Frjáls verslun - 01.11.2009, Blaðsíða 43
F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 9 43
n ý j a í s l a n d
nýrra eigenda Landsbankans, Björgólfs-
feðga. Þrjár blokkir urðu fyrirferðarmestar;
Björgólfsfeðgar, Bónusfeðgar og bræðurnir
í Bakkavör.
framtíðin:
Eflaust spretta upp viðskiptablokkir aftur
á næstu árum, þ.e. samstarf fyrirtækja í
atvinnulífinu við að fjárfesta og kaupa fyr-
irtæki, þegar bankarnir byrja að selja þau
fyrirtæki sem þeir hafa eignast.
Krónan
Krónan féll um 100% í banka-
hruninu. staða hennar speglar
stöðu atvinnulífsins. Hún skapar
ný störf í útflutningi. Nýr gjald-
miðill er ekki í augsýn.
staðan núna:
Krónan á erfitt, hún féll um 100% í
bankahruninu og virðist eiga mjög erfitt
með að styrkjast þrátt fyrir hörð gjaldeyris-
höft. Már Guðmundsson seðlabankastjóri
segir að það geti tekið áratugi fyrir krón-
una að ná aftur því meðalgengi sem hefur
verið undanfarin tuttugu ár. Krónan
speglar stöðu atvinnulífsins. Hún er á
fullu við að skapa ný störf í útflutningi og
fækka störfum í innflutningi. Nýr gjald-
miðill er ekki í augsýn. Mikill meirihluti
er á móti aðild að Evrópusambandinu og
skilyrði myntbandalagsins eru svo ströng
að Íslendingar eiga langt í land með að
uppfylla þau. Allt tal um að taka þurfi upp
evru er gott og gilt – en það leysir ekki
vandann núna. Við verðum að gera það
besta úr krónunni. Ýmsir sjá það fyrir sér
að lausnin sé að binda krónuna við evru en
erfitt er að átta sig á hvaða skiptigengi það
ætti að vera. Evran er á yfir 180 krónur og
dollarinn á yfir 127 krónur. Er eitthvert
vit í að festa krónuna við evru nema hún
styrkist fyrst verulega? Ef hún styrktist
um 30% þá yrði evran á 125 krónur og
dollarinn á 90 krónur. Er það kjörverð
krónunnar? Þá þyrfti atvinnulífið fyrst
að styrkjast mjög mikið. Ennþá er mikill
þrýstingur frá krónunni yfir í alvöru gjald-
miðla og flestir reikna með því að krónan
falli verulega með afnámi gjaldeyrishafta.
Þegar Íslendingar ákváðu að verða hluti af
Evrópska efnahagssvæðinu haustið 1991
og taka upp fjórfrelsið á sameiginlegum
markaði, þ.e. frjálst flæði vöru, þjónustu,
vinnuafls og fjármagns á milli landa innan
svæðisins gleymdist eitt; frjálst flæði fjár-
magns er mjög erfitt með krónunni svo
mikill þrýstingur er á að skipta krónu fyrir
alvöru gjaldmiðla. Sennilega þurfti að
skipta um gjaldmiðil um leið og ákveðið
var að skrifa undir EES.
framtíðin:
Krónan er ekki á
leiðinni í burtu
og nýr gjaldmiðill
er ekki í augsýn. Hún
styrkir núna útflutningsgrein-
arnar en leysir ekki hina stóru glímu
atvinnulífsins við skuldavandann.
Sumir vilja binda krónuna við evru en
þá þyrfti hún fyrst að styrkjast um a.m.k.
30%. Hvenær verður það?
verðtryggingin
Verðtryggingin reynist afleit fyrir
atvinnulífið og heimilin. Ofan á
hana bætast einhverjir hæstu
útlánsvextir í heimi. Ekkert er
hins vegar eins brýnt til að
koma atvinnulífinu í gang og að
lækka fjármagnskostnað.
staðan núna:
Verðtryggingin er afleit fyrir atvinnulífið
og heimilin þegar ekkert er eins brýnt og
að lækka fjármagnskostnað til að koma
4
5
NýJA ÍsLANd
Er Í rAuN
GAmLA ÍsLANd