Frjáls verslun - 01.04.2005, Page 31
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 5 31
D A G B Ó K I N
hefur ákveðið að breyta nafni
félagins í Exista ehf. Í tilkynn-
ingu félagsins sagði að tilgang-
urinn með nafnabreytingunni
væri að laga ásýnd félagsins að
breyttum áherslum, en gert er
ráð fyrir að framtíðarvöxtur þess
verði að mestu leyti erlendis.
17. maí
Spenna í kringum
í Skandia
Burðarás hefur hagnast verulega
á eignarhlut sínum í sænska
tryggingarisanum Skandia.
Félagið hefur aukið hlut sinn
í 4,4%. Þess má geta að
Kaupþing banki á 2,8% hlut í
Skandia. Mikil spenna hefur
verið í kringum Skandia, en
gengi bréfa í félaginu hækkaði
verulega um miðjan mánuðinn
vegna yfirtökutilrauna Suður-
afríska fjármálafyrirtækisins Old
Mutual. Flestir telja að stjórn
Skandia fallist ekki á yfirtökuna.
17. maí
Almenningur varð al-
menningur með litlu a-i
Það vakti mikla athygli
þegar Almenningur ehf. varð
að almenningi með litlu a-i.
Almenningur ehf. ákvað að
bjóða ekki í Símann heldur gerði
félagið mjög athyglisverðan
samning við Burðarás, KEA, Ólaf
Jóhann Ólafsson, Talsímafélagið
ehf. og TM sem skiluðu inn sam-
eiginlegu tilboði í 98,8% hlut
ríkisins í Símanum. Samningur
Almennings við áðurnefnda fjár-
festa felur það í sér „að öllum
Íslendingum“ verði gefinn kostur
á að kaupa samtals 30% hlut í
Símanum í opnu útboði, um leið
og fært þykir að skrá Símann
á markaði og eigi síðar en sex
mánuðum eftir að kaupin fara
fram.
„Þessi niðurstaða er okkur
hjá Almenningi ehf. mikið fag-
naðarefni. Fái þessi hópur
fjárfesta að kaupa Símann, þá
hefur aðkoma almennings að
Símanum verið tryggð, á sam-
bærilegum eða jafnvel betri
kjörum en fagfjárfestarnir kaupa
á,“ sagði Agnes Bragadóttir,
formaður stjórnar Almennings, í
tilkynningu til fjölmiðla.
19. maí
Björgólfur Thor
vill finnskan síma
Það er ekkert lát á áhuga
Björgólfs Thors á erlendum síma-
fyrirtækjum. Frá því var greint
þennan dag að fjárfestingarfélag
hans, Novator Finland, hefði gert
yfirtökutilboð í finnska síma-
fyrirtækið Saunalahti Group Oyj.
Fyrir á félag hans 22,6% hluta-
fjár í samstæðunni sem metin
er á 21,5 milljarða kr. Novator
Finland, sem er dótturfélag
Novator International Ltd., þarf
því að greiða um 16,6 milljarða
króna til að eignast félagið að
fullu.
20. maí
Einbýlis- og raðhús
hækka mest
Hún vakti mikla athygli fréttin í
Morgunblaðinu þennan dag um
að ekkert lát væri á hækkun á
fasteignamarkaði og að stórar
eignir hækkuðu mest. Sagt var
frá því að einbýlishús, parhús og
raðhús hefðu hækkað um 6,5%
í aprílmánuði einum og mun
meira en eignir í fjölbýlishúsum.
Í fréttinni sagði orðrétt: „Eignir
í sérbýli á höfuðborgarsvæðinu
hafa hækkað verulega meira en
eignir í fjölbýli síðustu mánuðina.
Þannig hefur sérbýlið hækkað
um 46% síðustu tólf mánuðina.
Eignir í fjölbýli hafa hins vegar
hækkað um 30% síðustu tólf
mánuði.“
19. maí
Forstjórar
hiklaust reknir
Það sannaðist þennan dag
að starf forstjóra hefur aldrei
verið eins „ótryggt starf“ og
núna. Sænska viðskiptablaðið
Dagens Industri greindi frá því
að aldrei áður hefði jafnmörgum
forstjórum stórfyrirtækja verið
sagt upp störfum en á síðasta
ári, samkvæmt nýrri rannsókn
ráðgjafarfyrirtækisins Booz Allen
Hamilton. Samkvæmt rann-
sókninni létu 14% forstjórar
2.500 stærstu fyrirtækja heims
af störfum á síðasta ári. Þar af
var þriðjungur rekinn, um 115
einstaklingar. Er hér um 44%
aukningu að ræða frá fyrra ári.
Meginástæðan fyrir brottrekstri
stjórnenda er sú að þeir ná ekki
arðsemismarkmiðum eigenda
fyrirtækjanna.
20. maí
Actavis: Vestrið heillar
Þetta var stór dagur í sögu
Actavis. Þennan dag skrifaði
Róbert Wessman, forstjóri
Actavis Group, undir kaup
Actavis Group á bandaríska
samheitalyfjafyrirtækinu Amide,
sem er óskráð fjölskyldufyrir-
tæki með aðsetur í New Jersey.
Kaupverðið nemur allt að 500
milljónum Bandaríkjadala eða 33
milljörðum króna.
Fram kemur í tilkynningu frá
Actavis, að samningurinn feli í
sér sameiningu tveggja öflugra
samheitalyfjafyrirtækja með
sterka markaðsstöðu í Evrópu
annars vegar og Bandaríkjunum
hins vegar. Sameinað félag muni
búa yfir einu mesta lyfjaúrvali
á sínu sviði, með yfir 500 sam-
heitalyf á markaði og lágmarks-
skörun milli lyfjaúrvals fyrir-
tækjanna.
Einbýlishús, parhús og raðhús hækkuðu um 6,5% í apríl.
Róbert Wessman,
forstjóri Actavis Group.