Læknablaðið - 01.02.2015, Page 34
102 LÆKNAblaðið 2015/101
Á skrifstofu Læknafélags Íslands var
unnið mikið starf samhliða samninga-
viðræðum og ekki síst mæddi verulega á
starfsfólki skrifstofunnar þegar verkfall
blasti við og meðan á því stóð. Fram-
kvæmdastjórinn, Sólveig Jóhannsdóttir,
segir að hlutverk félagsins hafi verið að
halda utanum þetta viðamikla verkefni
sem verkfall lækna á öllum ríkisspítölum
og heilsugæslustöðvum landsins hafi
verið.
„Læknafélagið hefur aldrei farið í verk-
fall áður og við vissum í rauninni ekki
hvernig til myndi takast. Við vissum þó
að læknar væru tilbúnir til að ganga svo
langt sem raunin var en það var alls ekki
sjálfsagt. Það kom til dæmis alls ekki til
greina við kjarasamningagerðina 2011 af
hálfu lækna að fara í verkfall. Í þessu felst
algjör stefnubreyting og sýnir að þolin-
mæði lækna var á þrotum.“
Í aðdraganda verkfallsins var stofnaður
aðgerðahópur innan Læknafélagsins sem
átti að gera tillögur og áætlun um hvernig
„Ekkert fordæmi fyrir
verkfalli íslenskra lækna“
– segir Sólveig Jóhannsdóttir
framkvæmdastjóri Læknafélags Íslands
„Þetta er fyrsta skrefið í því verkefni að
bæta kjör íslenskra lækna til lengri tíma,“
segir Þorbjörn Jónsson formaður LÍ um
kjarasamninginn sem nú liggur fyrir milli
Læknafélags Íslands og ríkisins.
„Kjör lækna voru orðin með þeim hætti
að ekki var raunhæft að reikna með að þau
yrðu lagfærð í einu skrefi. En þessi samn-
ingur er stórt og mikilvægt skref.“
Stóra spurningin sem liggur í loftinu
að loknum þessum samningi er hvort
hann verður til þess annars vegar að halda
læknum við störf á Íslandi og hins vegar
hvort hann muni laða íslenska lækna
erlendis til starfa hér heima?
„Mér finnst líklegt að hann verði til
þess að halda læknum í vinnu hér á landi
en hitt er erfiðara að spá í og tíminn
verður hreinlega að skera úr um það. Ég
hef þó trú á því að þessi bættu kjör muni
toga einhverja lækna heim fljótlega.“
Meturðu það þannig að ekki hafi verið
hægt að ná lengra í þessari lotu?
„Já, við mátum það svo að ekki yrði
komist mikið lengra að svo stöddu. Við
vorum komin að þeim punkti að þurfa að
meta hvort væri skynsamlegra að halda
áfram aðgerðum með þeim afleðingum
sem það hefði óhjákvæmilega haft í för
með sér eða ganga frá samningi.“
Árangurinn af kjaradeilu lækna við
ríkið má meta á ýmsa vegu. Þorbjörn segir
samstöðu læknastéttarinnar hafa komið
sér nokkuð á óvart.
„Þarna sýndu læknar ótvírætt að þeir
geta staðið saman óháð því hvar þeir
standa innan stéttarinnar því læknar
skiptast í ólíka hópa eftir aldri, sérgreinum
og tekjum. Hagsmunir þeirra fara alls ekki
alltaf saman. Læknar eru einnig upp til
hópa í eðli sínu einstaklingshyggjumenn
og því ekki á vísan að róa þegar kalla á
eftir samstöðu. Að sumu leyti getur þetta
þvælst fyrir í félagsmálunum þegar allir
halda fast við sína skoðun og eru sann-
færðir um réttmæti hennar. Það kom því
þægilega á óvart hversu algjör og órofin
samstaðan var og þetta er líklega eins-
dæmi í sögu Læknafélagsins. Samstaðan
skilaði okkur þessum árangri og ætti því
að vera gott vegarnesti til framtíðarinnar
því við munum þurfa að sækja frekari
kjarabætur á næstu árum til að rétta hlut
íslenskra lækna að fullu.“
Almenningur var einnig á bandi lækna
í þessari baráttu sem kom kannski líka á
óvart þar sem læknar hafa verið taldir há-
tekjuhópur í þjóðfélaginu og því takmörk-
uð samúð með kaupkröfum þeirra.
„Eflaust kom þar margt til en við gerð-
um okkur far um að vera hófstillt í allri
framgöngu og lýstum ekki yfir verkfalli
fyrr en í lok október eftir að hafa staðið í
árangurslausum samningaviðræðum í 9
mánuði. Ég held að fólk hafi skilið sann-
girni kröfu okkar að þessar samninga-
viðræður yrðu kláraðar. Almenningur
skynjaði einnig að við gættum þess að
verkfallsaðgerðir ógnuðu ekki öryggi sjúk-
linga og að við gengjum þar líka fram af
hófsemi og ábyrgð. Verkfallsloturnar voru
með hléum á milli og það gekk greiðlega
að sækja um og fá undanþágur. En það
stefndi vissulega í harðari aðgerðir núna
eftir áramótin.“
Í umræðunni um kjaramál lækna og
ástand íslenska heilbrigðiskerfisins í að-
draganda verkfallsins var gert talsvert
mikið úr þeim kostum sem íslenskum
læknum bjóðast erlendis. Gagnvart al-
menningi var dæminu nánast stillt þannig
„Stórt skref til bættra kjara íslenskra lækna“
– segir Þorbjörn Jónsson formaður Læknafélags Íslands
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
„Verkfall verður auðvitað að hafa áhrif, það verður að bíta, en það
má ekki valda skaða eða draga úr öryggi sjúklinga,“ segir Sólveig
Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri LÍ.