Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2009, Blaðsíða 95

Frjáls verslun - 01.11.2009, Blaðsíða 95
um áramót F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 9 95 Árni Oddur Þórðarson, stjórnarformaður Marels Mikilvægt að nálgast viðfangsefnin á næsta ári með jákvæðu hugarfari Hvað stóð upp úr hjá þínu fyrirtæki á árinu þrátt fyrir kreppuna? Snörp og vel heppnuð við- brögð stjórnenda og starfsfólks Marels við breyttum aðstæðum standa upp úr. Hagræðing í rekstri og endurskipulagning fjármála félagsins var krefjandi verkefni. Síðustu árin var ráðist í vel heppnaðar yfirtökur, í ár var áhersla lögð á hagræði og treysta samkeppnisstöðu kjarna- rekstrar. Erlendir og innlendir hluthafar deila með stjórnendum félagsins að framundan séu áhugaverð ár í rekstri Marels. Í hvaða úrbótum er fyrirtæki þitt nú að vinna? Í dag er megináhersla á að hagnýta þá sterku stöðu sem Marel er í á mörkuðum sínum. Þrátt fyrir bakslag í efnahagslífi hefur félagið ekki dregið úr rann- sóknum eða þróun og mun því kynna mikið af nýjum vörum á næstunni. Áfram verður unnið að hagræðingu og samþætt- ingu. Við sjáum mikil tækifæri til þess að vaxa frekar með arðbærum innri vexti. Hvernig metur þú stöðuna á næsta ári? Árið 2010 verður að mörgu leyti erfitt ár fyrir okkur Íslendinga. Árið mun að öllum líkindum marka botninn í kreppunni, en á sama tíma er það sá tíma- punktur þegar ástandið fer að batna að nýju. Það er mikilvægt að við nálgumst viðfangsefnin á næsta ári með jákvæðu hugarfari. Hvað Marel varðar met ég það svo að árið 2009 hafi verið ár endurskipulagningar og framundan munum við sjá arðbæran vöxt. Hvaða lærdóm getum við dregið af núverandi krísu? Ísland er hluti af stærri heild. Mikilvægasti lærdómurinn er að við verðum að stunda hér atvinnustarfsemi sem byggir á raunverulegri samkeppnisstöðu á heimsvísu. Við þurfum að gefa okkur góðan tíma til að leggja traustar undirstöður. Horft fram á veginn þýðir það að við verðum að leggja enn ríkari áherslu á menntun, nýsköpun, rannsóknir og þróun. Það verða undirstöður farsæls atvinnulífs. Er krónan búin að vera sem gjaldmiðill? Ef svo er; hve langt er í evruna? Kostnaður við að halda úti örmyntinni er einfaldlega of hár. Að sjálfsögðu kemur það útflutn- ingsfyrirtækjum til góða nú að krónan sé lágt skráð á sama tíma og þau geta fjármagnað sig á lágum alþjóðlegum vöxtum á móti tekjumyntum sínum. Það réttir þá af allan þann kostnað sem slík félög báru fyrri hluta þessa áratugar af of háu gengi. Félög með innlendar tekjur munu aldrei bera vexti þá sem nú er miðað við hér á landi, sem eru hærri en ávöxtunar- krafa sem gerð er til hlutabréfa á heimsvísu. Hinn augljósi val- kostur við krónuna er að taka upp evru. Ég tel ekki farsælt að gera það nema með inngöngu í Evrópusambandið. Ef þú ættir að gefa for-sæt- isráðherra gott ráð, hvert yrði það? Það hefur margt áunnist í vinnu stjórnvalda við að endurreisa íslenskt efnahagslíf að und- anförnu. Það er mikilvægt að halda áfram þeirri vinnu í sam- starfi við vinaþjóðir okkar sem vilja leggja okkur lið. Ég verð að viðurkenna að ég hef ákveðnar áhyggjur af þeim skattkerfis- breytingum sem nú standa fyrir dyrum, það er fullur skilningur á því að skattar þurfa að hækka en það er miður ef einfaldleika kerfisins er fórnað. Að sama skapi hefði ég viljað leggja meiri áherslu á að draga úr ríkis- útgjöldum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.