Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2009, Page 93

Frjáls verslun - 01.11.2009, Page 93
um áramótHvað segja þau ? F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 9 93 Gestur G. Gestsson, forstjóri SKÝRR Hvað stóð upp úr hjá þínu fyrirtæki á árinu þrátt fyrir kreppuna? Miðvikudaginn 18. nóvember síðastliðinn voru Eskill, Kögun, Landsteinar Strengur og Skýrr sameinuð undir nafni Skýrr. Rekstur fyrirtækjanna allra var með miklum ágætum þrátt fyrir niðursveifluna í atvinnulífinu. Slíkur árangur næst ekki nema með samhentu átaki frábærs starfsfólks, sem sýnir aðhald og útsjónarsemi í rekstri og lagar sig snöggt og vel að gjörbreyttum aðstæðum á mark- aði. Í hvaða úrbótum er fyrirtæki þitt nú að vinna? Sameiningin er skiljanlega langstærsta verk- efnið innanhúss í augnablikinu. Sameiningin felur í sér flutninga á mannskap, sameiningu vinnustöðva, samþættingu verkefnahópa, breytta ásýnd, endurskipulagningu vöruúr- vals og svo framvegis. Vissulega fylgir sam- einingunni ákveðin hagræðing, en hún var þó ekki forsendan. Framar öðru var ástæða sameiningarinnar vilji til að skapa sterka einingu, sem hefur kunnáttu og slagkraft til að veita viðskiptavinum fyrsta flokks þjón- ustu á öllum sviðum upplýsingatækni. Hvernig metur þú stöðuna á næsta ári? Ýmis teikn eru á lofti um að við séum við það að nálgast botn niðursveiflunnar. Hvort sem það er rétt eða ekki, þá er ég sann- færður um að viðspyrnan upp á við verður öflug. Fyrirtæki hafa tekið mjög hressilega til í sínum rekstri og viðað að sér hugmyndum og sóknarfærum. Ég skynja sóknarhug í samfélaginu, jafnt hjá stjórnendum og starfsfólki fyrirtækja og stofnana. Fyrirtækin í landinu standa sig vel í dag og munu gera það áfram. En framar öðru er það fólkið í landinu, sem stendur sig frábærlega við erf- iðar aðstæður með takmörkuð úrræði. Hvaða lærdóm getum við dregið af núverandi krísu? Allt hefur upphaf og endi, jafnt góðæri sem niðursveiflur. Aukið gegnsæi, bætt eftirlit og stífari leikreglur fyrir viðskiptalífið eru meðal ávaxta kreppunnar. Atvinnulífið mun fara varlegar í framtíðinni. Það er annars vegar mikilvægt að halda áfram að virkja þann fít- onskraft sem býr í íslensku þjóðinni og hins vegar að halda áfram að auka fjölbreytni og ýta undir vaxtarsprota og nýsköpun í íslensku atvinnulífi. Er krónan búin að vera sem gjald- miðill? Ef svo er; hve langt er í evruna? Íslenska krónan er agnarsmár og máttvana gjaldmiðill. Dramatískar gengissveiflur und- anfarinna mánaða hafa glögglega leitt það í ljós. En upptaka evru er auðvitað illmöguleg án aðildar að Evrópusambandinu. Evran er mikilvægt pólitískt tæki á vettvangi ESB og hún verður ekki aðskilin frá spurningunni um aðild að sambandinu. Persónulega er ég hlynntur inngöngu í Evrópusambandið og upptöku evru, en það veltur að sjálfsögðu á þeim samningum og kjörum sem í boði eru. Ef þú ættir að gefa forsætisráðherra gott ráð, hvert yrði það? Heilræði eru ódýr og yfirleitt meira fram- boð af þeim en eftirspurn. Bandaríska gamanleikaranum George Burns fannst það alltaf synd og skömm að fólkið með öll bestu ráðin væri upptekið við að aka leigubílum og klippa hár. Ég segi pass við þessari spurningu. Hvað var minnisstæðast hjá sjálfum þér á árinu? Ég lét af störfum hjá einu frábæru fyrirtæki til að taka við stöðu forstjóra hjá öðru frá- bæru fyrirtæki. Þau vistaskipti standa óneit- anlega upp úr. Fólkið í landinu stendur sig frábærlega við erfiðar aðstæður Gestur G. Gestsson, forstjóri SKÝRR.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.