Þjóðlíf - 01.03.1986, Síða 46

Þjóðlíf - 01.03.1986, Síða 46
Nýjustu rannsóknir sýna aðfull ástæða ertil að hvetja börn fremur en letjatil tölvuleikja þetta, en niðurstaðan varð sem sé sú að öllum þótti ástæða til athafna. Þessi umræða hefur farið fram hvarvetna í hinum vestræna heimi. Einkum er það þrennt sem foreldrar, kennarar og aörk fullorðnir hafa fundið tölvunum til foráttu: í fyrsta lagi þykja leikirnir ofbeldishneigðir; í öðru lagi þykir hætta á að börnin ánetjist tölvun- um rétt eins og fíkniefnum, og í þriðja lagi hafa sumir látið í Ijós þá skoðun að mikil notkun tölv- unnar stuðli að félagslegri ein- angrun viðkomandi barns og ýti undir aðgerðarleysi. Vísindamönnum hefur þótt ástæða til þess að rannsaka málið, þar á meðal hérlendis. Nýverið var gerð könnun á veg- um Útideildar Æskulýðsráðs Reykjavíkurborgar á leiktækja- notkun unglinga í borginni. Út- koman varð sú sem margir höfðu raunar spáð fyrir. Leiktækjanotkun virðist ekki ýta undir félagslega einangrun, heldur kannski þvert á móti. Margir unglinganna virtust að minnsta kosti koma í leiktækja- salina gagngert til þess að hitta kunningja sína, einkum þó í þeim hverfum borgarinnar þar sem engar félagsmiðstöðvar eru fyrir unglinga. Þá varð Ijóst að notkun leiktækjasala er mun minni en margir höfðu haldið fram. Upp- örvandi fréttir fyrir marga uppeld- isfrömuði, sem höfðu borið ugg í brjósti vegna leiktækjasalanna. Vestur í Bandaríkjunum hafa miklar rannsóknir verið gerðar á því hvernig börn umgangast tölv- ur, þar á meðal tölvuleiki. Nýver- ið birtist grein eftir þekktan sál- fræðing þar í landi í hinu virta tímariti Psychology Today, þar sem því er haldið fram að ótti fólks við leiktækin hafi að mörgu leyti verið ástæðulaus. Og það sem meira er: sálfræðingurinn heldur því fram að full ástæða sé til þess að hvetja börn fremur en letja til að umgangast tölvur. Sálfræðingurinn viðurkennnir að tölvuleikir geti oft verið full ofbeldiskenndir, en einkum hafi það átt við um leikina sem fyrstir komu á markaðinn. Nú séu þeir óðum að hverfa í skugga þroska- leikja ýmiss konar. Hann segir einnig að komið hafi í Ijós að lítil ástæða sé til að óttast að börn verði háð leiktækjunum. Kann- anir sýni að þegar tölva kemur inn á heimilið vilji heimilismeð- limir gjarna eyða miklum tíma í hana fyrstu dagana, en síðan fari nýjabrumið af og fólk snúi sér að öðru. Sálfræðingurinn nefnir könnun sem gerð var í San Francisco þar sem fylgst var með tuttugu fjölskyldum er fengu heimilistölvu. Nokkrarfjöl- skyldnanna steyptu sér á bóla- kaf í tölvuleiki næstu dagana, en síðan notuðu fjölskyldurnar tölv- una aðeins fjörutíu mínútur á dag að meðaltali. í þessari könnun þóttust könnuðurnir einnig verða varir við að tilkoma tölvunnar hefði jákvæð áhrif á samskipti fjölskyldunnar; foreldr- ar og börn eyddu greinilega meiri tíma saman í leik og spjall en áður. Sálfræðingurinn nefnir einnig könnun sem gerð var meðal unglinga er heimsóttu leiktækja- sali. Útkoman úr þeirri könnun var á sömu lund og í hinni ís- lensku er var nefnd hér framar: unglingarnirsóttu leiktækjasal- ina upp til hópa í þeim tilgangi fyrst og fremst að hitta vini og vinkonur. í bandarísku könnun- inni kom einnig í Ijós, að stífustu notendur leiktækjasalanna voru góðir nemendur, fengu góðar og jafnvel bestu einkunnir, og tóku virkan þátt í félagslífi síns skóla. Þá kom ennfremur fram í þessari könnun, að sumir unglinganna virtust hafa sótt aukið sjálfs- traust til leiktækjanna, þ.e. ef þeim