Frjáls verslun - 01.05.2012, Blaðsíða 107
FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012 107
!
A stæ ur
Persónulegar
Faglegar
Tilgangur:
Hamingja
Styrkleikar
Ásetningur
Skuldbinding:
Rödd
Eignarhald
Áhætta
A lögun
Orka:
Lágmarka sóun
Endurhla a
Flæ i
Tengsl:
Tengslanet
Stu ningsmenn
Gagnkvæmni
Jákvæ ni:
Sjálfsvitund
Lær jákvæ ni
Fram róun
Forsendur:
Greind
ol gagnvart breytingum
Löngun til a stjórna
Samskiptahæfni
Áhrif:
Framkoma
rautseigja
Tilheyra
umfram þau sem taka frá manni orku.
Að sjálfsögðu er lífið ekki svo einfalt að
ekki þurfi að gera fleira en gott þykir.
Þess vegna skiptir máli að skipuleggja
vikuna þannig að jafnvægi sé milli þess
sem tekur og gefur orku.
Jákvæðni – Með hvaða augum lítur
þú yfir farinn veg og fram á veginn?
Það getur haft umtalsverð áhrif á hvaða
árangri þú nærð. Því er haldið fram
að þeir sem eru bjartsýnir sjái heim
inn í raunverulegra ljósi en þeir sem
eru svartsýnir. Bent er á að mikil vægt
sé fyrir konur að hafa þetta í huga þar
sem þær geta haft meiri tilhneigingu í
átt til þunglyndis en karlmenn. Vísað
er í rannsóknir því til stuðnings. Þeir
jákvæðu horfast í augu við áskoranir og
trúa því að þeim takist að virkja sitt fólk
til að takast á við þær. Á hinn bóginn
eru þeir neikvæðu líklegir til að upplifa
sig hjálparvana og festast í vítahring
sem dregur úr þeim alla orku til athafna.
Það skiptir ekki máli hversu neikvætt
fólk er að upplagi, allir geta lært að
tileinka sér jákvætt hugarfar. Lykillinn
að því er að þekkja sjálfan sig og taka
markvisst á aðstæðum þar sem nei
kvæðni getur dregið úr árangri.
Tengsl – Hverjir geta hjálpað þér að
vaxa, aukið tengsl þín og hjálpað þér
að finna aukinn tilgang með verkum
þínum?
Því er haldið fram að fólk með sterkt
tengslanet og öfluga leiðbeinendur njóti
meiri velgengni hvað varðar stöðu
hækk anir, laun og starfsánægju. Það
fólk finnur sig frekar sem hluta af heild
sem gefur lífi þeirra aukinn tilgang.
Sál fræðingurinn Roy Baumeister hefur
haldið því fram að karlmenn byggi
upp breiðari og grynnri tengsla net en
konur og því hafi þeir fleiri tækifæri
til starfsþróunar og til að afla sér
upplýsinga og aukinnar þekk ingar.
Þessi skoðun hefur verið um deild en
rannsókn McKinsey gefur vís bend
ingar um að tengslanet kvenna hafi
tilhneigingu til að vera þrengri og dýpri
en tengslanet karlmanna. Rann sóknir
hafa sýnt fram á að konur sem halda á
lofti eigin hagsmunum fá gjarnan það
orð á sig að vera frekar, ósam vinnu
þýð ar og sjálfselskar. Rannsóknir sýna
einnig að tregða kvenna til að halda
á lofti eigin hagsmunum kemur í veg
fyrir að þær fái stöðuhækkanir. Þetta
er því vandrataður vegur. Þar til þessi
við horf breytast er því mikilvægt fyrir
konur að eiga öfluga stuðningsmenn
sem tala þeirra máli þegar kemur að
stöðuveitingum.
Skuldbinding – Ertu tilbúin að
grípa þetta tækifæri og gera það að
þínu?
Sumir trúa því að þeir sem eru duglegir
og samviskusamir muni að lokum
uppskera laun erfiðis síns. Það getur vel
gerst en það er sjaldnast raunin. Konur
þurfa að láta rödd sína heyrast og taka
ábyrgð á eigin skoðunum og verkum.
Margar konur halda aftur af sér og tjá
sig ekki um mikilvæg mál, einungis
vegna þess að þær telja sig ekki hafa
neinu við að bæta eða að hugmyndir
þeirra séu ekki nógu mikilfenglegar.
Þann ig geta þær auðveldlega orðið
ósýni legar. Ef þú vinnur verkefnið átt þú
að tala um það. Ef þú vilt stöðuhækkun
þá átt þú að sýna frumkvæði. Þessu
fylgir aukin áhætta en lögmálið er að
stærri tækifærum fylgir almennt aukin
áhætta. Sálfræðingurinn Daniel Gilbert
hefur haldið því fram að þeir sem velja
að taka áhættu fremur en að forðast
hana eru yfirleitt hamingjusamari en
aðrir. Við höfum tilhneigingu til að líta
fremur á ógnanir en tækifæri á óvissu
tímum og því getur verið gott að ræða
málin við aðra og það getur hjálp að fólki
að skoða aðstæður í réttu ljósi.
Konum þarf að fjölga í stjórnunarstöð um, ekki bara vegna þess að það er sanngjarnt, heldur
líka vegna þess að tækifæri felast í fjöl
breyti leikanum. Fjölbreytni elur af sér
fleiri og betri hugmyndir og ákvarð an ir.
Sköpunarkrafturinn sem býr í fjöl breyti
leikanum elur af sér fleiri og fjöl breytt ari
atvinnutækifæri ef svigrúm er fyrir hendi.
Það eykur líkurnar á því að fleiri finni
störf og viðfangsefni við hæfi. Þegar fólk
finnur viðfangsefni við hæfi eykst áhugi og
eldmóður, afköst aukast, veikindadögum
fækkar, starfsmannavelta verður minni og
þar af leiðandi má gera ráð fyrir að fram
leiðni verði meiri. Aukin framleiðni skilar
aukinni velsæld og hennar er þörf. Nú
vit um við hvað við þurfum að gera stelpur,
svo brettum upp ermar..
Um McKinsey
McKinsey & Company var stofnað árið 1926 og
hefur starfað í rúm 85 ár. Fyrirtækið á langa og
farsæla sögu og er meðal stærstu og virtustu
ráðgjafarfyrirtækja í heiminum. Á vegum
þess eru um fimm þúsund starfsmenn í öllum
heims álfum. Tímaritið Working Mother hefur
komið út í Bandaríkjunum í yfir 30 ár og hefur
í 25 ár birt lista yfir þau hundrað fyrirtæki sem
hafa þótt skara fram úr sem vinnuveitendur
fyrir mæður þar í landi. McKinsey & Company á
sæti á þeim lista.
Líkanið Centered Leadership
Það skýrir hæfnisþætti leiðtoga sem talið er
að auðveldi konum að ná árangri og byggist á
fimm víddum:
Tilgangur (meaning)
Orka (managing energy)
Jákvæðni (positive framing)
Tengsl (connecting)
Skuldbinding (engaging)
Hvers vegna eru færri konur í
stjórnunarstörf um?
1) Konur virðast oftar draga sig í hlé frá stjórn
unarstörfum en karlmenn.
2) Konur taka oftar en karlar meiri ábyrgð á
heimili og börnum og sinna þannig tveimur
stjórnunarstörfum samtímis.
3) Konur upplifa meiri og dýpri tilfinningasveifl
ur en karlmenn gera almennt.