Frjáls verslun - 01.05.2012, Blaðsíða 141
FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012 141
umbun betri en refsingar
Það kemur líka skýrt fram í skýrslu Deloitte
að árangursríkast sé að velja besta fólkið
úr öllu menginu, óháð kyni, aldri og öðrum
þáttum. Þess vegna finnst mér kynjakvótinn
sorglegur, jafnvel dálítð niðurlægjandi fyrir
það flotta fólk sem konur eru. Þær eru ekki
grátandi minnihluti. – Í staðinn fyrir að notast
við refsingar, þ.e. setja lög og hóta, ætti öllu
heldur að nýta umbun, sem virkar miklu bet
ur, og hampa þeim fyrirtækjum sem eru með
fjölbreytni í stjórnum.“
að breyta fyrirtækjakúltúrnum
Hvernig snerta nýju kynjalögin þitt fyrirtæki?
Hversu margar konur eru í stjórn Deloitte?
Harpa: „Við erum nú þegar með 40% kynja
hlutfall í stjórn Deloitte og því hefur lagas
etningin engin áhrif hjá okkur. Ég hefði viljað
sjá þetta gerast sjálfkrafa hjá fyrirtækjum, en
ekki fyrir tilstuðlan lagasetningar.“
Margrét: „Þegar ég byrjaði hjá Deloitte voru
þeir með prógramm í gangi sem nefn ist
Women in The Workforce. Þeir lögðu ofur
áherslu á að byggja vinnustaðinn upp fyrir
konur því starfsmannaveltan var meiri hjá
þeim en hjá körlum. Þeir komust að því að
konur hættu fyrr á ferlinum en karlar og þetta
orsakaðist af fyrirtækjamenningunni. Harvard
Business School notar þetta sem dæmi í ken
nslu og til að skýra frá því hvernig Deloitte
fór að því að breyta kúltúrnum. Það kom t.d. í
ljós að eftir vinnu tengdust karlmennirnir mun
betur en konurnar, þeir fengu sér bjór saman
eða spiluðu golf en konurnar fóru heim.
Í fyrirtækjamenningunni var áður ríkjandi
sá hugsunarháttur að ef starfsmaður vann
nógu mikið var hann góður starfsmaður,
jafnvel þótt hann skilaði kannski ekki miklu.
Svo kom hugsunin um sveigjanlegan vinnu
tíma og annað í þeim dúr og Deloitte tókst
að breyta kúltúrnum. Það var ekki einungis
starfs mannavelta kvenna sem minnkaði. Já
kvæðir mælanlegir hlutir urðu sýnilegir, s.s.
ánægja bæði karla og kvenna með áherslu á
sveigjanlegan vinnutíma, áherslu á jafnvægi
fjölskyldu og einkalífs og svo mætti lengi telja.
sveigjanleiki
Mér þykir þessi sveigjanlegi vinnutími mjög
mikilvægur og við leggjum talsverða áherslu
á hann. Við hjá Deloitte bjóðum reynslumeira
fólkinu okkar að horfa á vinnutímann á árs
grundvelli. Gerum ráð fyrir að dagvinnutímar
á ári séu 1.875 tímar, þá þarftu að skila
tímunum á ársgrunni. Þú getur unnið hálfan
daginn á sumrin, lítið þegar barnið þitt byrjar
í skóla. Mánuðina eftir áramót er brjálað að
gera og þá vinnurðu mjög mikið. Auðvitað
þarf að gæta þess að regla sé í óreglunni.“
góðir stjórnarhættir
Hvort sem stjórnir fyrirtækja uppfylla hið
boðaða kynjahlutfall eða ekki er mikilvægt
fyrir fyrirtæki að fara í naflaskoðun til að
ganga úr skugga um að þau stundi góða
stjórnarhætti.
Harpa: „Við hjá Deloitte bjóðum einmitt upp
á ráðgjöf í góðum stjórnarháttum, en góðir
stjórnarhættir auka skilvirkni í félögum og þar
með ágóða og hagnað félagsins. Það verð ur
meiri siðferðisvitund, leiðir til stöðugri og jafn ari
rekstr ar og ímynd fyrirtækisins treystist og verður
jákvæðari. Með þetta í huga verður fyrirtækið
samkeppnishæfara þar sem það á auð veldara
með að laga sig að breytingum.“
Margrét Sanders, framkvæmdastjóri hjá
Deloitte:
Aldur: 52 ára.
Menntun: Er með MBA-gráðu og
viðskiptafræði frá banda -
rískum háskóla. Lauk einnig
íþróttakennaraprófi og
B.ed. frá Kennaraháskóla
Íslands. Árs frönsku nám í
háskóla í Aix en Provence í
Frakkandi.
Hjúskaparstaða: Er gift Sigurði Guðnasyni
og eigum við þrjú börn, tvö
börn saman, Albert Karl
og Sigríði, en Albert Karl
lést á síðasta ári. Eigin
maðurinn á dótturina Sylvíu
Rós frá fyrra sambandi.
Tómstundir: Íþróttir almennt, stundaði
áður ýmsar boltaíþróttir og
er núna að spila golf. Hef
gaman af að rýna í þjóð -
málin og svo er vinnan
einnig áhugamál.
Sumarfríið 2012: Fer með banda rískum
vinum í siglingu við
Grikkland. Svo er vinkonu -
hópurinn búinn að safna
lengi fyrir för til Kýpur sem
við hrindum í framkvæmd í
október. Bústað urinn verður
nýttur og ég ætla að spila
golf og njóta þess að vera til.
Margrét Sanders, framkvæmdastjóri
Deloitte, og Harpa Þorláksdóttir, forstöðu
maður viðskipta og markaðstengsla
Deloitte.