Frjáls verslun - 01.05.2012, Page 138
138 FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012
Nýtt æfingakerfi frá
New York
Efst á baugi nú hjá Hreyfingu eins og áður er að stuðla að frekari heilsueflingu
Íslendinga með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval þjálfunarmöguleika sem er í
senn skemmtilegt og árangursríkt að stunda.
H r e y f i n g
Aldur: Aldur: 48 ára.
Menntun: Stundaði nám í íþrótta- og
tómstundafræðum í
Háskólanum í Boulder,
Colorado.
Hjúskaparstaða: Gift Guðlaugi Þór Þórðar -
syni alþingismanni. Á fjögur
börn: Önnu Ýri 20 ára, Rafn
Franklín 17 ára og Sonju
Dís og Þórð Ársæl 10 ára.
Áhugamál: Allt er viðkemur heilbrigð -
um lifnaðarháttum, tónlist,
dans, skíði, skoða heiminn
og síðast en ekki síst að
eyða sem flestum stundum
með fjölskyldunni.
Sumarfríið 2012: Við skiptum um hús við
fjöl skyldu sem býr rétt fyrir
utan Houston í Texas,
gerðum þetta líka í fyrra
og líkaði frábærlega vel. Í
þetta sinn fljúgum við
til Denver og keyrum niður
til Houston og skoðum
Colorado og Nýju-Mexíkó
í leiðinni. Ætlum svo að
ferðast um Texas og Louis-
iana.
„Mér finnst slík lög
óþarfi og á vissan
hátt afturhald í kvenna
baráttunni. Ég lít á
konur og karla sem
fullkomna jafn ingja
og lít til ein stakl ings
ins en ekki hvors kyns
hann er.“
Sumrinu verjum við í undirbúning fyrir eitt annasamasta tímabil árs ins í fyrirtækinu, ágúst/sept./okt.,“ segir Ágústa Johnson, framkvæmda stjóri Hreyfingar. fjölbreytni skiptir öllu máli„Í haust mun Hreyfing kynna nýtt afar spennandi æfingakerfi sem er eitt það vinsælasta í New York um þessar mundir og erum við að
gera lítilsháttar breytingar í stöðinni til þess
að gera klárt fyrir það og bæta enn frekar
þjónustuna við viðskiptavini.
Hópur lykilþjálfara okkar hefur dvalið í New
York í vor til að kynna sér helstu nýjung ar í
heilsu ræktarheiminum og hlakkar til að bjóða
upp á spennandi nýja heilsuræktarmögu
leika í haust.
Fjölbreytni skiptir öllu máli í þjálfun.
Lí kaminn hættir að bregðast við og
staðnar ef við gerum alltaf sömu æfing
arnar. Það er nauðsynlegt að breyta
reglulega um æfingakerfi vilji fólk ná
árangri. Því leggjum við höfuðáherslu
á að vera stöðugt með eitthvað nýtt
og skemmtilegt.“
lögin afturhald í kvennabaráttunni
Hvað finnst þér um lögin sem taka
gildi 1. september 2013 og kveða á
um að hlutfall hvors kyns verði al
drei lægra en 40% í stjórnum
stærri fyrirtækja?
„Mér finnst slík lög
óþarfi og á viss an
hátt afturhald í
kvennabarátt
unni. Ég lít á
konur og karla
sem fullkomna
jafningja og lít til
einstaklingsins
en ekki hvors
kyns hann er.
Mín skoðun er sú
að stjórnir skuli
skipaðar hæfustu
einstaklingunum
óháð kyni.“
Hvernig snerta þessi
lög þitt fyrirtæki?
Hversu margar konur eru í stjórn Hreyfingar?
„Í stjórn Hreyfingar eru 33% konur. Í fram
kvæmdastjórn Hreyfingar eru 80% konur.“
Texti: Hrund Hauksdóttir / Mynd: Geir Ólafsson