Læknablaðið - 01.01.2015, Side 51
LÆKNAblaðið 2015/101 51
U M f J Ö l l U n O G G R E i n a R
„Við fengum mjög margar tillögur
og mun fleiri en við gátum tekið
inn í dagskrána. Það er auðvitað
mikið ánægjuefni og sýnir hversu
mikilvægir Læknadagarnir eru
í hugum lækna,“ segir Gunnar
Bjarni Ragnarsson framkvæmda-
stjóri Fræðslustofnunar lækna.
Árshátíð lR
í Hörpu 24. janúar
Veislustjóri: Brynja Valdís
Hljómsveit: Blues Brothers
Skemmtiatriði: Gissur Páll Gissurarson
slysstað. Vinnubúðir um fyrstu viðbrögð
hafa verið haldnar áður og þátttaka ávallt
mjög góð enda mikilvægt öllum læknum
að viðhalda þjálfun og þekkingu á þessu
sviði,“ segir Gunnar.
Hádegisfundir eru alla daga og þátt-
takendur verða að skrá sig fyrirfram. „Þeir
sem skrá sig fá hádegismat og því mikil-
vægt að skrá sig ef fólk ætlar að borða í
hádeginu. Morgunverðarfundir, sumir
hádegisfundir og nokkrir síðdegisfundir
í boði lyfjafyrirtækja verða einnig haldnir
en eru skýrt afmarkaðir í dagskránni.
Jafnframt er áfram glæsilegt sýningar- og
samkomusvæði og ég hvet þátttakendur
til að fá sér þar kaffibolla og ræða málin.
Stuðningur lyfjafyrirtækja er hluti af
ástæðunni fyrir því að tekist hefur að
halda þátttökugjöldum lágum en jafn-
framt er mikilvægt að hann fylgi skýrum
reglum. Þessum stuðningi eru settar
skýrar skorður, annars vegar af UEMS og
svo eftir reglum Frumtaka um samskipti
lækna og lyfjaframleiðenda sem eru sniðn-
ar eftir Evrópureglum. Þetta fyrirkomulag
er í góðri sátt við okkar stuðningsaðila og
er Vistor áfram aðalstyrktaraðili Lækna-
daga.“
Mikil þörf á samstöðu lækna
Gunnar hvetur lækna til að mæta á
Læknadaga. Þó að aðsókn hafi verið
vaxandi er ljóst að margir eiga erfitt með
að koma vegna anna í vinnu. „Ég biðla
því til lækna að reyna að haga sinni
vinnu þannig að sem flestir komist, til
dæmis með því að hlaupa í skarðið fyrir
hver annan.“ Kjarabarátta og barátta fyrir
framtíð heilbrigðiskerfisins er læknum
hugleikin þessa dagana og því mikilvægt
að læknar komi saman og ræði málin.
Á fimmtudeginum milli klukkan 16-18
heldur Læknafélag Íslands fund um kjara-
mál lækna. „Tímasetningin var valin svo
að þeir sem eru ekki skráðir á Læknadaga
eða komast ekki vegna vinnu geti mætt.
Ég vonast eftir góðri þátttöku en stefnt er
að því að honum verði líka streymt um
netið.”
Þó það sé mikilvægt að fræðast og
ræða mál líðandi stundar er ekki síður
nauðsynlegt að skemmta sér saman. Spek-
ingaglíman er á sínum stað á föstudeg-
inum. Þar mun Kristján Guðmundsson
og hans gengi leggja ýmsar misþungar
spurningar og þrautir fyrir keppendur.
„Þetta er ómissandi hluti af Læknadög-
unum og setur tóninn fyrir árshátíðina
á laugardagskvöldið,“ segir Gunnar. „Ég
hef það eftir áreiðanlegum heimildum að
Arna Guðmundsdóttir og félagar í stjórn
LR ætli að hafa mikið við í ár, búið er að
ráða viðburðastjóra sem hefur bókað öll
atriði eins og veislustjórn, skemmtiatriði
og hljómsveit. Það má búast við frábærri
árshátíð í ár og mikilvægt að allir sem
geta taki frá 24. janúar og mæti. Árshá-
tíðin og Læknadagar eru mikilvægir
þættir í að viðhalda góðum anda og sam-
stöðu meðal lækna, sem er einmitt mikil
þörf á núna,“ segir Gunnar og hlakkar
greinilega til.