Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.01.2014, Qupperneq 34

Læknablaðið - 01.01.2014, Qupperneq 34
34 LÆKNAblaðið 2014/100 Y F i R l i T S G R E i n Mér er bæði ljúft og skylt vegna aðkomu minnar að fræðslumálum lækna á árunum 1985-2001 að skrifa nokkur orð um tilurð janúar- námskeiðs Námskeiðs- og fræðslunefndar LÍ (Læknafélags Íslands) og LR (Læknafélags Reykjavíkur) og framhaldsmenntunarráðs læknadeildar Háskóla Íslands, Læknadaga. Fyrsta námskeiðið var haldið 1995 og er það upphaf Læknadaga þó að námskeiðið bæri ekki það nafn fyrr en árið 2000. Bakhjarl þess var framlag Náms- sjóðs lækna til fræðslustarfsemi læknafélaganna. Saga námssjóðs- ins hefur ekki verið skrifuð svo mér sé kunnugt um og munu þessi skrif mín því miður ekki bæta neinu við það sem áður hefur verið birt. Það var okkur í fræðslunefndinni alveg ljóst að við vorum aðeins að taka við keflinu og bera það um tíma og njóta þess sem áður hafði verið gert. Það kom oft upp í hugann hve mikið hafði gerst hjá lækna- félögunum á 7. áratugnum sem hafði skilað góðu í við- haldsmenntun lækna. Víst er að það var engin tilviljun heldur unnið að því hörðum höndum. Árið 1961 kom fé frá „heilbrigðisstjórninni“ og Tryggingastofnun ríkis- ins til LÍ, til þess að halda fyrsta haustnámskeið lækna- félaganna „fyrir praktíser- andi lækna og héraðslækna“ (Læknablaðið 1961; 45: 189) og fé var tryggt úr ríkissjóði til að standa straum af slíkum námskeiðum næstu árin. Árið 1962 var Náms- sjóður lækna stofnaður í samningum við Sjúkrasamlag Reykjavík- ur. Námssjóður sjúkrahúslækna var stofnaður 1966, læknar semja um námsferðir til útlanda 1966. Árið 1960 var skipulagsskrá fyrir Domus Medica staðfest af forseta Íslands (Læknablaðið, Handbók lækna 1983; 2) og Domus Medica var tekið í notkun 1966. Árið 1985 hafði Námskeiðs- og fræðslunefndin verulegar fjár- hæðir frá Námssjóði lækna til ráðstöfunar í fræðslustarfsemi lækna og fundaraðstöðu í Domus Medica sem hún mátti ráðstafa að vild. Reglugerð um Námssjóð lækna frá 1.1. 1975 var birt í Lækna- blaðinu, Handbók lækna 1981-82; 1. Þar kom fram að verið var að sam- eina „Námssjóð lækna sem stofnaður var samkvæmt ákvæðum 16. greinar samnings Læknafélags Reykjavíkur og Sjúkrasamlags Reykjavíkur frá 18. apríl 1962 og Námssjóðs sjúkrahúslækna sem stofnaður var vegna þeirra lækna sem sögðu sig úr launakerfi opinberra starfsmanna í maí 1966 eins og segir í reglugerð þess sjóðs“. Í 5. grein, 2. málsgrein reglugerðarinnar stendur: „Stjórn sjóðsins er heimilt að veita námskeiðs- og fræðslunefndum LR og LÍ styrki til fræðslustarfsemi á vegum félaganna sem nemur allt að 10% af óskiptum höfuðstól næsta árs á undan.“ Höfuðstóll sjóðsins var myndaður af hluta framlags félags- manna hans og ónýttum rétti þeirra til úttektar úr honum, auk ávöxtunar af inneignum hans. Þannig hafði árið 1985 safnast upp góður höfuðstóll sem Námskeiðs- og fræðslunefnd LR og LÍ mátti nýta til fræðslustarfsemi félaganna. Árlega sóttu mörg sérgreina- félög lækna og einstök svæðafélög um styrki til nefndarinnar. Kom ekki til þess á meðan ég sat í nefndinni að neita þyrfti slíkri umsókn. Hætt var að greiða í sjóðinn 1995 og voru sjóðfélögum greiddar út inneignir í honum. Þá stóð eftir það fé sem sjóðurinn hafði eign- ast með starfsemi sinni. Á aðalfundi LÍ sama ár, sem haldinn var í Hlíðasmára í Kópavogi, var samþykkt ályktun til stjórna LÍ og LR um „að Námssjóður lækna verði áfram til. Stjórnir félaganna skipi starfshóp til að gera tillögur um breytingar á reglugerð og tilgangi sjóðsins til samræmis við breyttar aðstæður lækna, enda verði meginmarkmiðum sjóðsins haldið.“ Í framhaldi skipuðu stjórnirnar nefnd sem í voru Atli Dagbjartsson sem var formaður hennar, Árni Björnsson, Haukur Magnússon og Steinn Jónsson. Nefndin fylgdi ályktunartillögunni eftir og lagði til að sjóðurinn yrði lagður niður og eignir hans yrðu stofnfé nýrrar stofnunar, Fræðslustofnunar lækna. Samdi nefndin tillögu að reglugerð fyrir hana. Var fyrsta reglugerð Fræðslustofnunar lækna samþykkt á aðalfundi LÍ sem haldinn var í Borgarnesi 26. og 27. september 1997. Þar varðveittist vel tilgangur Námssjóðs lækna, að styrkja fræðslustarf læknafélaganna. Árið 1985 var ég tilnefndur í Námskeiðs- og fræðslunefnd LÍ og LR á sameiginlegum fundi stjórna félaganna og 1988 skipaður formaður hennar. Hlutverki nefndarinnar lýsir Pétur Lúðvígsson, þáverandi formaður nefndarinnar, þannig í viðtali við Læknablaðið (Fréttabréf 1984; 2: 12. tbl.). „Fræðslunefndin gegnir í rauninni þríþættu hlutverki. Í fyrsta lagi sér hún um að halda haustnám- Tilurð Læknadaga Stefán b. Matthíasson heimilislæknir Stefán sat í aðalstjórn LR 1982-84, í Námskeiðs- og fræðslunefnd LÍ og LR 1985-98, formaður frá 1988, - í stjórn Fræðslustofnunar lækna 1997-2001, formaður. Í stjórn sjálfseignarstofnun- ar Domus Medica 1994-96. Fulltrúi LÍ í framhaldsmenntunarráði læknadeildar Háskóla Íslands 1991-98. Í siðanefnd LÍ, varamaður 2000-2001, og aðal- maður 2001-2012. Kjörinn heiðurs- félagi Læknafélags Íslands á aðalfundi LÍ í september 2008. LÆKNAbLAðið hefur komið út síðan 1915 og í þessum 100. árgangi blaðsins eru yfirlitsgreinar sem ritstjórnin hefur kallað eftir af því tilefni. Höfundar greinanna skrifa um ýmis málefni sem snerta lækna, félagsleg, söguleg og fræðileg.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.