Frjáls verslun - 01.11.2009, Blaðsíða 84
84 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 9
um áramótHvað segja þau ?
Ragnheiður Birgisdóttir, framkvæmdastjóri Nordica Spa
Hugsa vel um sjálfan sig og sína
Hvað stóð upp úr hjá þínu fyrirtæki á
árinu þrátt fyrir kreppuna?
Árið 2009 kemur betur út hjá okkur en
2008. Mikil þátttaka hefur verið á öllum
okkar námskeiðum í heilsuræktinni og hafa
þau verið full síðan í lok árs 2008. Greinilegt
er að fólk hugar betur að heilsunni og er
duglegra að mæta í ræktina en áður.
Í hvaða úrbótum er fyrirtæki þitt nú að
vinna?
Við þurfum eins og önnur fyrirtæki að fylgjast
vel með öllum kostnaðarliðum og halda þeim
í skefjum eins og hægt er án þess að það
bitni á þjónustunni. Einnig þarf að finna nýjar
leiðir til að skapa tekjur því ekki er endalaust
hægt að hækka verð.
Hvernig metur þú stöðuna á næsta ári?
Það virðast skiptar skoðanir á því hvað tekur
við á næstu árum en við erum að öllum
líkindum að ganga inn í ákveðið stöðnunar-
skeið þar sem lítið verður um fjárfestingar,
minni kaupmáttur, krónan veik og ferðalög
dýr. Veik króna getur vissulega styrkt okkar
stöðu þar sem fólk eyðir meiri tíma og pen-
ingum hér heima.
Hvaða lærdóm getum við dregið af
núverandi krísu?
Ég held að allir hafi haft gott af því að þurfa
aðeins að hægja á sér í lífsgæðakapphlaup-
inu. Hugsa betur um það sem skiptir máli
í lífinu og hugsa vel um sjálfan sig og sína
nánustu.
Er krónan búin að vera sem gjald-
miðill? Ef svo er; hve langt er í evruna?
Það er allavega einhver tími þar til evran
verður tekin formlega upp en það gerist ekki
strax.
Ef þú ættir að gefa forsætisráðherra
gott ráð, hvert yrði það?
Mér finnst að það mætti upplýsa almenn-
ing betur um hvaða úrbótum ríkisstjórnin
er að vinna að. Það þarf að koma með
einhverjar alvöru lausnir fyrir heimilin í
landinu og koma í veg fyrir mikla óvissu og
óöryggi.
Hvað var minnisstæðast hjá sjálfri
þér á árinu?
Ég held að það sem stendur upp úr á
þessu ári sé þrautseigja og baráttuvilji.
Þetta rúma ár er búið að vera erfitt og
maður hefur þurft að sýna meiri styrk og
þrautseigju en nokkru sinni fyrr. Það þýðir
ekkert að gefast upp. Ég er bjartsýnis-
manneskja að eðlisfari og gefst ekki auð-
veldlega upp, hvorki í leik né starfi.
Ragnheiður Birgisdóttir. „Ég held að það
sem stendur upp úr á þessu ári sé þraut-
seigja og baráttuvilji.“
Hvað stóð upp úr hjá þínu
fyrirtæki á árinu þrátt fyrir
kreppuna?
Útflutningur. Í þessum gífurlega
samdrætti, sem varð á árinu
í sölu ökutækja í landinu eða
rúm 80%, snerum við leiknum
við. Okkur tókst að selja úr
landi á fjórða hundrað bíla og
yfir eitt hundrað bif- og fjórhjól
á verði sem var mjög svo við-
unandi í erlendri mynt, að allir
gátu vel við unað.
Í hvaða úrbótum er fyrirtæki
þitt nú að vinna?
Við hófum niðurskurð innan
fyrirtækisins strax í upphafi árs
2008 og erum enn að. Erum að
gera fyrirtækið straumlínulag-
aðra, ákvörðunartökur einfaldari,
virkja starfsfólk í sparnaði og
allar hugsanlegar leiðir reyndar.
Þó höfum við verið að bæta í
þjónustu við viðskiptavini okkar
með góðum árangri.
Hvernig metur þú stöðuna á
næsta ári?
Ekki eru nú bjartar horfur á
komandi ári. Ekki er ríkisvaldið
að reyna að örva atvinnulífið á
neinn hátt heldur allt gert til að
íþyngja því. Það er nú einhvern
veginn þannig í öllum hagkerfum
að við þyngri skattabyrðar hægir
á öllu og tekjur ríkisins minnka,
neðanjarðarhagkerfið blómstrar
hvort sem mönnum líkar betur
eða verr.
Hvaða lærdóm getum við
dregið af núverandi krísu?
Við hverja niðursveiflu og krísur
Geir Gunnarsson, forstjóri Bernhard
Hagkerfi okkar er ekki búið
undir það að taka upp evru