Frjáls verslun - 01.04.2010, Síða 23
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 1 0 23
Forsíðu grein
BÝST VIÐ BREYTINGUM
STEINDÓR PÁLSSON, BANKASTJÓRI LANDSBANKA, NLÍ:
Er framtíðarskipulag bankanna nú komið á
og hver verður hlutur Landsbanka þar í?
Steindór Pálsson: Nei, það tel ég ekki
vera og það má alltaf búast við ein hverj
um breytingum á þessum markaði eins og
öðrum. Landsbankinn ætlar sér að vera
burð a rás í íslensku fjármálalífi. Svo einfalt
er það.
Gagnrýnt er að bankarnir séu fullir af fé en
lítið lánað út. Hver er skýringin á þessu?
SP: Eftirspurn eftir lánum hefur verið lítil.
Stöðnun og óvissa ríkir í hagkerfinu, vextir
hafa verið háir og þetta hefur letj andi
áhrif á eftirspurn og fjárfestingar. Bank
inn er viljugur til að lána til góðra verka
og vonandi fara hjólin að snúast meir hér á
landi á næstunni.
Áttu von á að breytingar verði á eignar
haldi Landsbanka í náinni framtíð?
SP: Ég tel að það gæti verið rétt að skoða
það að fleiri gætu eignast hlut í bankanum
með skráningu í Kauphöll að nokkrum
miss erum liðnum en þó þannig að ríkið
yrði með stóran og virkan eignarhlut í ljósi
þess sem á undan hefur gengið. Í þessu
sam bandi væri t.d. hægt að líta til Noregs
og sjá hvernig þeir unnu sig út úr banka
kreppunni sem þar var fyrir um 20 árum.
En þetta er eitt hvað sem þarf að þroskast á
vettvangi stjórn málanna og mitt hlutverk
og annarra stjórnenda bankans er að reka
bankann vel óháð eignarhaldi.
Stöðnun og óvissa ríkir í hagkerfinu, vextir hafa verið háir og
þetta hefur letjandi áhrif á eftirspurn og fjárfestingar.
ENDURSKIPULAGNINGU EKKI LOKIÐ
BIRNA EINARSDÓTTIR, BANKASTJÓRI ÍSLANDSBANKA:
Er framtíðarskipulag bankanna nú komið á og
hver verður hlutur Íslandsbanka þar í?
Birna Einarsdóttir: Það er oft rætt um það
hvað þurfi margar bankastofnanir á Íslandi.
Ein hverjir segja tvær, aðrir segja þrjár. Mín
skoðun er sú að það verði þrír aðilar á ísl
ensk um bankamarkaði til framtíðar og því lít
ég svo á að endurskipulagningunni á mark
aðn um sé ekki lokið. Við hjá Íslands banka
vilj um vera leiðandi banki í því ferli þegar þar
að kemur.
Gagnrýnt er að bankarnir séu fullir af fé en
lítið lánað út. Hver er skýringin á þessu?
BE. Ég er ekki sammála því sem heyrist oft
þessa dagana að bankinn sé lítið sem ekkert
að lána út. Íslandsbanki hefur lánað 5060
milljarða í ný útlán frá stofnun bankans og
tekið þátt í mörgum áhugaverðum verk efn
um með viðskiptavinum sínum. Hins vegar
er ekkert launungarmál að eftirspurn eftir
fjár magni er mun minni en hún var fyrir hrun,
bæði vegna þess hve vaxtastigið er enn þá hátt
og vegna samdráttar og óvissu í hag kerfinu.
Áttu von á að breytingar verði á eignarhaldi
Íslandsbanka í náinni framtíð?
Skilanefnd Glitnis hefur lýst því yfir að þeir
vilji selja bankann á næstu þremur til fimm
árum. Ég held að það skipti miklu fyrir öll
fjármálafyrirtækin að eignarhald þeirra sé mjög
skýrt. Mér þætti það góður kostur ef bankinn
færi að hluta til á markað og kæmist þannig í
eigu almennings á ný.
Mín skoðun er sú að það verði þrír aðilar á íslenskum banka mark
aði til framtíðar og því lít ég svo á að endur skipulagningunni á
markaðnum sé ekki lokið.
Steindór Pálsson,
bankastjóri Landsbanka.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.