Frjáls verslun - 01.05.2012, Blaðsíða 159
FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012 159
TexTi: HilMar karlsson
um. Hún er yfirburða leikkona
sem getur nánast leikið hvaða
hlutverk sem er og skilað því
betur en aðrir og er af mörgum
talin mesta kvikmyndaleikkona
sem uppi hefur verið. Staðan
er þannig í dag að þekktar og
góðar leikkonur á sama aldri og
hún geta aðeins vænst þess að
fá bitastæðustu hlutverkin sé
Meryl Streep búin að afþakka.
Einn helsti styrkur Streep er
hversu frábærlega hún fer með
mállýskur og það er eng in til
viljun að mörg hennar þekkt ustu
hlutverk eru byggð á raunveru
legum persónum. Minnst hefur
verið á Margaret Thatcher og
bæta má við Juliu Child, Ethel
Rosenberg, Karen Silkwood,
Karen Blixen, Robertu Guasp
pari, Lyndy Chamberlain
og Susan Orlean. Að ná að
leika allar þessar kon ur nánast
fullkomlega krefst mikillar vinnu
og Meryl Streep
er orðlögð fyrir
vinnusemi og
mikinn undir
búning. Sjálf
seg ir hún
að strax á
unglings aldri
hafi hún farið
að herma eftir
röddum ann
arra: „Ég man
sér stak lega eftir
því þegar ég var
16 eða 17 ára,
faðir minn var
mikill að dáandi
Barböru Strei
sand, sem þá
var ekki nema
rúmlega tvítug
en hafði gefið
út þrjár plöt ur
og faðir minn
átti þær allar.
Mér nægði ekki
að kunna lögin öll utanbókar
og syngja þau, ég varð að ná
andardrætti Streisand og réttri
lengd milli orða og þegar það
tókst þá fannst mér ég fyrst
vera búin að fá tilfinningu fyrir
röddinni.“
Farsælt hjónaband og
fjögur börn
Lífið hefur ekki alltaf verið dans
á rósum hjá Meryl Streep.
Hún eins og flestir aðrir ungir
leikarar þurfti að hafa fyrir því
að koma sér á framfæri. Eftir
að hafa útskrifast úr leiklistar
deild Yaleháskólans fékk hún
hlutverk í þremur leikritum eftir
William Shakespeare á New
York Shakespearehátíðinni,
Henry V, Taming of the Shrew
og Measure for Measure. Einn
mótleikara hennar í síðastnefnda
leikritinu var John Cazale og
bjuggu þau saman í þrjú ár eða
þar til Cazale lést úr krabba
meini aðeins 42 ára gamall.
Þau náðu að leika saman í einni
kvikmynd, The Deer Hunter,
sem var önnur kvikmyndin sem
Meryl Streep lék í. Þess má
geta að John Cazale lék aðeins
í fimm kvikmyndum, sem væri
kannski ekki í frásögur færandi
nema fyrir það að allar voru
þær tilnefndar til óskarsverð
launa sem besta kvikmynd. Auk
The Deer Hunter lék hann í
The Godfather, The Godfather
part II, The Conversation og
Dog Day Afternoon.
The Deer Hunter (1978) var
stökkpallurinn fyrir Meryl Streep
og fékk hún sína fyrstu ós
karstilnefningu.
Árið eftir kom
síðan Kramer
vs. Kramer og
fyrir leik í þeirri
mynd fékk hún
fyrsta óskarinn.
Frá þessum
ár um hefur ferill
Streep verið ein
sigurganga og
fá feilspor hefur
hún tekið á leik
listarbrautinni ef
einhver. En áður
en kom að The
Deer Hunter
hafði hún meðal
annars sóst
eftir því að fá
aðalkvenhlut
verkið í King
Kong (1976)
sem ítalinn Dino
De Laurentis
framleiddi.
Meðan De Laurentis virti fyrir
sér Meryl Streep sagði hann
á ítölsku við son sinn: „Hvers
vegna komstu með hana, hún
er ljót,“ en varð víst skömm
ust u legur þegar Streep svaraði
honum á ítölsku.
John Cazale lést í byrjun mars
1978 og sama ár, 30. septem
ber, giftist Meryl Streep mynd
höggvaranum Don Gummer
og eiga þau fjögur börn. Tvær
dætur hennar, Mamie og Grace,
feta í fótspor móður sinnar og
hafa á síðustu árum verið að
skapa sér nafn, en eins og gef
ur að skilja hlýtur að vera erfitt
í leiklistinni að bera þá byrði að
vera dóttir Meryl Streep.
