Frjáls verslun - 01.11.2009, Síða 68
68 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 9
l a x v e i ð i
Verð á laxveiðileyfum er ákaflega misjafnt
eftir ám og tímabilum og segja má að
sumarið 2009 hafi verið hægt að komast
í laxveiði frá um 3000 upp í 5000 krónur
fyrir stangardaginn og upp í allt að 450.000
krónum, en það mun hafa verið verðmiðinn
á dýrustu dögunum sem seldir voru í erlendri
mynt í eftirsóttustu ánum síðastliðið sumar.
Af öðrum veiðiám í dýrasta flokki má nefna
ár eins og Hofsá í Vopnafirði, Vatnsdalsá í
Vatnsdal, Straumfjarðará á Snæfellsnesi og
Laxá á Ásum en sú síðastnefnda var lengi vel
dýrasta laxveiðiá á Íslandi – með aðeins tvær
stangir.
Í Laxá á Ásum var meðalveiðin yfir allt
sumarið á milli átta og níu laxar á stöng á dag
en það þýðir að mokveiði hefur verið á besta
og dýrasta tímanum. Í ám eins og Vatnsdalsá
og einnig í Laxá í Aðaldal er það hins vegar
ekki magnveiðin sem er aðdráttaraflið, heldur
fjöldi stórra laxa yfir 20 pund sem veiðast í
þessum ám á hverju sumri.
Til að gefa smáhugmynd um hvað lax-
veiðiferðirnar geta kostað gluggaði Frjáls
verslun í Söluskrá SVFR fyrir sumarið 2009
og leitaði upplýsinga um verð á veiðileyfum á
heimasíðum veiðileyfasala.
Þriggja daga veiðitúr í Norðurá
Norðurá hefur um árabil verið helsta veiði-
svæði SVFR. Þar kostuðu fyrstu dagarnir í
söluskránni 27.700 krónur stöngin á dag 7.
til 9. júní. Tíu dögum síðar var verðið 53.400
krónur fyrir stangardaginn. Dýrustu veiði-
leyfin í Norðurá kostuðu 135.000 krónur
sl. sumar en í lok veiðitímans í byrjun sept-
ember var verðið komið niður í um 22.000
til 24.000 krónur fyrir stangardaginn. Verð
fyrir fæði og gistingu var 9.900 krónur frá 7.
til 21. júní og á tímabilinu frá 20. ágúst til 1.
september. Yfir hásumarið var verðið 14.500
krónur. Þetta þýðir m.ö.o. að þriggja daga
veiðitúr í Norðurá fyrir eina stöng getur kostað
frá um 96.000 krónum og upp í um 450.000
krónur. Algengt er að tveir veiðimenn séu
saman um stöng í Norðurá, sem og víðar, og
hefur færst í vöxt að menn nýti sér þjónustu
leiðsögumanna. Algengt verð fyrir leiðsögn
sumarið 2009 var frá 35.000 til 40.000
krónur fyrir daginn og hafi veiðimenn nýtt
sér slíka þjónustu gæti þriggja daga veiðitúr
í Norðurá hafa kostað frá rúmum 200.000
krónum og upp í um 570.000 krónur fyrir
utan annan kostnað s.s. vegna eldsneytis og
annarra þátta. Vert er að nefna að verð fyrir
fæði og gistingu í Norðurá hefur verið í lægri
kantinum miðað við margar aðrar ár og
dæmi eru um að allt að 24.000 krónur séu
rukkaðar fyrir fæði og gistingu á sólarhring.
Krossá og Fáskrúð. Svo tekið sé
dæmi um vinsæl tveggja og þriggja
stanga veiðisvæði, sem SVFR bauð upp á
sumarið 2009, má nefna ár eins og Krossá
á Skarðsströnd í Dölum (2 stangir) og
Fáskrúð í Dölum (2-3 stangir). Í Krossá
kostuðu veiðileyfin frá 9.900 krónum fyrir
stangardaginn í byrjun veiðitímans og upp
í 26.900 krónur. Seld eru tveggja daga holl
og sjá veiðimenn sjálfir um matargerð en
húsgjald er innifalið í veiðileyfunum. Ein
stöng í tvo daga í Krossá kostaði því frá
tæpum 20.000 krónum og upp í tæpar
54.000 krónur.
