Læknablaðið - 15.01.2013, Qupperneq 47
AUGLÝSING
ífæ
Deildarlæknir á geðdeild
Sjúkrahússins á Akureyri
Laus er til umsóknar staða deildarlæknis á geðdeild við Sjúkrahúsið á Akureyri. Staðan er veitt til 6 mánaða frá 1.
febrúar 2013, með möguleika á framlengingu. Ráðning til skemmri tíma kemur tii greina.
Stöðunni fylgir vaktskylda á geðdeild. Um er að ræða námsstöðu og fær deildarlæknirinn í starfi sínu leiðsögn og
kennslu hjá geðlæknum. Ennfremur ber deildarlækninum að taka þátt í mánaðarlegum fræðsludegi fyrir deildarlækna
á geðsviði Landspítalans. Kostur veróur á að sækja aðra fræðslufundi og námskeið á starfstímanum.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu, þar sem áhersla er lögð á bráðaþjónustu og
helstu sérgreinameðferðir. Það er annað tveggja sérgreinasjúkrahúsa landsins, er kennslusjúkrahús og þekkingar-
stofnun sem leggur metnað sinn í kennslu og rannsóknir í heilbrigðisvísindum. Það leggur áherslu á samvinnu við
heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni. Geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri er eina almenna geðdeildin á landsbyggðinni
og þjónar aðallega íbúðum Norður- og Austurlands 18 ára og eldri. Þar er veitt margvísleg meðferð við öllum bráðum
og langvinnum geðröskunum, í góðri samvinnu við heilsugæslu, sjúkrahúsdeildir, félagsþjónustu sveitarfélaga og aðra
hjálparaðila á svæðinu.
Næsti yfirmaöur er Sigmundur Sigfússon forstöðulæknir geðdeildar.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Læknafélags íslands og fjármálaráðherra.
Nánari upplýsingar um starfið og önnur starfskjör veita Guðrún Geirsdóttir yfirlæknir legudeildar geðdeildar í síma 463
0100 og í tölvupósti gg0812@fsa.is, Árni Jóhannesson yfirlæknir göngudeildar í síma 463 0100 og í tölvupósti amijo@
fsa.is og Sigmundur Sigfússon forstöðulæknir í síma 463 0100 og í tölvupósti sigmundur@fsa.is
Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2013
Umsóknum með upplýsingum um menntun og fyrri störf skal skilað, á þar til gerðum eyðublöðum sem fást á skrifstofu
Embætti Landlæknis, og sendist til starfsmannaþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri, Eyrarlandsvegi, 600 Akureyri eða á
netfang starf@fsa.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru
ÖRYGGI - SAMVINNA - FRAMSÆKNI. Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins. Sjúkrahúsiö
á Akureyri er reyklaus vinnustaður.
LÆKNAblaöið 2013/99 47