Frjáls verslun - 01.05.2012, Blaðsíða 26
26 FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012
Það hefur ekki farið framhjá neinum að mikið hefur staðið til í kvik-
mynda gerð hér á landi, ekki vegna þess að mikið er um að vera
í íslenskri kvikmyndagerð, sem hefur verið í lágmarki undanfarin
misseri og ekki sér fyrir endann á því ástandi, heldur vegna þess að
í sumar er verið að taka upp á landinu hluta af þremur rándýrum
Hollywoodmynd um auk smærri erlendra verkefna.
TexTi: HilMar karlsson
Íslensk-amerÍska
kvikmyndasumarið
Kvikmyndirnar þrjár eru með kostn aðaráætlun upp á 400 til 500 milljónir dollara og þótt ekki nema
hluti af þeim kostnaði komi til
Íslands er veltan hér á landi upp
á hundruð milljóna króna og
skap ar vinnu fyrir fjölmarga, ekki
kannski mikla vinnu fyrir ís lenska
kvik myndagerðarmenn eða
leik ara heldur meira fyrir vinnu afl
á almennum vinnumarkaði sem
m.a. tengist ýmsum þjón ustu
grein um.
Hvað er það svo sem veldur
þessum áhuga á Íslandi sem
tökustað fyrir dýrar kvikmyndir?
Freistandi er að segja að íslensk
náttúra sé þar efst á blaði, en
þótt náttúran skipti vissulega
máli eru það alltaf peningamálin
sem eru efst á blaði hjá Holly
woodframleiðendum. Segja má
að tímamót hafi orðið í ásókn
erlendra kvikmyndaframleiðenda
í að kvikmynda hér á landi
þegar samþykkt var á Alþingi
2009 að hækka endurgreiðslu
framleiðslu kostnaðar úr 14%
í 20%, en hækkunin úr 12% í
14%, sem samþykkt var 2006,
skilaði sér ekki í fjölgun erlendra
verkefna. Þessi hækkun og
hagstætt gengi íslensku krón
unn ar hefur gert það að verkum
að nánast stanslaus straumur
erlendra kvikmynda og sjón
varps verkefna hefur verið til
landsins, stórra og smárra, og er
skemmst að minnast kvikmyndar
Ridleys Scotts, Prometheus,
sem að hluta til var tekin upp hér
á landi í fyrrasumar auk einn
ar vinsælustu sjónvarpsseríu
heims ins, Game of Thrones.
tOm CrUIse, rUssell
CrOwe, beN stIller
Stóru Hollywoodkvikmyndirnar
þrjár sem þegar þegar eru
hafn ar tökur á eða fara í tökur
á næs t unni eru Oblivion, með
Tom Cruise í aðalhlutverki og er
hann einnig framleiðandi, Noah,
sem einn athyglisverðasti leik
stjóri samtímans, Darren Aronof
sky, leik stýrir og skartar Russell
Crowe í titilhlutverkinu, og The
Secret Life of Walter Mitty með
Ben Stiller, sem einnig leik stýrir
og er einn framleiðenda kvik
mynd arinnar.
Tökum á Oblivion er lokið og
fór það ekki framhjá neinum að
Tom Cruise var á landinu. Ekki
minnkaði spennan vegna komu
hans þegar eiginkonan, Katie
Holmes, fór fram á skilnað í New
York meðan hann var staddur
hér á landi.
Oblivion er komin er með
áætl aða kostnaðartölu, 200 millj
ónir dollara, og eru lokatökur á
mynd inni hér á landi. Frumsýning
verður í apríl 2013. The Secret
Life of Walter Mitty, sem er
endur gerð kvikmyndar frá árinu
1947, verður jólamynd 2013 en
Noah, sem komin er styst í fram
leiðslu, verður ekki frumsýnd fyrr
en í mars 2014. Við allar þessar
kvikmyndir er áætlað að 100 til
200 innlendir starfskraftar vinni
hverja fyrir sig meðan tökur fara
fram hér á landi.
FleIrI verkeFNI
Eins og oft vill verða um stór
myndir sem gera út á að fá
mikla aðsókn er lítið vitað um
eigin leg an söguþráð mynd
anna, nema kannski helst The
Secret Life of Walter Mitty,
sem er endur gerð kvikmyndar
frá árinu 1947, fjallar um ljós
myndara sem upplifir ævin týri
lífs síns í eigin hugarheimi en
óvænt lendir hann í raun veru
legu ævintýri. Oblivion er
framtíðarkvikmynd sem segir frá
hermanni sem herréttur send ir á
fjarlæga plánetu þar sem hann
á að eyða öllu lífi og Noah er
biblíusöguleg kvikmynd sem
fjallar um flóðið mikla sem að
eins Nói og fylgdarlið hans lifði
af og ef eitthvað er að marka
slúð ur í kringum myndina þá er
Nói orðinn að umhverfissinna í
með förum Russells Crowes.
Hvað varðar ásókn erlendra
kvikmyndafyrirtækja í að kvik
mynda hér á landi er framtíðin
björt. Þegar hefur verið ákveðið
áframhald kvikmyndunar á
Game of Thrones og nokkrar
kvik myndir eru væntanlegar hing
að þótt ekki séu þær af sömu
stærðargráðu og þrjár fyrrnefnd
ar kvikmynd ir. Svo er alltaf
nokkuð um að aug lýsingar séu
teknar hér á landi, en kostnaður
við eina sjón varps auglýsingu
getur numið hátt í kostnaði við
eina ís lenska kvik mynd. Best
er samt fyrir þjóð ina að fá stóru
Hollywood kvik myndirnar þar
sem störfin við þær ná inn á
almennan vinnu markað.
Tökum á Oblivion er lokið og fór það ekki framhjá neinum að Tom
Cruise var á landinu.
Í stuttu máli