, Matís og fleiri aðila,
er meðal annars lykillinn.
Gleðilegt ár
Defence and progress for
health sciences in lceland
Inga Þórsdóttir,
Dean of the School of
Health Sciences,
University of lceland
LÆKNAblaðið 2013/99 7