Frjáls verslun - 01.05.2012, Blaðsíða 128
128 FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012
Áhersla á samstarf
við fyrirtæki
Mímir símenntun býður fullorðnu fólki annað tækifæri til náms og leggur áherslu á þá sem
ekki hafa lokið námi í framhaldsskóla. undirbúningur fyrir haustönn er nú í fullum gangi.
M í m i r
Hulda Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Mímis, segir að lögð verði áhersla á að styrkja tengsl við fyrirtæki og stofnanir eftir að megináherslan hafi verið á að
mennta atvinnuleitendur síðastliðin þrjú ár:
„Um 1.550 atvinnuleitendur luku námi hjá
Mími á síðasta ári og völdu flestir að styrkja
sig í almennum greinum með því að stunda
nám í Grunnmenntaskóla, en hann er fyrir
fólk með stutta skólagöngu sem vill byrja
aftur í námi, og svo Menntastoðum, sem er
lengra nám fyrir þá sem stefna í fornáms
deildir háskólanna. Vinsælt starfstengt nám
er Þjónusta við ferðamenn og Meðferð mat
væla. Áfram verður haldið að þróa og fram
kvæma raunfærnimat sem er ferli þar sem
metin er þekking og færni á ákveðnu sviði.
Markmið matsins er að fólk fái viður kennda
raunfærni sína. Raunfærnimatið má nýta til
styttingar á námi, til að sýna fram á reynslu
og færni í atvinnuviðtali og til að leggja mat
á hvernig einstaklingurinn getur styrkt sig í
námi eða starfi.“
styð eindregið lögin
Hvað finnst þér um lögin sem taka gildi 1.
september 2013 og kveða á um að hlutfall
hvors kyns verði aldrei lægra en 40% í stjórn
um stærri fyrirtækja?
„Ég styð eindregið lögin um að hlutfall hvors
kyns verði aldrei lægra en 40% í stjórnum en
vona að fyrirtæki verði búin að koma sínum
málum í lag fyrir gildistöku þeirra. Reynsla
mín af stjórnarsetu í fyrirtækjum er nokkur og
finn ég mikinn mun þar sem kynjahlutfallið er
jafnt eða þegar ég er eina konan. Stjórn sem
samanstendur af öðru kyninu, jafnvel einstak
lingum með svipaðan bakgrunn og lífssýn,
getur verið skaðleg fyrirtækjunum því þar er
hætta á skorti á víðsýni og þekkingu.
Bæði kynin og fjölbreyttur bakgrunnur
stjórnar manna er það besta að mínu mati.“
Hvernig snerta þessi lög Mími? Hversu marg
ar konur eru í stjórn þíns fyrirtækis?
„Í stjórn Mímis eru þrjár konur og tveir karlar
og er kona stjórnarformaður. Eigendur Mímis
hafa gætt þess frá stofnun fyrirtækisins að
hafa kynjahlutfallið sem jafnast. Hjá Mími eru
nú fimm stjórnendur og eru það allt konur.
Konur eru í miklum meirihluta hjá fyrirtækinu
og hef ég reynt að ná í karlmenn til starfa en
það hefur oft reynst erfitt. Mér finnst mikilvægt
að reyna að jafna kynjahlutfall á vinnustöðum
því að konur og karlar bæta hvert annað upp
og ná saman besta árangrinum.“
Aldur: 59 ára.
Menntun: Er með fjölbreytta menntun,
fyrst lauk ég sjúkraþjálfara -
námi í Bergen, síðan MS í
heilbrigðisvísindum við HÍ
og loks tók ég MBA í Brussel.
Hjúskaparstaða: Ég er gift á þrjá uppkomna
syni og tvö barnabörn.
Tómstundir: Þær helstu eru útivera,
garðyrkja og handavinna.
Í sumar ætla ég að ganga á
fjöll, vera heima í garði og
í sumarbústað okkar hjóna
nálægt Bifröst í Borgarfirði.
„Mér finnst mikilvægt að reyna að jafna kynjahlutfall á vinnustöðum
því að konur og karlar bæta hvert annað upp og ná saman besta áran
grinum.“
Hulda Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Mímis.
Texti: Hrund Hauksdóttir / Mynd: Geir Ólafsson