Streep er 63 ára gömul og er
enn á hátindi feril síns, getur
valið út hlutverkun og leikur í
einni til tveimur kvikmyndum
á ári. Þessa dagana er hún
að búa sig undir að leika í
kvik myndinni August: Osaga
County, sem gerð er eftir marg
verðlaunuðu leikriti sem meðal
annars fékk Pulitzer og Tony
verðlaunin sem besta drama.
Mótleikkona Streep í August:
Osaga County er Julia Roberts.
Ætti engum að koma á óvart
þótt Meryl Streep bætti við enn
einni óskarstilnefningunni en í
August: Osaga County leikur
hún 65 ára konu sem verður
fyrir áfalli þegar eiginmaðurinn
hverfur og finnst síðar látinn.
Sjálf er hún háð sterkum lyfseð
ils skyldum lyfjum og hefur allt á
hornum sér í jarðarför eigin
mannsins.
Þrjátíu ára hjónaband
á tímamótum
Hope SprinGS er nýjasta
kvikmynd Meryl Streep. Aldrei
þessu vant þarf Streep ekki að gera
neitt annað en að sýna leikhæfileika
sína, engin mállýska sem þarf að
þjálfa, ekki að setja sig í spor þekktr
ar sögupersónu eða syngja svo
eitt hvað sé nefnt sem þessi frábæra
leik kona getur gert betur en flestir
aðrir leikarar.
Hope Springs er gamansöm
kvikmynd með alvarlegum undir
tóni sem fjallar um samrýnd hjón,
Kay og Arnold, sem að því er virð ist
hafa verið í hamingjusömu hjóna
bandi í þrjátíu ár. Kay finnst samt
eitthvað vanta, einhvern neista
sem gæðir hjónabandið lífi, og
eftir að hafa lesið bók eftir þekktan
sál fræðing sem leggur það fyrir
sig að bjarga hjónaböndum pantar
hún tíma fyrir sig og eiginmanninn.
Arnold er í fyrstu ekki alltof hrifinn
af þessari framtakssemi eiginkon
unnar, enda vanafastur maður og
lítið fyrir breytingar. Hann lætur
þó undan og fara þau í vikuferð til
smábæjarins Great Hope Springs
þar sem sálfræðingurinn býr. Fljótt
kemur í ljós að það er aðeins
hálfur sigur hjá Kay að fá Arnold
til að koma með sér. Vandræðin
byrja þegar þeim er skipað að rifja
upp sín fyrstu kynni, hvers vegna
þau féllu hvort fyrir öðru og hvort
mögulegt sé að endurvekja fornar
glæður og verða ástfangin á ný.
Mótleikarar Streep eru Tommy
Lee Jones, sem leikur eiginmanninn
Arnold, og Steve Carrell, sem leikur
sálfræðinginn. Leikstjóri er David
Frankel, sem leikstýrði Meryl Streep
í The Devil Wears Prada.
Frank el, sem fékk óskarsverðlaun
1996 fyrir stuttmynd sína Dear
Diary, þarf að hressa upp á feril
inn eftir tvær hálfmisheppnaðar
gamanmyndir, Marley & Me
og The Big Year, sem fóru fyrir
ofan garð og neðan þrátt fyrir stór
stjörnur á borð við Jennifer Aniston,
Steve Martin og Owen Wilson.
Kannski getur Meryl Streep komið
hon um til bjargar eins og svo
mörg um öðrum sem hafa fengið að
starfa með henni.
Upphaflega var ætlunin að hinn
þekkti leikstjóri Mike Nichols leik
stýrði Hope Springs, Jeff Bridges
yrði í hlutverki eiginmannsins
og Philip Seymour Hoffman væri
sál fræðingurinn, en einhverra hluta
vegna æxluðust hlutirnir þannig
að þeir duttu allir út á einhverjum
tíma punkti í ferlinu. Hope Springs
verður frumsýnd vestanhafs í byrjun
ágúst.
Meryl Streep og Tommy Lee Jones í hlutverkum hjónanna Kay
og Arnolds sem reyna að lífga upp á hjónabandið.
Hope Springs
Óskarstilnefningar
Meryl Streep
1978 The Deer Hunter
1979 Kramer vs. Kramer
1981 The French Lieu
tenant’s Woman
1982 Sophie’s Choice
1983 Silkwood
1985 Out of Africa
1987 Ironweed
1988 A Cry in the Dark
1990 Postcards from
the Edge
1995 The Bridges of
Madison County
1998 One True Thing
1999 Music of the Heart
2002 Adaptation
2006 The Devil Wears
Prada
2008 Doubt
2009 Julie & Julia
2011 The Iron Lady