Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2012, Blaðsíða 106

Frjáls verslun - 01.05.2012, Blaðsíða 106
106 FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012 H ver er ástæðan fyrir því að svo miklu færri konur en karlar hafa ratað í æðstu embætti hingað til? Hið þekkta ráðgjafarfyrirtæki Mc­ Kinsey&Company hefur leitað svara við þessari spurningu og veitt þessu málefni sérstaka athygli. Þar á bæ telja menn að þarna liggi vannýtt tækifæri og að virkja þurfi fleiri konur til áhrifa. McKinsey hef ur því leitað leiða, ekki einungis fyrir sitt starfsfólk heldur einnig fyrir skjól stæð ­ inga sína, til að fjölga konum í stjórn ­ unarstöðum. rANNsÓkN mCkINseY Árið 2004 setti McKinsey & Company af stað sérstakt verkefni og rannsókn í þeim tilgangi að leggja konum lið við að efla og þróa leiðtogahæfni sína og styðja þær til frekari starfsframa á sviði stjórnunar. Verkefninu stýrðu þrír stjórnendur hjá McKinsey, þær Joanna Barch, Rebecca Craske og Susie Cranston. „Við vildum hjálpa ungum konum að ná árangri á þessu sviði og um leið finna leiðir til að auðvelda fyrir tækjum og stofnunum að virkja þessa van nýttu auðlind.“ En hvers vegna sérstakt verkfæri fyrir konur? Jú, fyrir því eru nefndar þrjár ástæður: 1) Konur virðast oftar draga sig í hlé frá stjórnunarstörfum en karl menn. 2) Konur taka oftar en karlar meiri ábyrgð á heimili og börnum og sinna þann ­ ig tveimur stjórnunarstörfum sam tímis. 3) Konur upplifa meiri og dýpri til ­ finningasveiflur en karlmenn gera almennt. Í verkefninu var athyglinni því sérstaklega beint að þáttum er snúa að jákvæðri sál ­ fræði og því sem hjálpar fólki að ná og viðhalda eðlilegu jafnvægi. Í verkefninu var rannsakað hvað hefur knúið áfram þær konur sem náð hafa árangri á þessu sviði. Tekin voru viðtöl við 85 konur sem náð höfðu framúrskarandi árangri og einnig nokkra karlmenn. Hópurinn var fjölbreyttur og valinn úr mismunandi fyrirtækjum og geirum atvinnulífsins og í honum voru konur sem stýrðu allt frá fimm til tíu þúsund starfsmönnum. Auk þess að eiga þessi samtöl var kafað ofan í akademískar rannsóknir og gögn og rætt við fjölda fræðimanna á sviði stjórnunar, starfsþróunar, sálfræði og líffræði. Reynsla hundraða samstarfsmanna hjá McKinsey kom rannsakendum líka að góðu gagni. McKinsey & Company birti í nóvember 2008, í tímariti sínu McKinsey Quarterly, grein sem fjallar um niðurstöður verkefn is­ ins. Þar var kynnt til sögunnar nýtt verkfæri undir yfirskriftinni Centered leadership – How talented women thrive (Innri forysta – hvernig hæfileikaríkar konur þrífast). Niðurstöður rannsóknarvinnunnar voru settar fram á áhugaverðan en jafn ­ framt einfaldan og aðgengilegan hátt í líkani sem höfundar hafa kosið að nefna Centered Leadership. Nafnið vísar til þess að styrkurinn til að takast á við leið toga­ hlutverkið kemur innan frá. árANGUrINN kemUr INNAN Frá Líkanið Centered Leadership skýrir hæfnis ­ þætti leiðtoga sem talið er að auðveldi konum að ná árangri. Það bygg ist á fimm víddum sem allar eru á ákveðinn hátt tengd ar. Víddirnar eru til gangur (meaning), orka (managing energy), jákvæðni (positive framing), tengsl (connecting) og skuld bind­ ing (engaging). Lít um nánar á hvað þessar fimm víddir fela í sér. Tilgangur – Hvers vegna skiptir tilgangur máli? Rannsóknir sýna að tilgangur veitir aukna starfshvatningu, eykur fram­ leiðni, dregur úr starfsmannaveltu og eykur tryggð. Tilgangurinn felur í sér hvatninguna sem fær okkur til að hreyfast. Með því að finna tilgang í því sem við tökum okkur fyrir hendur eflist áhuginn og ástríðan fyrir verkefninu, hjartað slær hraðar og við nýtum styrkleika okkar til fulls. Ef réttur tilgangur er fundinn verður starfið ekki bara starf heldur köllun. Auðveldara verður að taka persónulega áhættu ef málstaðurinn er góður. „Að elska starfið sitt og finna að það skiptir máli – hvernig getur nokkuð orðið skemmtilegra?“ Til að finna hinn rétta tilgang þarf maður að vera heiðarlegur gagn vart sjálfum sér varðandi það hvað maður gerir vel, hvar styrkleikar manns liggja og hvað veitir manni raun­ verulega ánægju í starfi. Orka – Hvað er það sem gefur þér orku og hvað er það sem tekur frá þér orku? Til að tryggja sér næga starfsorku skiptir máli að gera sér grein fyrir því og hvernig maður getur haft stjórn á þessum þáttum. Höfundar greinarinnar ganga svo langt að halda því fram að það sé ekkert til sem kallast geti jafnvægi milli stjórnunarstarfs og einkalífs. Flestir stjórnendur vinna lang an vinnudag, margir 50­80 stundir á viku að minnsta kosti. Þegar heim er komið tekur svo við hjá mörgum önnur vakt þar sem þarf að sinna elda mennsku, þvotti og barnauppeldi, svo ekki sé minnst á tengsl við stór ­ fjöl skyldu, vini og áhugamál. Það gef ur því augaleið að mikilvægt er að for gangsraða verkefnum þannig að þau verkefni sem veita orku, hvort sem er heima eða á vinnustað, hafi forgang Hver er ástæðan fyrir því að svo miklu færri konur en karlar hafa ratað í æðstu embætti hingað til? Hið þekkta ráðgjafar­ fyrir tæki McKinsey & Company hefur leitað svara við þessari spurn ingu og veitt þessu málefni sérstaka athygli. Hvernig er hægt að fjölga konum í stjórnunarstöðum? Sigrún Þorleifsdóttir stjórn enda þjálfari hjá Vendum K o n u r n a r á toppinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.