Frjáls verslun - 01.11.2009, Qupperneq 27
F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 9 27
Pálína móðir Ingibjargar lést ung og bar andlát hennar að dag-inn áður en Ingibjörg varð eins árs. Þótt lífið hafi lagt þungar byrðar á fjölskylduna fyrstu árin átti Ingibjörg rólega og góða
æsku. Hún gekk í Lækjarskóla og síðan í Flensborg og það var einna
helst að hernámið setti strik í tíðinda lítinn hversdaginn.
Eftir móðurmissinn dvaldi Ingibjörg um skeið í fóstri hjá Hrefnu
Jónsdóttur og Guðmundi manni hennar að Langeyrarvegi 10 eða
allt þar til faðir hennar hóf búskap með Jónínu Sigurrós Scheving
Hallgrímsdóttur. Rósa, eins og hún var kölluð, reyndist Ingibjörgu
afar vel og gekk henni í móður stað. Fjölskyldan bjó fyrstu árin að
Kirkjuvegi 20. Það hús hefur nú verið fjarlægt en það stóð þar sem
gatnamót Vesturbrautar og Norðurbrautar eru nú. Að Kirkjuvegi 20
bjó Ingibjörg til 10 ára aldurs en fluttist þá að Hverfisgötu 17. Það
var því ekki langt að fara þegar hún fluttist nánast beint yfir götuna
þegar þau Sigurbergur hófu búskap að Hverfisgötu 16.
Ingibjörg fór víða með föður sínum, fósturmóður og systur þegar
hún var barn en faðir hennar var vörubílstjóri og vann við vegagerð.
Hann hafði þann háttinn á að flytja fjölskylduna með sér þangað sem
unnið var á sumrin. Fyrsta sumarið var sett aftan á vörubílinn gamalt
boddí af bíl og það flutt þannig á áfangastað. Rósa eldaði matinn fyrir
fjölskylduna í boddíinu fyrsta sumarið sem þau voru í þessum úti-
legum en allt það sumar svaf fjölskyldan í tjaldi. Eftir það hafði Gísli
komið sér upp svolitlum skúr sem hann gat sett á vörubílspallinn og
flutt með sér. Skúrinn var varla stærri en 10 fermetrar og í þessum
húsakynnum bjuggu þau heilu sumrin hér og þar. Ingibjörg mundi
eftir að hafa ,,búið“ í Flóanum, Krýsuvík, Sléttuhlíð og Straumi.
Þegar Ingibjörg gat sjálf farið að sinna launuðum störfum vann
hún meðal annars eitt sumar við netahnýtingar á netaverkstæði og
síðan í Snorrabakaríi við Hverfisgötu í Hafnarfirði og í útibúi Kaup-
félags Hafnfirðinga við Smárahvamm. En einhver varð að hugsa um
börnin eftir að þau fóru að tínast eitt af öðru í heiminn svo hún sinnti
heimilishaldi og barnauppeldi lengst af samhliða verslunarstörfum.
Ingibjörg varð ófrísk að fyrsta barni þeirra Sigurbergs aðeins 17
ára að aldri, líklega nokkru fyrr en áætlað var. Hann var þá rétt að
byrja í menntaskóla og þetta hafði ekki staðið sérstaklega til. En allt
gekk að óskum og fyrstu árin bjó Ingibjörg með stúlkubarnið í for-
eldrahúsum.
Börnin urðu fjögur; Hjördís fædd 1952, Rósa fædd 1957,
Sveinn fæddur 1960 og Gísli Þór fæddur 1965. Þröngt var um
sístækkandi fjölskylduna í kjallaranum á Hverfisgötu 16 þegar
börnin voru orðin þrjú talsins. Til dæmis um það þurfti Sveinn
að sofa í vöggu fram yfir sjö mánaða aldur en þá var hvílan orðin
fulllítil fyrir stráksa. Þægindi sem síðar þóttu sjálfsögð voru af
skornum skammti þarna í kjallaranum. Þar var til dæmis ekkert
heitt vatn eða baðkar og börnin voru böðuð í bala þegar búið var að
hita baðvatnið í pottum. Annars var til dæmis farið í Sundhöllina
eða til velviljaðra vina og ættingja.
Árið 1960 höfðu hjónin reist sér hús í félagi við aðra að Ölduslóð
17 og bjuggu þar á efstu hæðinni þar til þau fluttu á Miðvang 118
árið 1973, sama ár og Fjarðarkaup voru opnuð.
Ingibjörgu leist vel á að fara í „búðarvesen“ þegar hugmyndin kom
upp um að stofna Fjarðarkaup enda hafði hún unnið slík störf, meðal
annars hjá Kaupfélagi Hafnfirðinga, og kunnað vel við þau. Það lá
því beint við fyrir hana að starfa í Fjarðarkaupum þegar þau hjónin
stofnuðu verslunina. Og þar starfaði hún til hinsta dags.
Ingibjörg var alltaf í nánum og góðum tengslum við samstarfs-
fólk sitt, viðskiptavini, fjölskyldu og vini. Hún lifði fyrir líðandi
stund, lét sér alla tíð afar annt um fólkið sitt, hélt traustum
höndum um alla þræði fjölskyldunnar og gætti þess að hlúð væri
af alúð að vina- og fjölskylduböndum. Má segja að Ingibjörg hafi
með gæsku sinni, ræktarsemi og umhyggju búið þannig sjálf um
hnútana að þótt fráfall hennar bæri brátt og óvænt að, geti fjöl-
skylda og vinir kvatt hana í fullri sátt og með einlægu þakklæti
fyrir margar góðar stundir.
Ingibjörg Gísladóttir,
eigandi Fjarðarkaupa
einstök kona
Ingibjörg Gísladóttir fæddist 10. september 1934
á fæðingarheimilinu í Reykjavík en heimili fjöl-
skyldunnar var í Hafnarfirði. Hún var dóttir Pálínu
Þórðardóttur og Gísla Guðmundssonar vörubifreiðar-
stjóra. Ingibjörg lést 7. desember 2009.
Ingibjörg Gísladóttir.