Frjáls verslun - 01.04.2005, Side 24
FORSÍÐUGREIN
24 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 5
veitingareksturinn.“ Sigurbjörn skýtur því inn að margbúið sé að
bjóða og biðja þá félaga að opna Greifann í Reykjavík. „En á meðan
enginn okkar býr eða vill búa í Reykjavík þá verður enginn veitinga-
staður undir merkjum Greifans opnaður í höfuðborginni. Það er
ekki hægt að fjarstýra veitingastað.“
Öflugt tölvukerfi mikilvægt
Þeir eru bjartsýnir á framtíðina í ferðaþjónustunni. „Það er margt
sem bendir til þess að ferðaþjónustan sé á uppleið, með aukinni
tíðni flugs til landsins og fjölgun ferðamanna,“ segir Páll Lárus.
„Það verða hins vegar alltaf árstíðabundnar sveiflur í ferða-
þjónustunni þótt ferðamannatíminn sé að lengjast í báða enda,
bæði vor og haust, sem er jákvætt. Það er þó enn mikill munur
á milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar hvað það
varðar – sérstaklega yfir vetrartímann. Sumarið er auðvitað
háannatíminn á báðum svæðum. Þó sækja ferðamenn höfuð-
borgarsvæðið miklu jafnar yfir árið. Út á landi er þessu öðru vísi
farið. Þar er barningurinn meiri yfir vetrarmánuðina og miðast
Velta Eignarhaldsfélags Greifans hefur þanist út og stefnir í um
800 milljónir á þessu ári.
Eins og öll góð ævintýri,
þá byrjar saga Greifans á
orðunum „einu sinni var...“
Árið var 1989 og stofnandinn
Hlynur Jónson, sem nú er
framkvæmda- og fjármálastjóri
Eignarhaldsfélagsins, var
fátækur 22 ára matreiðslunemi
á Hótel Kea.
SAGA GREIFANS
1. 27. janúar 1989: Greifinn var stofnaður.
2. 1. mars 1989: Rekstur hófst í formi verktöku
við pítsubakstur á Bleika fílnum.
3. 10. ágúst 1990: Veitingastaðurinn Greifinn
opnaður við Glerárgötu 20.
4. 1991: Greifinn stækkaður um 50 sæti.
5. 25. ágúst 1992: Félaginu var breytt í hf.
6. Ársbyrjun 1995: Öll jarðhæðin við Glerárgötu 20
keypt og tekin í notkun undir veitingastaðinn,
alls 600 fermetrar.
7. 1. janúar 1998: Veitingarekstur Hótels Kea
tekinn á leigu.
8. 1. janúar 2000: Greifinn gerður að eignarhalds-
félagi og dótturfélög stofnuð.
9. 1. janúar 2000: Félagið kaupir 99% hlutafjár
í Endurhæfingarstöðinni á Akureyri sem er
sjúkraþjálfunarstöð.
10. 1. maí 2002: Gistirekstur Fosshótela á Akureyri
keyptur (Hótel Kea og Hótel Harpa).
11. 1. júní 2002: Lykilhótel Norðurland (Hótel
Norðurland) og Mývatn (Hótel Gígur) tekin
á leigu.
12. 4. desember 2002: Hótel OAK Reykjavík tekið
á leigu og nafni þess breytt í Hótel Björk. Aðrir
annast veitingareksturinn á hótelinu fyrir þá.
13. 12. desember 2003: Fasteignir Hótels Kea og
Hótels Hörpu keyptar.
14. 28. apríl 2005: Hótel Borg tekin á leigu.
Aðrir annast veitingareksturinn fyrir þá.
1.000.000.000
800.000.000
600.000.000
400.000.000
200.000.000
0
1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006
EIGIÐ TÖLVUVER
Það hefur vakið athygli að fyrirtækið er með eigið tölvuver.
Það er afar öflugt og nýtískulegt, eins og gerist best hjá
þeim sem reka slík fyrirtæki.
A. Tölvuverið er í sérstökum hýsingarsal.
B. Það hefur þróuð bókunar- og upplýsingakerfi fyrir öll
fyrirtæki Greifans.
C. Það selur tölvuþjónustu til annarra fyrirtækja.
D. Öflugt skráningarkerfi heldur utan um allar tölvur og
önnur jaðartæki.
E. Notendur eru um 50.