Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2013, Síða 47

Læknablaðið - 15.01.2013, Síða 47
AUGLÝSING ífæ Deildarlæknir á geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri Laus er til umsóknar staða deildarlæknis á geðdeild við Sjúkrahúsið á Akureyri. Staðan er veitt til 6 mánaða frá 1. febrúar 2013, með möguleika á framlengingu. Ráðning til skemmri tíma kemur tii greina. Stöðunni fylgir vaktskylda á geðdeild. Um er að ræða námsstöðu og fær deildarlæknirinn í starfi sínu leiðsögn og kennslu hjá geðlæknum. Ennfremur ber deildarlækninum að taka þátt í mánaðarlegum fræðsludegi fyrir deildarlækna á geðsviði Landspítalans. Kostur veróur á að sækja aðra fræðslufundi og námskeið á starfstímanum. Sjúkrahúsið á Akureyri veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu, þar sem áhersla er lögð á bráðaþjónustu og helstu sérgreinameðferðir. Það er annað tveggja sérgreinasjúkrahúsa landsins, er kennslusjúkrahús og þekkingar- stofnun sem leggur metnað sinn í kennslu og rannsóknir í heilbrigðisvísindum. Það leggur áherslu á samvinnu við heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni. Geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri er eina almenna geðdeildin á landsbyggðinni og þjónar aðallega íbúðum Norður- og Austurlands 18 ára og eldri. Þar er veitt margvísleg meðferð við öllum bráðum og langvinnum geðröskunum, í góðri samvinnu við heilsugæslu, sjúkrahúsdeildir, félagsþjónustu sveitarfélaga og aðra hjálparaðila á svæðinu. Næsti yfirmaöur er Sigmundur Sigfússon forstöðulæknir geðdeildar. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Læknafélags íslands og fjármálaráðherra. Nánari upplýsingar um starfið og önnur starfskjör veita Guðrún Geirsdóttir yfirlæknir legudeildar geðdeildar í síma 463 0100 og í tölvupósti gg0812@fsa.is, Árni Jóhannesson yfirlæknir göngudeildar í síma 463 0100 og í tölvupósti amijo@ fsa.is og Sigmundur Sigfússon forstöðulæknir í síma 463 0100 og í tölvupósti sigmundur@fsa.is Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2013 Umsóknum með upplýsingum um menntun og fyrri störf skal skilað, á þar til gerðum eyðublöðum sem fást á skrifstofu Embætti Landlæknis, og sendist til starfsmannaþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri, Eyrarlandsvegi, 600 Akureyri eða á netfang starf@fsa.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru ÖRYGGI - SAMVINNA - FRAMSÆKNI. Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins. Sjúkrahúsiö á Akureyri er reyklaus vinnustaður. LÆKNAblaöið 2013/99 47

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.