Læknablaðið - 01.01.2015, Side 57
LÆKNAblaðið 2015/101 57
l Ö G f R æ ð i 1 2 . P i S T i l l
Læknar eru hvattir til að koma á framfæri við ritstjórn eða
pistlahöfund ábendingum um efni.
Dögg
Pálsdóttir
lögfræðingur
Læknafélags Íslands
DoggP@lis.is
Meira um verkfall lækna
Þegar þessar línur eru ritaðar (16. desem-
ber 2014) bendir fátt til annars en að næstu
lotur boðaðra verkfalla lækna hefjist hinn
5. janúar 2015. Þar sem hvorki hefur geng-
ið né rekið í samningaviðræðum lækna
og samninganefndar ríkisins, þrátt fyrir
ríflega 30 fundi, sáu læknar sig knúna
til að boða til nýrra verkfallslotna, sem
standa munu í þrjá mánuði, enda náist
ekki samningar á tímabilinu.
Fyrirkomulag þessara aðgerða hjá
Læknafélagi Íslands (LÍ) verður þannig
að verkfall er boðað fjóra daga í senn á
hverri einingu sem verkfall nær til hverju
sinni. Hver eining sem verkfall nær til
verður þrisvar í verkfalli á tímabilinu. Hjá
Skurðlæknafélagi Íslands (SKÍ) er boðað
verkfall í tvær vikur af fjórum í hverjum
mánuði, aðra vikuna á Sjúkrahúsinu á
Akureyri, hina vikuna á öllum öðrum
heilbrigðisstofnunum. Samstaða og ein-
hugur er meðal lækna um þessar aðgerðir
sem birtist best í því að mikil þátttaka
var í atkvæðagreiðslunni um þær og 98%
samþykktu þær hjá LÍ. Hjá SKÍ samþykktu
allir sem greiddu atkvæði. Enda telja
læknar að þeir séu ekki einvörðungu að
kalla eftir tímabærum launaleiðréttingum
og -hækkunum heldur séu þeir einnig
að berjast fyrir framtíð heilbrigðisþjón-
ustunnar. Læknar fara fyrr til sérnáms í
útlöndum þannig að vinnuafl almennra
lækna nýtist skemur hér á landi en áður.
Sérfræðilæknar snúa seinna til Íslands að
loknu sérfræðinámi og þeim fjölgar sífellt
sem snúa ekki til baka. Læknar eldast eins
og aðrir og meðalaldur starfandi lækna á
Íslandi hækkar hratt. Liðlega 40% starf-
andi lækna á landinu hefur náð 55 ára
aldri og 27% eru 60 ára eða eldri. Það er
því brýnt að það takist að ná kjarasamn-
ingum við lækna sem tryggja að íslenskir
sérfræðilæknar erlendis reynist tilbúnir
til að snúa aftur til heim og hefja störf í ís-
lenskri heilbrigðisþjónustu.
Eins og vikið var að í pistlinum í
nóvemberblaði Læknablaðsins er verkfalls-
réttur lækna takmarkaður lögum sam-
kvæmt. Árlega birtir fjármála- og efna-
hagsráðherra skrá um þau störf sem falla
undir takmarkanirnar á verkfallsréttinum.
Þessa dagana er í gangi vinna hjá LÍ og
SKÍ vegna nýrrar undanþáguskrár. Skrána
skal birta eigi síðar en 1. febrúar 2015 og
hún tekur gildi frá og með 15. febrúar
sama ár. Komi til boðaðra verkfalla á nýju
ári verður fyrst unnið eftir skránni sem
birtist í auglýsingunni nr. 101/2014. Frá 15.
febrúar næstkomandi verður síðan unnið
samkvæmt nýrri skrá.
Reynslan af verkfallslotunum á síðustu
mánuðum hefur sýnt að skráin sem nú
gildir hefur í meginatriðum reynst vel.
Undanþágunefndin sem starfa skal í
verkfalli hefur eðlilega fengið nokkrar
umsóknir um undanþágur. Hægt er þó
að fullyrða að umsóknir um undanþágur
hafa ekki verið fleiri en fyrirfram var
átt von á. Breytingar sem gerðar verða á
skránni við yfirferð hennar nú munu því
væntanlega eingöngu endurspegla reynslu
úr verkfalli og undanþágur sem veittar
hafa verið.
Framkvæmd verkfallanna hefur að
mestu gengið vel. Ágreiningur er uppi um
það hvaða störfum skuli sinna í verkfalli.
LÍ og SKÍ telja að í verkfalli skuli eingöngu
sinna „nauðsynlegustu heilbrigðisþjón-
ustu“. Í því felist að þeir læknar sem starfa
eigi einvörðungu að sinna bráðatilvikum
og verkefnum sem sinnt er um helgar og
á rauðum dögum. Áhersla hefur þó verið
lögð á það að sjúklingar njóti ætíð vafans
í þessu efni. Ríkisvaldið heldur því fram
að í verkfalli eigi læknar að ganga til allra
daglegra starfa. Í raun er kannski ekki ýkja
mikill ágreiningur hvað þetta varðar því
mönnun í verkfalli er svo takmörkuð að
vafasamt er að læknar komist til að sinna
öðru en bráðatilvikum.
Það leiðir af sjálfu sér að í verkfalli falla
niður allar launagreiðslur til lækna sem
starfa hjá ríkinu. Þeir læknar sem starfa
samkvæmt undanþáguskránni fá þó að
sjálfsögðu laun fyrir þau störf sín. Aðrir
ekki. Framkvæmd verkfallanna hefur
leitt í ljós nokkra hnökra varðandi launa-
greiðslurnar. Þess eru dæmi að læknar í
hlutastarfi hafa skilað öllu starfshlutfalli
sínu til heilbrigðisstofnunar í verkfalls-
mánuði en engu að síður fengið frádrátt
af launum sínum vegna verkfalls. LÍ og
SKÍ er kunnugt um þetta og hafa rætt við
ríkisvaldið. Þess er að vænta að tilvik sem
þessi verði leiðrétt, en það þarf að gera
einstaklingsbundið. Læknar eru hvattir til
að skoða vel launaseðla sína til að ganga
úr skugga um að launagreiðslur til þeirra
í verkfallsmánuðum hafi verið réttar, að
frádráttur vegna verkfalls sé réttur og
að greitt hafi verið fyrir vinnu sem innt
var af hendi í verkfalli, hafi slíku verið til
að dreifa. Skrifstofa LÍ er sem endranær
læknum til aðstoðar ef spurningar vakna
hvað þetta varðar.
Læknar í veikindaleyfi, orlofi og náms-
leyfi fá ekki laun í verkfalli. Læknar sem
voru í námsleyfi verkfallsdaga í síðustu
lotu fengu þó dagpeninga vegna náms-
leyfis. Hvort sú framkvæmd haldi áfram í
nýrri lotu liggur ekki fyrir þegar þetta er
ritað.
Vegna Læknadaga 2015 sem haldnir
verða 19.-23. janúar næstkomandi er mikil-
vægt að undirstrika að þeim læknum sem
eru í verkfalli þá viku er að sjálfsögðu
heimilt að sækja Læknadaga þó verkfall
standi yfir.