Þjóðlíf - 01.01.1991, Síða 54

Þjóðlíf - 01.01.1991, Síða 54
Frestun dauðans UMSJÓN: HÁLFDAN ÓMAR HÁLFDANARSON OG ÞURÍÐUR ÞORBJARNARDÓTTIR Kókaín veldur heila- skemmdum Nú þykir sannað að kókaín- neysla getur valdið heila- skemmdum. Það sem hér fer á eftir ætti að vera þeim sem neytt hafa kókaíns áhyggjuefni og jafn- framt fæla þá frá neyslu sem saklausir eru af því óráði en hafa gælt við tilhugsunina. T augalífeðlisfræðingurinn Alvaro Pascual-Leone hefur skýrt frá því að heili kókaín- fíkla rýrni við langvarandi neyslu. Rýrnunin greinist á sérstökum tölvusneiðmynd- um. Þegar myndir af heilabúi fíklanna eru bornar saman við sneiðmyndir af fólki sem ekki hefur neytt efnisins kemur í ljós verulegur munur. Heili fíklanna líkist einna helst þornaðri og samanskroppinni valhnetu í skel sinni. Tauga- virkni í heila fíklanna er enn- fremur talsvert minni en í óskemmdu fólki og kókaín- neytendur fá oft ýmiss konar köst sem rekja má til heila- skemmda. Það eru ekki ný sannindi að eitt sinn skal hver deyja. Það eru hins vegar ný tíðindi að svo virðist sem unnt sé að slá á frest komu mannsins með ljáinn. Niðurstöður rannsóknar sem var gerð við háskóla í Kaliforníu í Bandaríkjunum bendir til að þessi sé raunin. Rannsóknin beindist að Bandaríkjamönnum af kín- verskum uppruna. Fylgst var með dauðsföllum meðal þeirra á árabilinu 1960—1984 og þá kom í ljós afar skýr fækkun dauðsfalla á tilteknum tíma ársins, nánar tiltekið í vikunni fyrir uppskerutunglið. Þá er haldin hátíð sem er helsta sam- verustund hverrar kínverskrar fjölskyldu. Jafnframt kom fram greinileg fjölgun dauðs- falla strax að afstaðinni hátíð- inni. Það styrkir enn frekar þá kenningu að dauðanum sé ein- faldlega slegið á frest þegar mikið liggur við. Þessa varð einkum vart hjá rosknum, kín- verskum konum sem bera hit- ann og þungann af undirbún- ingi hátíðarinnar. Til samanburðar var fylgst með hópi Kaliforníubúa sem ekki tengdust þessari hátíð neinum tilfinningaböndum. Meðal þeirra greindist engin sveifla í dauðsföllum. Syndir mæðranna koma niður á dætrunum Konur sem neyta fituríkrar fæðu meðan þær ganga með meyfóstur sín auka hugsan- lega líkur á því að dætur þeirra fái síðar krabbamein. Rannsóknir við Ríkishá- skólann í Michican í Banda- ríkjunum hafa leitt í ljós að þetta á að minnsta kosti við um mýs. Rannsóknirnar voru gerðar á tveimur hóp- um músa sem fengu misjafn- lega fituríka fæðu og jafn- framt var fylgst með af- kvæmum þeirra. Dætur þeirra músa sem átu matinn þar sem ríflega var stungin tólgin fengu krabbamein fimm sinnum oftar en þær mýs sem aldar voru af mæðr- um sem fengu fitusnauðan mat. Fiturík fæða móður á meðgöngu virðist raska eðli- legri þroskun undirstúku hjá meyfóstrum og líklegt þykir að eftir fæðingu losi gölluð undirstúkan frá sér hormón sem stuðlar að tilteknum krabbameinsafbrigðum í æxlunarkerfi þeirra. 54 ÞJÓÐLÍF

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.