Frjáls verslun - 01.11.2009, Blaðsíða 74
74 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 9
um áramótHvað segja þau ?
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir,
aðstoðarforstjóri Actavis Group
Við horfum bjartsýn
til næsta árs
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir. „Það sem raunverulega
gefur lífinu gildi er meðal annars vinátta, samkennd og
virðing. Efnishyggjan má ekki yfirgnæfa allt.“
Hvað stóð upp úr hjá þínu fyr-
irtæki á árinu þrátt fyrir krepp-
una?
Reksturinn hefur gengið vel, salan
á Bandaríkjamarkaði náð sér mjög
vel á strik á ný, eftir erfitt ár í
fyrra. Einnig náðum við þeim frábæra
árangri að verða fyrst á markað
á Spáni með samheitalyf fyrir
Atorvastatin, mest selda lyf í heimi.
Í hvaða úrbótum er fyrirtæki þitt
nú að vinna?
Við erum stöðugt að vinna að hag-
Rannveig Rist,
forstjóri Rio Tinto Alcan
Missa ekki
sjónar á bjart-
sýninni
Hvað stóð upp úr hjá þínu fyrirtæki á árinu þrátt
fyrir kreppuna?
Góður árangur, metframleiðsla og við keyrðum verksmiðj-
una á fullum afköstum þrátt fyrir lágt álverð.
Í hvaða úrbótum er fyrirtækið þitt núna að vinna?
undirbúningur framleiðsluaukningar, sem mun auka hag-
kvæmni verksmiðjunnar, er á lokastigi. Þar fyrir utan ber
hæst margvíslegar úrbætur á sviði heilbrigðis-, öryggis- og
umhverfismála. Sumar höfum við ráðist í að eigin frum-
kvæði en aðrar til að mæta öflugum kröfum og stöðlum
Rio Tinto.
Hvernig metur þú stöðuna á næsta ári?
Ég óttast að það eigi enn eftir að þrengja að fólki og
fyrirtækjum en er þó vongóð um að viðsnúningur geti
verið í augsýn.
Rannveig Rist. „Ekkert er sjálfgefið, hvorki velgengni né góð lífskjör – mikilvægi
þess að missa ekki sjónar á bjartsýninni.“
Hvaða lærdóm getum við dregið
af núverandi krísu?
Ekkert er sjálfgefið, hvorki velgengni
né góð lífskjör - mikilvægi þess að
missa ekki sjónar á bjartsýninni.
Er krónan búin að vera sem
gjaldmiðill? Ef svo er; hve langt
er í evruna?
Erfitt að segja, en það er að mínu
mati ekkert lögmál að heilbrigð hag-
kerfi geti ekki haft sjálfstæðan gjald-
miðil þótt þau séu smá.
Ef þú ættir að gefa forsætisráð-
herra gott ráð, hvert yrði það?
Að veita skýra og trúverðuga sýn um
hvert við stefnum til að fólk missi
ekki móðinn og haldi ró sinni.
Hvað var minnisstæðast hjá
sjálfri þér á árinu?
Elsta dóttir okkar fór í nám til
útlanda; það var mikil breyting hjá
fjölskyldunni.