Frjáls verslun - 01.05.2012, Side 40
40 FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012
Beðið eftir Jóhönnu
Ég ætla nú aðeins að draga andann eft ir þetta þing. Mér finnst ég alveg mega það, en
svo nota ég sumarið til að hugsa
ýmsa hluti,“ svaraði Jóhanna
Sig urðardóttir forsætisráðherra
RÚV spurningunni sem beðið er
eftir svari við: Ætlar hún í fram
boð aftur?
Hún hafði hugsað sér að
kjör tímabilið sem hófst árið
2007 yrði síðasta kjörtímabilið
á þingi. Nóg komið eftir sam
fellda setu við Austurvöll frá
árinu 1978. Núna eru árin í
þing mennsku að verða 34 – það
er hálf ævin en Jóhanna verður
sjö tug í haust.
Því er spurt: Hvað gerir Jó
hanna í haust þegar prófkjör
hefjast vegna kosninga á næsta
ári? Hún segist ekki hafa gert
upp hug sinn og þá er færi
fyrir spekinga að spá í stöðuna.
Kost irnir eru margir því þetta
fjallar ekki bara um þingsæti,
heldur einnig um formennsku
og forsætisráðuneyti.
PrÓFkJör eðA ekkI
Þetta eru þrír póstar og ekki
sjálfgefið að hún yfirgefi alla í
einu. Aðkallandi er ákvörðunin
um prófkjör. Þar verður Jó
hanna að gera upp hug sinn
fyrir veturinn. Kjörtímabilinu
lýk ur hins vegar ekki fyrr en
næsta vor og ekkert sem bendir
til annars en að stjórnin lifi til
vors. Landsfundur Sam fylk
ing ar á samkvæmt regl unni að
vera haustið 2013 og Jó hanna
þarf ekki að hætta sem for
mað ur fyrir þann tíma. Nema
lands fundi verði flýtt og hann
hald inn fyrir kosningar – jafn
vel í janúar.
Birgir Guðmundsson, dósent í stjórnmálafræði við Há
skólann á Akureyri, veðjar á að
Jóhanna fari ekki í prófkjör.
„Hún hefur bara einn til tvo
mánuði til að taka ákvörðun
og ég spái því að hún fari ekki
fram,“ segir Birgir. „Það segi
ég í ljósi þess að hún hugðist
hætta síðast og það er ekki
hennar stíll að fara fyrst í próf
kjör og kosningar og draga sig
svo í hlé. Hún er ekki fyrir svo
leiðis leikfimiæfingar.“
erFIðAr útGöNGU-
leIðIr
Stefanía Óskarsdóttir stjórn
mála fræðingur er á sama máli:
Jóhanna fer ekki í prófkjör.
Það er spá hennar en þegar
ákvörðun um prófkjör er tekin
eru ákvarðanir um formennsku
og forsætisráðuneyti óhjá kvæm i
lega skammt undan.
„Það eina sem er alveg ljóst er
að Jóhanna vill ekki skilja við
Samfylkinguna í upplausn,“
segir Birgir. „Hún vill undirbúa
leið togaskiptin en á þó ekki
uppá haldsarftaka. Það verða
átök og kynslóðaskipti.“
Stefanía segir að erfitt verði
fyrir Samfylkingu að fara í
kosn ingar án þess að hafa for
sætisráðherraefni. Það bendi
til að Jóhanna hætti í það
minnsta sem formaður fyrir
kosningar og að landsfundur
verði þegar eftir áramót. Nýr
formaður færi þá í kosningar
sem forsætisráðherraefni.
Jóhanna gæti engu að síður
setið út kjörtímabið sem for
sætisráðherra.
Birgir segir að Árni Páll Árna
son, fyrrverandi ráðherra og
nú óbreyttur þingmaður, vinni
augljóslega að því að verða
formaður.
„Hann talar ekki gegn for
yst unni en talar samt á öðrum
nótum. Hann langar til að
taka við,“ segir Birgir. Annar
arftaki af yngri kynslóð er Katrín
Jú líus dóttir en hún hefur – um
tíma í það minnsta – horfið
af hinu pólitíska sviði vegna
barneigna. En það er ekki víst
að Jóhanna hafi hana í huga.
Dagur Eggertsson þykir hins
vegar ekki líklegur.
mIllIleIkIr
Þá koma til greina millileikir
eins og til dæmis að Guð bjart ur
Hannesson taki við. „Guð
bjartur er ekki af hinni yngri
kynslóð en sennilega gæti
Jó hanna hugsað sér að skilja
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra:
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra er skör
ungur en ekki að sama skapi vinsæl. Og fjögurra
ára seta á stóli forsætisráðherra hefur ekki breytt
ímynd hennar. Hún þykir sem fyrr fylgin sér en
enginn manna sættir.
nærmynd
TexTi: gísli krisTjánsson / Myndir: geir ólafsson