Frjáls verslun - 01.05.2012, Blaðsíða 135
FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012 135
Nýtt fyrirtæki
með nýju
stjórnendateymi
Starfsemi banka á síðustu árum hefur fyrst og fremst snúist um endur
skipulagningu skulda viðskiptavina. Hjá Landsbankanum eru vonir
bundn ar við að henni fari að ljúka, en nokkur dómsmál eru eftir sem
munu ráða miklu um hvernig og hvenær þessi mál leysast.
L a n d s b a n k i n n
Jensína K. Böðvarsdóttir, framkvæmda stjóri þróunar hjá Lands bank anum, segir að nauðsynlegt hafi reynst að kynna bankann upp á nýtt: „Þetta er nýtt fyrirtæki með
nýju stjórnendateymi og nýjum viðhorfum,
þótt nafnið sé það sama. Við höfum í Lands
bankanum lagt mikla áherslu á að kynna
nýja stefnu bankans fyrir almenningi, farið í
tvær fundaferðir um landið og heimsótt nærri
þrjátíu sveitarfélög til að ræða við fólk um ný
tækifæri og það hefur verið mjög gefandi og
skemmtilegt.
Á mínu sviði eru sjö deildir; markaðsdeild,
vefdeild, mannauðsdeild, verkefnastofa,
þjón ustudeild, eignadeild, upplýsingatækni
auk samfélagslegrar ábyrgðar. Okkar hlut
verk er að vera breytingaafl í bankanum og
virkja slagkraftinn. Ég er svo heppin að vinna
með gríðarlega öflugu fólki og verkefnin eru
bæði stór og mörg. Við erum meðal annars
með fjölmörg verkefni í gangi innan bankans
sem eiga að bæta verklag og styrkja þjón
ustu við viðskiptavini og svo viljum við styrkja
starfsandann og menninguna í fyrirtækinu og
auka fræðslu og færni okkar fólks til þess að
bæta reksturinn.
Við höfum sett okkur það markmið að
Lands bankinn verði til fyrirmyndar árið 2015,
sam bærilegur við bestu banka annars staðar
á Norðurlöndum, þannig að það verður nóg
að gera áfram.“
kynjablöndun í hópi – farsælust til
árangurs
Hvað finnst þér um lögin sem taka gildi 1.
sept ember 2013 og kveða á um að hlutfall
hvors kyns verði aldrei lægra en 40% í stjórn
um stærri fyrirtækja?
„Ég er hlynnt þessum lögum, tel þau sjálfsagt
mál fyrir bæði kynin. Ég hef lært það á eigin
skinni að kynjablöndun í hópi er farsælust til
árangurs.“
Hvernig snerta þessi lög þitt fyrirtæki?
Hversu margar konur eru í stjórn Lands
bankans?
„Þessi lög hafa engin áhrif á starfsemi
bankans þar sem við höfum uppfyllt alla
skilmála og það eru meira en tvö ár síðan
bankaráð setti sér markmið um kynjahlut
föll sem gilda fyrir forystusveit bankans. Í
bankaráðinu eru tvær konur og þrír karlar.
Varamenn eru einnig tvær konur og þrír karl
ar. Í framkvæmdastjórn bankans eru fjórar
kon ur og fjórir karlar, auk Steinþórs Pálssonar
banka stjóra.“
Aldur: 43 ára.
Menntun: MBA frá frá University of
San Diego.
Hjúskaparstaða: Gift Þorvaldi Jacobsen. Við
eigum samtals fimm börn, sú yngsta átta ára og sá
elsti 23 ára.
Tómstundir: Fyrir utan vinnuna eru það
veiði, skíði, matargerð,
útivera og síðast en ekki síst
fjölskyldan og vinir.
Sumarfríið 2012: Ég ætla að ferðast, fara í
veiði, útilegur og dveljast
sem mest í paradísinni á
Laugarvatni. Svo hef ég
mjög gaman af því að
bardúsa í garðinum.
„Við höfum sett okkur það markmið að Lands bankinn verði til fyrir
myndar árið 2015, sambærilegur við bestu banka annars staðar á norð
urlöndum, þannig að það verður nóg að gera áfram.“
Jensína K. Böðvarsdóttir er framkvæmdastjóri þróunar hjá Landsbankanum.
Helga Harðardóttir, einn af eigendum og yfirmaður innri endurskoðunar hjá KPMG.
Texti: Hrund Hauksdóttir / Mynd: Geir Ólafsson