Læknablaðið - 01.01.2014, Qupperneq 44
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
44 LÆKNAblaðið 2014/100
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Ragnar Freyr Ingvarsson hefur verið
búsettur um þriggja ára skeið í Lundi í
Svíþjóð og stundað sérnám í gigtarlækn-
ingum. Hann var áður orðinn vel þekkt-
ur meðal matgæðinga hér heima fyrir
skemmtilegt blogg sitt um matargerð og
sú ástríða hefur einungis magnast síðan
og birtist nú fyrir jólin í bókinni Læknir-
inn í eldhúsinu þar sem Ragnar Freyr
eldar allar uppáhaldsuppskriftir sínar,
bæði þær sem þegar hafa birst á blogginu
og fjölmargar nýjar og áður óséðar. Hann
liggur heldur ekki á skoðunum sínum á
kjörum íslenskra lækna og kostum þess
að búa og starfa í Svíþjóð.
Læknablaðið sló á þráðinn til Ragnars
Freys þar sem hann hefur undanfarið ár
staðið í ströngu í doktorsnámi í gigtar-
lækningum og eldað veislurétti á hverju
kvöldi fyrir fjölskyldu og vini.
Við hefjum samtalið með því að spyrja
hvernig það hafi komið til að hann ákvað
að gefa út matreiðslubók samhliða námi
og starfi í læknisfræðinni.
„Ég byrjaði að vinna að bókinni fyrir
rúmu ári síðan, í byrjun nóvember 2012.
Þá hafði Tómas Hermannsson útgefandi
Sagna samband við mig í gegnum
Facebook og spurði hvort ég hefði ekki
áhuga á því að gefa út bók. Og það hélt ég
nú. Þannig að þá var bara hafist handa. Ég
safnaði saman uppáhaldsuppskriftunum
af blogginu mínu – rúmlega 130 – og svo
bætti ég um 80-90 uppskriftum við af því
sem mér datt í hug. Svo var bara að bretta
upp ermarnar og byrja að elda – ég hafði
bara úr kvöldum og helgum að spila þar
sem ég er í fullu starfi á gigtardeildinni á
Háskólasjúkrahúsinu í Lundi.“
Enginn á einkaleyfi á uppskriftum
Verkefnið var þó ekki alveg svona einfalt
því Ragnar Freyr eldaði aftur allar upp-
skriftirnar sem birst höfðu á blogginu til
að hægt væri að taka góðar myndir af
tilbúnum réttunum og skrá hráefnalistann
nákvæmlega. Hann segir uppskriftirnar
allar sínar eigin enda sé það eðli upp-
skriftar að þegar kokkurinn hefur farið
um hana höndum þá er hún hans.
„Margar uppskriftanna eru sígildar
eins og til dæmis spaghetti bolognese. Ég
á erfitt með að segja að sú uppskrift sé frá
mér komin en engu að síður þá er þetta
mín túlkun á sígildri uppskrift – ég hef
lesið hundruðir uppskrifta sem margar
eru ólíkar og hver með sínu lagi og svo hef
ég líka erft uppskrift frá móður minni. Við
þetta hef ég svo bætt beikoni sem ég geri
sjálfur þannig að útkoman er eitthvað sem
ég get kallað mína eigin uppskrift, en hug-
myndin er það auðvitað ekki.
Margar uppskriftir í bókinni eru algjör-
lega mínar eigin, en svo eru líka margar
uppskriftir innblásnar frá öðrum og svo
breytir maður einhverju lítillega. Þar með
er uppskriftin orðin mín. Það verður eins
með mínar uppskriftir – eldi einhver eftir
mér þá er í raun uppskriftin orðin hans –
það á engin einkaleyfi á uppskriftum.“
Þeir sem hafa fylgst grannt með bloggi
Ragnars munu eflaust kannast við hluta
uppskriftanna, segir hann og alveg ljóst að
oftar en ekki hefur verið fjör í eldhúsinu.
„Þarna kennir margra nýrra grasa, eitt-
hvað sem ég hef verið að viða að mér síð-
ustu misseri og svo bara eitthvað sem mér
datt í hug á meðan ég var að vinna bókina.
Þegar maður er á fullu í svona vinnu og
hefur nóg að gera, þá einhvern veginn
verður maður frjórri, hugmyndirnar bara
streyma til manns.“
Þú hefur væntanlega eldað alla réttina
sem eru í bókinni?
„Svo sannarlega – hver einasti réttur í
þessari bók var eldaður af mér í eldhúsinu
mínu heima í Lundi. Og það sem meira
er, þá var þessi bók elduð „before a live
studio audience“, því alltaf beið fjölskyld-
an mín, gestir og/eða ættingjar eftir því
að fá að borða. Og ég fékk eiginlega bara
eitt tækifæri til að elda hvern rétt, jólin eru
jú bara einu sinni á ári! Þannig að ég fékk
bara það tækifæri. Þannig að það var eins
gott að vera í góðu formi.“
Frönsk matargerðarlist í uppáhaldi
Er eitthvað þema í bókinni með sérstakri
áherslu á tiltekin hráefni eða þjóðir eða
landsvæði?
„Þema bókarinnar er alvöru matur
eldaður frá grunni fyrir fjölskyldu, vini
og ættingja. Að varpa ljósi á hversu mikil-
vægur matur er og hversu mikilvægt það
er að borða saman! Þeir sem glugga í
bókina munu taka eftir því að ég er undir
miklum áhrifum frá franskri matargerð.
Ég hóf vegferð mína í eldhúsinu heima í
Læknirinn ánægður
í sænsku eldhúsi