Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2012, Blaðsíða 144

Frjáls verslun - 01.05.2012, Blaðsíða 144
144 FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012 Fyrir leiðtoga eins og Lincoln og Obama, sem vilja deila ábyrgð og verkefnum, er hættan sú að erfitt sé að ná niðurstöðu í mikilvægum málum og að of mikill tími fari í þrætur og rifrildi. Sem getur haft lamandi áhrif. Þeir verða að vera undir það búnir að setja mál í atkvæðagreiðslu og ef atkvæði falla jöfn að taka ákvörðun sjálfir og standa við hana hvort sem öðr ­ um líkar það betur eða verr. Til dæmis lét Lincoln ríkisstjórn sína deila um það mánuðum saman hvort ætti að afnema þrælahald. Að lokum tók hann sjálfur þá ákvörðun að gefa út fræga tilskipun um afnám þrælahalds (The Emancipation Proclamation). Hann kallaði saman ráð ­ herra sína og tjáði þeim að hann þyrfti ekki lengur á skoðunum þeirra um þetta aðalatriði málsins að halda – nú tæki hann hins vegar við tillögum um hven ær og hvernig væri best að kynna og fram ­ kvæma þessa tilskipun. Svo að jafnvel þótt sumir ráðherranna styddu ekki ákvörð ­ un Lincolns í þessu máli fengu þeir á tilfinninguna að þeirra sjónarmið hefðu komist til skila. Sem var rétt. Þegar einn ráðherrann lagði til að Lincoln biði með að gefa út tilskipunina þangað til næsti sigur hefði unnist á vígvellinum fylgdi hann þeim ráðleggingum. Þú hefur skrifað ævisögur þriggja Bandaríkjaforseta. Hvaða eiginleika telur þú nauðsynlega góðum leiðtoga? Ég get ekki lagt nógu ríka áherslu á mikil vægi þess fyrir leiðtoga að vera um ­ kringdur fólki sem er tilbúið til að rífast við hann eða hana og setja spurningar merki við það sem leiðtoganum finnst sjálfsagt. Best er ef hægt er að finna samstarfsfólk sem er ólíkt í skapferli og þankagangi. Þegar Lincoln gerði Edwin Stanton að stríðs málaráðherra í ríkisstjórn sinni árið 1862 var Stanton bæði harðari í horn að taka og orðvarari en Lincoln sem átti til linkind við undirmenn sína og var einn ig stundum of opinskár. Þessir ólíku eiginleikar þeirra vógu hvor annan upp. Þegar Lincon var of umburðarlyndur og náðaði liðhlaupa svo ótt að til vandræða horfði fyrir heragann sýndi Stanton ein ­ arða hörku í hegningum fyrir hugleysi. Þegar þeir unnu saman voru liðhlaupar vissulega ennþá náðaðir en ekki sami fjöldi og þegar Lincoln var einn við stjórn völinn. Það er líka mikilvægt að finna leið til að viðurkenna hlutdeild nánustu sam ­ starfsmanna í velgengni svo þeim finnist þeir mikilvægir fyrir verkefnið og að þeir eigi sinn hlut í því. Leiðtogi ætti að sjá til þess að jákvæður andi ríki í kringum verkefni og í því felst ekki bara að viðurkenna sín eigin mistök heldur jafnvel stundum að axla ábyrgð á mistökum undirmanna sinna. Lincoln tók ítrekað ábyrgð á mistökum, bæði sínum eigin og annarra, og það varð til þess að undirmenn hans voru honum afar tryggir. Sagan sýnir einnig mikilvægi þess að kunna að ná sambandi við almenning, hvort sem er í gegnum útvarpið, eins og Franklin Roosevelt, eða með því að halda ræður opinberlega eins og Lincoln gerði, en ræður hans voru svo skýrar og ljóðrænar að fólki fannst eins og það væri að horfa á hann hugsa og að það sem hann segði væri sannleikur. Hér má bæta við einu atriði sem ein­ kenn ir góðan leiðtoga, hvort sem er í við skiptum eða stjórnmálum, en margir van meta mikilvægi þess. Góður leiðtogi verð ur að kunna að slaka á og safna orku fyrir bardaga morgundagsins. Lincoln fór í leikhúsið að minnsta kosti hundrað sinnum meðan hann bjó í Washington. Og þrátt fyrir að finna stundum til þunglyndis hafði hann ríka kímnigáfu og gat skemmt fólki með gamansögum kvöldin löng. Franklin Roosevelt gerði svipað. Á meðan á síðari heimsstyrjöldinni stóð hélt hann hanastélsstund á hverju kvöldi og þá var bannað að minnast á stríðið. Stundum skoðaði hann frímerkin sín. Hann varð að gefa sjálfum sér frí frá því að hugsa um erfi ðleikana í smástund. Þessi eiginleiki, að geta tekið sér smástund til að hlaða batt­ erí in, er lykilatriði fyrir góðan og farsælan leiðtoga. Fleiri bækur hafa verið skrifaðar um Lincoln en nokkurn annan Banda ríkja- forseta. Af hverju var Lincoln svona góður leiðtogi og hvað í fari hans heill- ar fólk enn? Tja, það var að minnsta kosti ekkert eins einfalt og persónutöfrar. Það tók þjóðina raunar þó nokkra stund að falla fyrir Lincoln; vinsældir hans komu næstum úr öfugri átt. Það var ríkisstjórn hans sem var Doris Kearns Goodwin, höfundur bókarinnar um Lincoln: Ef ég gæti eytt kvöldstund með Abraham Lincoln myndi ég bara biðja hann að segja mér sögur. Allir sem hann hitti minntust á leiftrandi skopskyn hans og ein staka frásagnarhæfileika. Enda sagði hann sjálfur að góð saga væri betri en viskítár. Ég myndi fá hann til að setjast við eldhúsborðið og segja mér sögur allt kvöldið og fá þannig mynd af honum eins og hann raunverulega var.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.