Í Fáskrúð er einnig veitt í tvo daga í
senn og þar kostuðu veiðileyfin frá 21.500
krónum og upp í 37.900 krónur. Veiðiferðin
kostaði því frá 43.000 krónum og upp í
tæpar 76.000 krónur fyrir stöngina og er
fæðiskostnaður þá ótalinn.
FishPal.com
Á veiðileyfavefnum FishPal.com hafa nú verið
auglýst veiðileyfi í vinsælar og eftirsóttar ár
eins og Hofsá í Vopnafirði og Straumfjarðará
á Snæfellsnesi sumarið 2010. Veiðileyfin eru
verðlögð í sterlingspundum.
Hofsá. Í boði í Hofsá eru m.a. þriggja
daga holl í boði 5. til 8. júlí og 12. til 17. júlí
sem er fráleitt dýrasti tíminn í ánni. Verðið
á fyrra hollinu, 1 stöng í þrjá daga, er 550
pund eða rúmlega 110.000 krónur dagurinn
og er fæði og gisting innifalin í því verði.
Fyrir dagana í síðara hollinu er verðið 750
pund eða um 152 þúsund krónur dagurinn
miðað við gengisskráningu 24. nóvember sl.
Veiðiferðin í Hofsá gæti því kostað frá 330
þúsund krónum og upp í rúmar 450 þúsund
krónur fyrir stöngina og er kostnaður vegna
ferða til og frá veiðisvæðinu og þóknun til
leiðsögumanna ekki innifalin í því verði.
Sennilega er verðið síðan allt að því tvöfalt
hærra á dýrasta tímanum.
Straumfjarðará. Í Straumfjarðará eru
auglýst til sölu tvö holl í júní, 21. til 24. júní
og 28. júní til 1. júlí. Verðið er 510 til 590
pund fyrir stöngina sem samsvarar 103.000
til 120.000 krónum. Eftir því sem líður á
sumarið hækkar verðið hins vegar skarpt
og 26. til 29. júlí og 2. til 5. ágúst er verðið
1020 pund eða um 205 þúsund krónur fyrir
stöngina. Nokkru síðar eða 9. til 12. ágúst er
boðað verð 995 pund eða rúmar 200 þúsund
krónur fyrir stangardaginn. Veiðiferðin í
Straumfjarðará á þessum tímabilum gæti
því kostað frá 310.000 krónum og upp í
rúmar 600 þúsund krónur. Fæði og gisting er
innifalin en annað ekki.
Miðfjarðará. Á FishPal.com er einnig
verið að bjóða veiðileyfi í Miðfjarðará 19. til
22. júlí, sem ekki er besti tíminn í ánni, og
verðið er 1.190 pund eða sem samsvarar um
240 þúsund krónum fyrir stangardaginn.
Ytri- og Eystri-Rangá. Veiðileyfi í Ytri-
og Eystri-Rangá á tímabilinu 12. til 19.
júlí, sem sömuleiðis er ekki besti og dýrasti
tíminn, kosta á FishPal.com 975 til 1.035
sterlingspund eða um 197 þúsund til 210
þúsund fyrir stangardaginn. Þriggja daga
veiðiferðir í þessar þrjár ágætu ár gætu því
kostað frá um 600 þúsund krónum og upp
í 720 þúsund krónur og það ekki á besta
veiðitímanum.
Hafralónsá. Loks má nefna að samkvæmt
upplýsingum um veiðileyfaverð í Hafralónsá í
Þistilfirði, sem hefur átt vaxandi vinsældum
að fagna, er verðið frá um 22.000 krónum í
byrjun veiðitímabilsins og upp í um 100.000
krónur fyrir dagana 13. til 16. júlí. Ekki tókst
að afla upplýsinga um verðið frá 16. júlí til
15. ágúst, sem er dýrasti veiðitíminn, en 16.
ágúst er verðið komið í 80.000 krónur fyrir
stöngina og lægst er það í lok veiðitímans eða
um 21.000 krónur fyrir stangardaginn.
verð á veiðileyfum frá 5 þúsund krónum
upp í 450 þúsund krónur dagurinn