Frjáls verslun - 01.04.2010, Síða 96
96 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 1 0
KOLBRÚN EYDÍS OTTÓSDÓTTIR
reglugerðar- og gæðastjóri Nox Medical
Eftir að ég kom heim úr framhaldsnámi í Þýskalandi hóf ég störf hjá Flögu, sem var nýsköpunarfyrirtæki á sviði
svefnrannsókna, og öðlaðist þar mjög
sértæka þekkingu hvað varðar þróunar-
ferli lækningatækja og skráningu þeirra
á alla helstu markaði. Eftir að Flaga lagði
niður starfsemi hér á landi vegna rekstrar-
erfiðleika, sem mátti rekja m.a. til hárrar
gengisskráningar íslensku krónunnar, stóð
ég á krossgötum varðandi það hvað ég vildi
gera í framtíðinni. Ekki var um margt að
velja hérlendis ef ég hafði áhuga á að nýta
sérfræðiþekkingu mína. Eftir frekar stuttan
umhugsunartíma ákvað ég ásamt nokkrum
fyrrverandi starfsfélögum úr Flögu að stofna
nýtt fyrirtæki frá grunni sem byggðist á
reynslu okkar og þekk ingu. Nox Medical var
stofnað í júní 2006 með það að markmiði
að hanna svefn greiningarbúnað sem hentaði
jafnt börnum sem fullorðnum en á þeim tíma
var ekki til búnaður sem sérstaklega var
hannaður fyrir börn. Í dag starfa ég sem
reglugerðar- og gæðastjóri fyrirtækisins
auk þess að stýra þróunarverkefnum.
Fyrirtækinu hefur gengið mjög vel hingað til
og hlaut tvær viðurkenningar á þessu ári fyrir
framúrskarandi árangur; Nýsköpunarverðlaun
Íslands og Vaxtar sprot ann.“
Eiginmaður Kolbrúnar er Sveinbjörn
Höskuldsson og eiga þau tvo syni. „Það má
geta þess til gamans að ég og maðurinn
minn höfum verið algerlega samstiga varð-
andi nám og starfsvettvang síðan við vorum
saman í bekk í menntaskóla. Eftir útskrift
frá MR lá leiðin í verkfræðideild HÍ og þaðan
í framhaldsnám í verkfræði í Háskólanum
í Karlsruhe í Þýskalandi. Eftir að námi lauk
hófum við bæði störf hjá Flögu og enduðum
með að stofna saman Nox Medical.
Fjölskyldan reynir að nýta íslenska sumarið
vel og kjósum við að ferðast innan lands. Við
förum m.a. austur í Lón þar sem fjöl skylda
mín á jörð og njótum þess að ganga á fjöll
í stórbrotinni náttúrunni auk þess að slaka
á inn á milli. Á veturna er yfirleitt farið í
skíða frí til Evrópu með vinum eða ættingjum
og hefur fjölskyldan stundað snjóbretti í
mörg ár sér til gamans. Um síðustu jól varð
Slóvenía fyrir valinu en þar leigðum við bæði
hús og bíl og keyrðum síðan á skíðasvæðin
ásamt því að skoða landið.
Ég er tiltölulega nýkomin með mótor hjóla-
próf og á orðið tvö hjól, eitt svona til að
skvísast á innanbæjar en hitt er ferðahjól
(dual bike) sem hentar vel til aksturs bæði
á möl og malbiki. Ég fór í frábæra ferð á
sunnanverða Vestfirði síðasta sumar sem
lengi verður í minnum höfð vegna einstaks
veðurs, ýmissa ævintýra og yndislegrar nátt-
úru, en þá var ferðast með tjald og allan
búnað á hjólunum, sem býður upp á mikið
frelsi. Til stendur í sumar að ferðast á
þenn an hátt um hálendi Íslands og hlakka
ég mikið til. Ég er mikil áhugamanneskja
um jóga og hef stundað það töluvert lengi.
Til að festa það betur sem lífsstíl skellti
ég mér í jógakennaranám núna í byrjun
árs sem ég lauk núna í maí og er að fara
að kenna í World Class í sumar. Í haust
á síðan að sækja Egyptaland heim, sigla
á Níl, skoða Kaíró, Lúxor og allar helstu
fornminjarnar.“
Nafn: Kolbrún Eydís Ottósdóttir
Fæðingarstaður: Reykjavík,
23. júlí 1968
Foreldrar: Þorbjörg Gígja,
Ottó Björn Ólafsson
Maki: Sveinbjörn Höskuldsson
Börn: Atli Þór, 17 ára,
Bjarki Freyr, 15 ára
Menntun: Rafmagnsverkfræðigráða frá
Háskóla Íslands (1992), framhaldsnám
(dipl. Ing.) í heilbrigðisverkfræði
(biomedical engineering) við Háskólann
í Karlsruhe, Þýskalandi (1997)
Kolbrún Eydís
Ottósdóttir: „Á
veturna er yfirleitt
farið í skíðafrí til
Evrópu með vinum
eða ættingjum og
hefur fjölskyldan
stundað snjóbretti
í mörg ár sér til
gamans.“
TEXTI: HILMAR KARLSSON MYND: GEIR ÓLAFSSONFólk