Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2009, Blaðsíða 101

Frjáls verslun - 01.11.2009, Blaðsíða 101
að sér aðalhlutverkið í kvikmyndaútgáfunni. Gibson hafði ekki leikið í kvikmynd í sex ár eða síðan hann lék í The Singing Detective (2003). Eins og flestum er kunnugt hefur mikið gengið á í einkalífi Mel Gibsons og segja sumir að hann hafi verið kominn á svartan lista í Hollywood. Ástæðurnar eru tvær. Hann var tekinn blindfullur undir stýri árið 2006 og lét öllum illum látum, hótaði lögreglumönnum og úthúðaði gyðingum. Var hann handjárnaður og fluttur á lögreglustöð og síðar dæmdur í háa fjársekt. Slúðurtímaritin voru rétt búinn að missa áhuganum á Gibson þegar ekki síðra hneyksli átti sér stað. Eiginkona hans, Robin, sem hann á sjö börn með, skildi við hann þegar hann fór að vera með rússneskri söngkonu, Oksönu Grigorievu. Þetta eru hneyksli sem bandarískur almenningur hefur ekki fyrirgefið Gibson. Spurningin er hvort Campbell taki áhættu með því að hafa Mel Gibson í burðarhlutverkinu. DeNiro hætti við á síðustu stundu Mótleikari Mel Gibsons í Edge of Darkness átti að vera Robert DeNiro, sem hafði samþykkt að taka að sér hlutverk CIA njósnara sem hefur það hlutverk að eyða gögnum svo Thomas Craven eigi erfitt með að rannsaka dauða dóttur sinnar. Tökur hófust um mitt ár 2008 og þá strax komu upp erfiðleikar, Robert DeNiro mætti ekki til leiks. Umboðsmaður hans lét hafa eftir sér að um hinn fræga „listræna ágreining“ væri að ræða, en sumir telja að DeNiro hafi alls ekki viljað leika á móti Mel Gibson sem verður þó að teljast ólíklegt. Meðan verið var að leita að leikara í stað DeNiro héldu tökur áfram og að lokum var það breski karakterleikarinn Ray Winstone, sem fékk hlutverkið. Mel Gibson lætur ekki mótlætið hafa áhrif á sig lengur og er þegar búinn að leika í annarri kvikmynd, gamanmyndinni The Beaver, sem Jodie Foster leikstýrir. Þar leika hann og Foster hjón sem eiga son sem hagar sér undarlega. Þessa dagana er Gibson að leika í Under and Alone sem fjallar um mótorhjólatöffara sem í tuttugu ár hefur stundað njósnir. Glæsilegur leikstjóraferill er hins vegar í biðstöðu eins og er. Um það bil eitt ár er frá því að tökum á Edge of Darkness lauk og átti í fyrstu að sýna hana á þessu ári en frumsýningu var frestað til 29. janúar. Hér á landi verður hún tekin til sýningar 5. febrúar. í leit að dótturmorðingja KVIKMYNDAFRÉTTIR F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 9 101 Brim Ekkert lát er á sýningum á nýjum íslenskum kvikmyndum. Þegar eru hafnar sýningar á Bjarnfreðarsyni og Mamma Gógó verður tekin til sýningar á nýársdag. Þann 15. janúar verður síðan Brim frumsýnd. Myndin fjallar um áhöfn línubátsins Brims RE 29, menn sem hafa unnið saman lengur en nokkur þeirra kærir sig um að muna. Nótt eina vakna bátsverjar þegar einn félagi þeirra tekur eigið líf. Til að fylla skarð hans er ung kona ráðin í næsta túr. Vera hennar um borð opinberar þá bresti sem myndast hafa í brotthætt jafnvægi sem ríkt hefur. Ágreiningur milli áhafnarmeðlima byrjar að vinda upp á sig og spennan stigmagnast. Þegar fátt virðist vera því til fyrirstöðu að upp úr sjóði gefur vélin sig og bátinn rekur stjórnlaust í átt að stormi. Leikstjóri er Árni Ólafur Ásgeirsson, en hann leikstýrði hinni ágætu mynd Blóðbönd fyrir þremur árum. Í aðalhlutverkum eru Ingvar E. Sigurðsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Víkingur Kristjánsson, Gísli Örn Garðarsson, Ólafur Egilsson, Ólafur Darri Ólafsson og Björn Hlynur Haraldsson. Christopher Plummer og Helen Mirren í hlutverkum hjónanna Leo og Sofya Tolstoy í The Last Station. Endastöðin Langt er síðan Christopher Plummer hefur leikið burðarhlutverk í kvikmynd. Þessi ágæti leikari, sem varð 80 ára 13. desember sl., hefur samt sett sitt mark á kvikmyndasöguna og leikið mörg góð hlutverk, en einnig átt sína slæmu daga. Hlutverk hans í kvikmyndum og sjónvarpi eru hátt í 200 talsins. Í The Last Station er Plummer í aðalhlutverki á móti Helen Mirren. Leikur hann skáldjöfurinn Leo Tolstoy og Mirren eiginkonu hans, Sofyu. Lýsir myndin síðustu árunum í lífi Tolstoys. Hann er sýndur sem ern karl sem enn skrifar og hefur gaman af að fara á hestbak. Meginþema myndarinnar er sú lífsstílsbreyting hans að vilja lifa meinlætalífi og að láta af hendi aðalstign og gefa þjóðinni eigur sínar. Eiginkona hans til 50 ára sér veröld sína í rúst og er ekki tilbúin að samþykkja lífsstílinn sem framundan er. Í öðrum hlutverkum eru James McAvoy, Paul Giamatti og Anne-Marie Duff. Leikstjóri og handritshöfundur er Michael Hoffman. Tony Leung leikur stríðsmanninn Zhou Yu í Red Cliff. Rauði kletturinn Kínverski leikstjórinn John Woo, sem hefur gert garðinn frægan í Hollywood í spennumyndum á borð við Face/Off, Mission Impossible II og Paycheck, sneri aftur á heimaslóðir fyrir tveimur árum og hóf gerð stórvirkisins Red Cliff (Chi bi) sem er dýrasta kvikmynd sem gerð hefur verið í Kína. Myndin var sýnd í tveimur hlutum í Asíu í fyrra og á þessu ári og naut gífurlegra vinsælda og hefur fengið mörg eftirsótt kvikmyndaverðlaun í Asíu. Nú er komið að Vesturlandabúum að sjá þetta stórvirki en því miður fáum við ekki að sjá, í fyrstu yfirferð, báðar myndirnar þar sem John Woo hefur klippt myndirnar í eina kvikmynd sem er rúmlega tveggja og hálfs tíma löng. Þannig var hún frumsýnd vestan hafs í upphafi desember. Red Cliff gerist á fjórðu öld í Kína og er byggð á skáldsögu sem skrifuð var á 15. öld og greinir frá blóðugri valdabaráttu þriggja konungdæma. Í aðalhlutverkum eru margar af stærstu kvikmyndastjörnum Kínverja, má þar nefna Tony Leung, Takeshi Kaneshiro, Zhand Fengyi, Chang Chen og Zhao Wei.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.