gekk vel í leikjunum. Sálfræðingurinn bendir á að flest af því sem börn og ungl- ingar gera þegar þau leika sér með heimilistölvuna, sé athæfi af því tagi sem foreldrar og kenn- arar telja venjulega mjög æski- legt. Hann bendir á að ekki sé eðlismunur á því að búa til forrit eða ná valdi á tölvuleik, og hinu að leysa reikningsdæmi, lesa bók eða teikna. Athæfi af þessu tagi tekur venjulega hug okkar allan og ertímafrekara en áætl- að var í upphafi, en þó finnst okkur flestum að tímanum hafi verið vel varið. Óttinn við það að tölvan ýti undir aðgerðarleysi barnanna er að mati sálfræðingsins ástæðu- laus. Hann segir óttann stafa af misskilningi og vanþekkingu - fólk rugli saman áhrifum tölva og áhrifum sjónvarpsins. Sjónvarp- ið, þetta áhrifamikla uppeldis- tæki samtímans, ýtir undir að- gerðarleysi, neglir börnin niður og heldur þeim föstum sem hlut- lausum áhorfendum. Umgengni barna við tölvurnar er á hinn bóginn allt annars eðlis. Þar hafa þau möguleika á að láta til sín taka af fullum krafti, þau eiga ýmis boðskipti við tölvuna, geta breytt og bætt að vild. Þarna er barnið þátttakandi og hér reynir mjög á sköpunargáfuna. Sál- fræðingurinn bendir á, að kannski stafi mesta hættan af því að börnin verði of athafna- söm og fari að seilast til leyni- legra upplýsinga í tölvunetum utan heimilisins, eins og dæmi eru um í Bandaríkjunum. Hver sá sem séð hefur barn leika sér að tölvu getur ekki ann- að en dáðst að barninu - og um leið fundið til vanmáttar. Þau eru oft ótrúlega fljót að ná tökum á leikjunum og möguleikum tölv- unnar og stýra henni að vild sinni. Ef til vill er ein ástæðan fyrir þessu sú að þau hafa varið óratíma fyrir framan sjónvarpið. Þrátt fyrir alla sína galla lumar sjónvarpið nefnilega á ýmsu sem börnum kann að koma vel, svo sem þjálfun í ýmsum skynj- unar- og skynheildaratriðum. Út- varp og bækur eru miðlar, sem ýta ekki undir þessi sömu atriði. Þeir sem ólust upp fyrir daga sjónvarpsins kunna að eiga mun erfiðara með að tileinka sér hina nýju tækni sem felst í tölvunum, heldur en börnin sem alast upp með sjónvarpið sér við hlið, en þessi tækni byggir fyrst og fremst á hröðum samskiptum og að beina athyglinni að mörgum þáttum í einu. Sálfræðingurinn dregur að lokum saman þá þætti í tölvun- um sem honum finnast mikils- verðir uppeldisþættir fyrir börn nútímans. í fyrsta lagi skjátlast tölvunum aldrei. Þegartölvunotandi fær ekki það sem hann býst við út úr tölvunni liggur ástæðan ávallt í þvi, að hann bar sig ekki rétt að. Tölvur gera nákvæmlega það sem þeim er fyrirskipað að gera og ef skipunin er röng, láta af- leiðingarnar ekki á sér standa. Sálfræðingurinn heldur því fram, að einmitt þetta atriði geti kennt börnunum að bera persónulega ábyrgð á eigin gjörðum. Fullorðið fólk sem séð hefur börn leika sér saman í hóp að tölvum, hefur einatt orð á því að þau virðist miklu samvinnuþýð- ari heldur en þegar þau leika sér að einhverju öðru. Ef til vill kenna tölvurnar þeim að um- gangast hvert annað af meiri virðingu en ella, því tölvan kennir okkur einnig lítillæti. Það er nefnilega hægt að læra enda- laust um tölvur - náminu eru engin takmörk sett og þetta sjá allir sem á annað borð komast í tæri við þessi tæki. Og sálfræð- ingurinn klykkir út með því að láta í Ijós þá trú, að tölvubörnin muni breyta framtíð okkar í átt til meiri friðar þjóða í millum - því tölvurnarfæri þeim önnurgildi en þau sem við ólumst upp við! 3 46 ÞJÓÐLÍF J
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.