Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.01.2015, Qupperneq 29

Læknablaðið - 01.01.2015, Qupperneq 29
LÆKNAblaðið 2015/101 29 komist ekki í þræðingu innan 90 mínútna, er mælt með því að gefa segaleysandi meðferð tafarlaust. Síðan á jafnan að flytja sjúk- linginn á sjúkrahús þar sem tækjabúnaður til hjartaþræðingar er til staðar.56 Samkvæmt klínískum leiðbeiningum eiga þessir sjúklingar allir að fá blóðflöguhemjandi meðferð strax við grein- ingu.6,56,57 Er þá gefinn 300 mg hleðsluskammtur af aspiríni auk blóðflöguhemils eins og klópidogrels (600 mg) eða ticagrelors (180 mg). Ef líkur eru á að biðtími eftir hjartaþræðingu sé lengri en 30 mínútur er einnig hafin blóðþynning með heparíni í æð (60 ein- ingar/kg). Þótt segaleysandi meðferð sé hafin er mælt með því að gefa áfram blóðflöguhemjandi lyf og blóðþynningu með heparíni fram að þræðingu.56 Oftast eru aðeins víkkuð þau þrengsli sem talin eru orsaka bráðaástandið (culprit lesion) og aðrar þrengingar látnar bíða. Samkvæmt nýlegum rannsóknum getur þó komið til greina að víkka einnig önnur kransæðaþrengsli í sömu lotu.58 Auk meðferðar með tveimur blóðflöguhemjandi lyfjum er blóðþynn- ingarmeðferð hafin á þræðingarborði, oftast með heparíni eða bi- valirudini.56 Sé mikið af segum í æðinni kemur til álita að gefa kröftugri blóðflöguhemla í æð sem viðbótarmeðferð, til dæmis glycoprótein 2b/3a hemlana abciximab eða eptifibatide.56 Lang- flestir sjúklingar sem fá stoðnet eftir brátt hjartadrep eru settir á tvö blóðflöguhemjandi lyf í 9-12 mánuði.56 Kransæðavíkkun er stundum gerð hjá sjúklingum sem eru í losti eða hafa fengið hjartastopp vegna stórs hjartadreps. Í slíka sjúklinga er oft sett ósæðardæla (intra aortic balloon pump, IABP) fyrir eða eftir víkkunina. Það kemur ekki á óvart að 30 daga dánar- tíðni sjúklinga sem koma á sjúkrahús í losti er mun hærri (í kring- um 50%) en dánartíðni sjúklinga sem eru í stöðugu ástandi þegar þeir gangast undir bráða kransæðavíkkun (dánartíðni <1%).59 Hálfbráð kransæðavíkkun Við hjartadrep án ST-hækkunar (NSTEMI) eða hvikula hjartaöng (hækkanir á troponin T ekki til staðar) er kransæðamyndataka jafnan gerð innan 72 klukkustunda frá komu á sjúkrahús, en þó fyrr ef einkenni eru óstöðug.60 Slíkir sjúklingar hafa í flestum tilvikum þegar fengið bráðameðferð með aspiríni og fleiri blóð- flöguhemlum, auk fondaparinux eða létt-heparíns. Ef svo er ekki er heparín-meðferð hafin á þræðingarborði.60 Leiði kransæða- myndataka í ljós þrengsli sem hægt er að víkka, eru þrengslin sem talin eru valda blóðþurrðinni víkkuð. Síðan er metið hvort einnig eigi að víkka önnur þrengsli í sömu atrennu. Í flestum tilvikum er komið fyrir stoðneti, oftast lyfjahúðuðu, sem kallar á meðferð með tveimur blóðflöguhemjandi lyfjum næstu 9-12 mánuði. Meðferð með aspiríni er síðan haldið áfram ævilangt.60 Víkkun á græðlingum eftir kransæðahjáveitu Bláæðagræðlingar sem notaðir eru við hjáveituaðgerð hrörna og kalka með tímanum og geta þrengst. Sama á við um slagæða- græðlinga þótt endurþrengingar í þeim séu sjaldgæfari.61,62 Í dag eru endurhjáveituaðgerðir innan við 2% hjáveituaðgerða, en fyrir rúmum áratug var næstum því tíunda hver kransæðahjáveituað- gerð enduraðgerð. Meginástæðan er sú að hægt er að víkka flesta þrengda græðlinga, og á seinni árum hafa um 10% allra víkkana á Landspítala verið gerðar á bláæðagræðlingum.49,63 Fylgikvillar við kransæðavíkkun Í langflestum tilvikum fer kransæðavíkkun fram án alvarlegra fylgikvilla. Fylgikvillar eru þó vel þekktir (tafla II).64 Blæðing frá stungustað er langalgengust65,66 en þær stöðvast yfirleitt með þrýstingi yfir stungustað. Gerviæðagúll (pseudoaneurysma) getur myndast frá náraslagað og má oftast loka honum með því að sprauta í hann thrombíni,64 annars er gerð skurðaðgerð.65,66 Þegar stýrivír eða æðaleggur rýfur gat á slagæð í nára eða grindarholi getur blætt inn í aftanskinnurými (retroperioneum) eða út í kvið- arhol. Slíkar blæðingar eru sem betur fer sjaldgæfar (<0,5%) en geta valdið blæðingarlosti og dregið sjúklinga til dauða.65,66 Með vaxandi notkun úlnliðsslagæðar hefur alvarlegum blæðingum frá stungustað fækkað verulega, en yfir 80% kransæðaþræðinga hér á landi eru nú gerðar með þeirri aðferð.49 Sýkingar á stungustað, einkum í nára, eru þekktar en tiltölulega fátíðar.65,66 Stýrivír, æða- og belgleggir geta skemmt innlag kransæða og valdið spasma. Einnig getur orðið flysjun í æðinni sem veldur bráðri lokun, hjartadrepi og í versta falli dauða.64 Fyrir tíma stoðneta þurfti yfirleitt að bregðast við slíkum vanda með bráðri hjáveituaðgerð. Með tilkomu stoðneta er oftast hægt að gera við kransæðaflysjunina og hefur hætta af þessum fylgikvilla því minnkað verulega. Tafla II. Fylgikvillar eftir kransæðavíkkunaraðgerð. Fylgikvillar á stungustað Væg yfirborðsblæðing Alvarleg blæðing frá slagæð Blæðing í aftanskinnurými (retroperitoneal) Æðaspasmi Gervigúlsmyndun Sýking á stungustað Lost – dauði Fylgikvillar tengdir kransæð Spasmi Segamyndun, útlægt segarek Flysjun – lokun á æð Lokun á hliðargrein Tekst ekki að staðsetja stoðnet – los á stoðneti Æðarof – gollurshúsblæðing - hjartaþröng (cardiac tamponade) Hjartadrep Sýking í stoðneti (sjaldgæft) Hjartsláttaróregla Slegilsaukaslög ofansleglaaukaslög Gáttatif / flökt Sleglatif / flökt Hægataktur - vasovagal viðbrögð Hjartastopp Brjóstverkir (blóðþurrð, gollurshúserting – aðrar orsakir) Lyfja- eða skuggaefnisofnæmi Skert nýrnastarfsemi – nýrnabilun Heilaáfall Endurþrengsli á víkkunarstað (<3ja mánaða) Y f i R l i T
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.