Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.2013, Side 39

Læknablaðið - 15.10.2013, Side 39
UMFJÖLLUN O G GREINAR Enginn ætlar sér að gera mistök Málþingið um öryggi sjúklinga var fjölsótt í Kalcialónssal Hörpu. Leifur Bárðarson staðgengill landlæknis og Sir Liam Donaldson fyrrum landlxknir Breta. Hversu örugg erum við? var yfirskrift mál- þings um öryggi f heilbrigðisþjónustu sem Embætti landlæknis efndi til þann 3. sept- ember í samvinnu við velferðarráðuneytið og með stuðningi Landspítala. Öryggi sjúklinga í flóknu heilbrigðis- kerfi nútímans verður sífellt áleitnari spurning, ekki síst á tímum samdráttar og niðurskurðar, en fram kom í erindi Sigurðar Guðmundssonar sérfræðings á lyflækningasviði Landspítalans og fyrrverandi landlæknis að niðurstöður erlendra rannsókna benda til að allt að 10% sjúklinga á sjúkrahúsum verði fyrir barðinu á mistökum af einhverju tagi. „Við höfum enga ástæðu til að ætla að hlutfallið sé annað hér á íslandi," sagði Sigurður. Aðalræðumaður ráðstefnunnar var Sir Liam Donaldson en hann er fyrr- verandi landlæknir Breta og er í forustu fyrir World Alliance for Patient Safety sem er verkefni hjá Alþjóðaheilbrigðismála- stofnuninni. Innan verkefnisins leggur Sir Liam sérstaka áherslu á störf hóps, Patients for Patient Safety, þar sem veitendur og notendur heilbrigðisþjónustu koma saman. Hann er sendiherra sjúklingaöryggis fyrir stofnunina, auk þess að vera prófessor við Imperial College í London. Hann var aðlaður árið 2002 fyrir störf sín í þágu öryggis og gæða í heilbrigðisþjónustu. Sir Liam tiltók ýmis sláandi dæmi um mistök í meðferð sjúklinga, sem í sumum tilfellum leiddu til dauða sjúklingsins. Með því að nafngreina sjúklingana og segja sögu þeirra vakti hann athygli á þeirri staðreynd að á bakvið hvert tilfelli eru raunverulegir einstaklingar, ástvinir þeirra og miklar tilfinningar. Hann rakti síðan í hverju algengustu mistök eru fólgin, hvar mestar líkurnar eru á að þau gerist og hvernig megi koma í veg fyrir þau. íslenskir frummælendur á málþinginu komu víða að úr heilbrigðiskerfinu og ræddu öryggi sjúklinga frá sínum bæjar- dyrum. Lára Sch. Thorsteinsson talaði fyrir hönd landlæknisembættisins, Hildi- gunnur Svavarsdóttir hjúkrunarforstjóri FSA, Anna Birna Jensdóttir hjúkrunarfor- stjóri Sóltúns, Eyjólfur Þorkelsson náms- læknir í heimilislækningum og Andrés Ragnarsson talaði fyrir hönd sjúklinga. Þá fluttu þau Sigurður Guðmundsson og Alma D. Möller yfirlæknir gjörgæslu- deildar Landspítalans erindi og Guðmund- ur Þorgeirsson prófessor í lyflækningum sleit málþinginu. Var ljóst af máli frummælenda að sem best öryggi sjúklinga er áhugamál allra er í heilbrigðiskerfinu starfa. Mikilvægt sé að viðurkenna að mistök hafi átt sér stað, ekki skuli leita uppi sökudólga, heldur greina vandann til að hægt sé að koma í veg fyrir að sömu mistök endurtaki sig og skipuleggja verkferla og upplýsinga- streymi nákvæmlega svo hættu af mistök- um eða misskilningi í daglegum störfum verði bægt frá. „Enginn ætlar sér að gera mistök," sagði Sir Liam, „en þó gerast þau og það er það sem við viljum koma í veg fyrir." LÆKNAblaðið 2013/99 471

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.