Frjáls verslun - 01.05.2012, Page 151
FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012 151
fjölskylda: Ég geri mitt besta til að allir
hafi það gott og þar af leiðandi vinna
þeir vinnu sína vel.“
Hún segir samkeppnina harða, hjá
því verði ekki komist í dag og að
mörg áhugaverð merki séu á mark
aðnum. „Það eru margir um plássið
í verslununum – þetta snýst um að
standa upp úr. Við berum okkur alltaf
saman við stóru merkin sem hafa
verið til í fjölda ára og hafa fjárfest
ingar fyrirtæki á bak við sig. Þarna
kemur kannski Íslendingurinn fram
– ekki vera smeykur heldur keppa við
þá stóru, halda sínu striki og fylgja
við skiptaáætluninni.“
sAvONA, IsOlA OG ArezzO
Við hönnunina leggur Sif áherslu á
glæsilega og sígilda skartgripi sem
tekið er eftir. „Eins og slagorðið okkar
segir: Let yourself shine.“
Þrjár línur eru framleiddar í dag;
Savonasilfurlína, Isolaresínlína og
Arezzoleðurlína.
„Savonasilfurlínan er mjög vin
sæl. Þar vinn ég allt úr silfri með
inngreyptum sirkonsteinum. Ródí
umhúð er sett á silfrið sem heldur
skartgripunum fallegum. Með því
að nota þessi hráefni í framleiðsluna
er hægt að hafa skartgripina á við
ráðanlegu verði.
Isolaresínlínan er einnig mjög
vinsæl og þar notum við resín, blað
gull og silfurpappír með swarovsky
kristöllum. Þessi lína er mjög glæsileg
og hönnuð fyrir konur sem vilja láta
taka eftir sér.
Arezzoleðurlínan er nýjasta lín an
okkar og er að slá öll sölumet inn an
fyrirtækisins. Þar notum við hand
saumað leður í ýmsum litum með
inn greyptum sirkonsteinum.“
Gullsmiðurinn og skartgripa hönn
uðurinn Sif Jakobsdóttir hefur fengið
ýmsar viðurkenningar fyrir hönnun
sína. „Ég hef fengið viðurkenningu
í Travel retail þar sem ég var í hópi
með Georg Jensen og fleiri stórum
fyrir tækjum. Það kom mér reglulega á
óvart. Þá hef ég hlotið viðurkenningar
fyrir hönnun og nýja línu sem vert er
að fylgjast með.“
Jú, um 500 sölustaðir í átta löndum.
Hvað skiptir mestu máli í rekstri
svona fyrirtækis?
„Í rekstri skartgripafyrirtækis er
mikil vægast að vera með vandaða
vöru og að hönnunin sé tímalaus en
um leið þarf hún að fylgja þeim tísku
straumum sem eru ráðandi. Lykil atriði
í rekstri hvers fyrirtækis er að vera
með gott starfsfólk sem deilir fram
tíðar sýn þess.“
Í byrjun var aðsetur
fyrirtækisins á heimili
Sifjar en nú er sem sé
skrifstofan á besta stað á
Strikinu í Kaupmanna
höfn og vinna um 20
manns hjá fyrirtækinu.
Sif Jakobsdóttir. „Við
berum okkur alltaf
sam an við stóru merkin
sem hafa verið til í
fjölda ára og hafa fjár
festingarfyrirtæki á bak
við sig. Þarna kemur
kannski Íslendingurinn
fram – ekki vera
smeykur heldur keppa
við þá stóru, halda
sínu striki og fylgja
viðskipta áætluninni.“