Frjáls verslun - 01.05.2012, Blaðsíða 44
44 FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012
óháð kirkJudeilum
Fólk sem þekkir Agnesi segir tvennt: Hún er afar vönduð og heiðarleg kona. En hana skortir
líka reynslu af „kirkjupólitískum“
deil um. Hún hefur ekki staðið
í átökum innan kirkjunnar og
þess í stað verið óumdeild og virt
sem prestur og prófastur vestur
í Bolungarvík. Hún kemur „að
utan“ ef menn hugsa málið út frá
miðdeplinum Reykjavík. Það kann
að vera bæði kostur og galli.
Sr. Magnús Erlingsson, sóknar
prestur á Ísafirði, hefur þekkt sr.
Agnesi alveg frá því á há skóla ár
unum í guð fræði deild inni og síðar
í æskulýðsstarfi þjóð kirkjunnar
og svo sem sam verka maður og
undir maður fyrir vestan.
Hann segir að þessi bakgrunnur
Agnesar sé hennar styrkur. „Það
má ekki gleyma að kirkjan stendur
traustari fótum í samfélögunum
úti um land en í höfuðborginni,“
segir sr. Magnús. „Starf kirkjunnar
er oft miðdepillinn í þessum sam
félögum. Þennan félagslega þátt
þarf að styrkja, líka á höfuð borgar
svæðinu, og þarna kemur reynsla
Agnesar að góðum not um.“
NÝtt stArFsUmHverFI
Annar prestur, sem ekki vildi láta
nafns getið, sagði að vissulega
væri íslensk kirkjupólitík engin
uppá haldstík en samt væri gott
fyrir biskup að þekkja þar átaka
línur. Sr. Agnes hefur ekki tengst
deilum innan kirkjunnar.
„Það er ósætti um hlutverk og
stefnu kirkjunnar og ekki hægt
fyrir biskup að þykjast ekki vita af
þessu,“ sagði prestur. „Þó getur
vel verið að sr. Agnes reynist skör
ungur á biskupsstóli og komi á friði
en nú þarf hún að aðlagast allt öðru
starfsumhverfi en er fyrir vest an.“
Þannig miðast gagnrýni á nýkjör
inn biskup við meint reynsl uleysi
hennar af kirkju deil um um leið og
fjarlægð in frá deilunum er talin
kostur. Sr. Agnes er að þessu leyti
ólík t.d. Jóhönnu Sigurðardóttur
forsætis ráð herra, sem verið hefur
í eldlín unni í meira en þrjá áratugi
og er hörð í horn að taka.
tÓNlIstArNám
Allir sem kunnugir eru sr. Agnesi
bera henni vel söguna. Hún fær
jafnan þá umsögn að vera afskap
lega vönduð manneskja og mjög
fjölhæf.
Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskóla Íslands,
hefur þekkt biskup frá barnæsku.
Þau ólust upp í menningarlegu
umhverfi á Ísafirði. Sr. Agnes
og Hólmfríður systir hennar
voru heimagangar á heimili
foreldra Hjálmars. Ragnar H.
Ragnar, faðir hans, var skóla stjóri
tónlistarskólans og þar voru þær
systur báðar í námi. Auk þess
var mikil vinátta með foreldrum
þeirra; Ragnari og Sigríði Jóns
dótt ur í tónlistarskólanum og
prests hjónunum, foreldrum sr.
Agnesar, sr. Sigurði Kristjánssyni
og Margréti Hagalínsdóttur ljós
móður.
„Sr. Sigurður var mjög vinstri
sinnaður en faðir minn á hinum
kantinum. Þeir deildu þó aldrei,
sr. Sigurður deildi ekki við fólk, en
umræður í stofunni heima gátu
orðið mjög skemmtilegar,“ segir
Hjálmar. „Sr. Sigurður hafði mjög
lúmskan húmor og hann hefur
dóttir hans erft. Það er farsælt
veganesti.“
Sr. agnes Sigurðardóttir, nýkjörin biskup Íslands:
Sr. Agnes Sigurðardóttir var kjörin nýr biskup með
nær 65 prósentum atkvæða. Óvenjumikil ein ing
virtist vera meðal kirkjunnar manna um kjör henn
ar. Stofnunin er þó ekki fræg fyrir mikla sprettu á
kristilegum kærleiksblómum. Er nú að kom ast
á friður?
TexTi: gísli krisTjánsson / Myndir: geir ólafsson
„Hún fær ofboðsleg
hátursköst. Það
finnst mér kostur
við biskup.“
Sr. Magnús Erlingsson, sókn
ar prestur Ísafirði:
nærmynd