Þjóðlíf - 01.01.1991, Side 52
hhhhi
VIÐSKIPTI
Ágætis árangur í leynum
Þýskir bifreiöaframleiöendur
hafa aldrei þessu vant reynt
aö breiöa yfir glæsilegan ár-
angur sinn í markaðssetn-
ingu og sölu. Á sl. ári seldu
þeir í fyrsta skipti þýska bíla
fyrir meira fjármagn í Japan
en Japanir fengu fyrir sína
bíla í Þýskalandi. Um margra
ára skeið hafa þýsku fram-
leiðendurnir kvartað undan
viðskiptahindrunum í Japan
og krafist þess ásamt öðrum
framleiðendum í Evrópu-
bandalaginu að japanskar
vörur yrðu hátt tollaðar í EB.
En nýjustu tölur koma alls
ekki heim og saman við þetta
kvart og kvein. A fyrstu átta
mánuðum sl. árs náðu þýsku
framleiðendurnir Audi, VW,
Porsche, BMW og Mercedes
Benz að selja fyrir 122 millj-
arða króna í Japan, en á
sama tíma seldu Japanir fyrir
um 93 milljarða í Þýskalandi. í
magni eru þessi viðskipti Jap-
önum enn frekar í óhag, því
þeir flytja tiltölulega ódýra bíla
út, meðan þýsku fyrirtækin
selja aðallega eðalvagna og
frekar fínni bíla. Það þýðir að
Japanir græða mun minna á
hverjum bíl en Þjóðverjar...
(Spiegel/óg)
Mercedes í Japan.
Evrópsk-japönsk samvinna
Á kreppukenndum markaði í
tölvubransa og upplýsinga-
tækni ber sífellt meira á
bandalögum japanskra og
evrópskra stórfyrirtækja.
Þegar hefur Fujitsu gengið til
samstarfs við Kienzle í eigu
Mannesmann hringsins og
nú reynir Hitachi að komast á
Evrópumarkaðinn með sams
konar hætti. Þessi japanski
tölvurisi hefur staðið í lang-
vinnum viðræðum við ítalska
Olivetti hringinn um sam-
vinnu eða kaup á hluta. Oli-
vetti hefur átt í erfiðleikum og
hafði verið áformað að segja
upp 7000 af 56000 starfs-
mönnum fyrirtækisins. Viö-
ræður Olivetti við Philips, Bull
og Siemens runnu út í sand-
inn. Hitachi hefur ekki verið
ánægt með sölu hringsins í
Evrópu og vill því koma sér
þar beturfyrir. Hingað tilhefur
Hitachi selt tölvur í Evrópu í
gegnum eigið verslunarfyrir-
tæki og fyrirtækið Comparex,
sem er sameignarfyrirtæki
Siemens og BASF...
(Spiegel/óg)
52 ÞJÓÐLÍF
HEIMSMETHAFAR í VERÐBÓLGU
Fram að þessu hafa yfirgengilega háar verðbólgutölur —yfir 1000%
verðbólga — einungis þekkst íSuður-Ameríku. JVú hafa tvö Evrópuríki
bæst í þennan vafasama hóp óðaverðbólguþjóða -Júgóslavía og Pól-
land.
Hernaðaraðgerðir
gegn gjaldi?
Greiða Saudi- Arabar Banda-
ríkjamönnum fyrir hernaðar-
undirbúning viö Persaflóa-
svæðið? Sérfræðingar giska
á að dvöl herliðsins kosti ár-
lega á bilinu frá 660 til 825
milljarða króna. Ef til átaka
kæmi yrði þetta talsvert meiri
kostnaður. En á sama tíma
hafa valdhafarnir í Riad grætt
verulega á kreppunni. Með
meiri olíuframleiðslu og
hærra verði græða þeir sem
nemur 3300 milljörðum meira
en áður á ársgrundvelli. Það
væri því létt verk fyrir Saudi-
Araba að greiða að öllu leyti
hernaðaraðgerðir Banda-
ríkjamanna, sem þjást af rík-
issjóðshalla. Sumir banka-
menn við Wall Street halda
því fram að kapitalið fljóti í þá
áttina og hafi gert frá því
kreppan hófst. Hins vegar
leggi báðir aðilar ríka áherslu
á að halda slíkum greiðslum
leyndum; Saudi Arabar vilji
fyrir engan mun liggja undir
því orði að kaupa vestrænan
her til að berja á arabískum
bræðrum sínum; Bandaríkja-
menn vilji fyrir engan mun
liggja undir þeim grun að út-
vega hernaðaraðgerðir gegn
greiðslu í dollurum. Þetta eru
því með öllu óstaðfestar
fregnir...
(Spiegel/óg)
Ikea húsgögn
frá Rússíá
Sænska húsgagnafyrir-
tækið Ikea hefur hafið
undirbúning fyrir markað á
framleiðslu sinni í Sovét-
ríkjunum. Ikea er að vél-
væða ríkisrekið hús-
gagnafyrirtæki í námunda
við Leníngrad. Rússarnir
eiga að borga kostnaðinn
með tilbúnum húsgögn-
um. Sovétríkin eru búin
ýmsum kostum fyrir fram-
leiðslu Ikea, —þar eru
miklir skógar fyrir trjáið-
nað og Sovétríkin eru lá-
glaunasvæði. Auk þess
vantaði framleiðslu í stað
þeirrar í fyrrverandi Aust-
ur-Þýskalandi, sem fram-
leiddi á mjög niðursettu
verði. Svíarnir, sem hafa
þann hátt á að selja öðrum
framleiðslufyrirtækjum
rétt til að framleiða vör-
una, ætla líka að standa
fyrir sölu í Sovétríkjunum.
Þeir hafa þegar samið við
tvær verslanakeðjur í
Moskvu og Leníngrad um
sölu á húsgögnum...
(Spiegel/óg)