Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2005, Page 34

Frjáls verslun - 01.04.2005, Page 34
34 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 5 D A G B Ó K I N Hjá ESSO fæst úrval gasgrilla á sjó›heitu ver›i. fiú getur fengi› grilli› sent heim samdægurs, án endurgjalds, samansett og tilbúi› til notkunar.* Au›veldara getur fla› ekki veri›. Grilla›u me› ESSO í sumar! Grilla›u í kvöld! *Bo›i› er upp á heimsendingu á höfu›borgarsvæ›inu. F í t o n / S Í A G R IL L I‹ S E N T HEIM SAMANS ET T O G T IL B Ú I‹ Magnús Þorsteinsson er orðinn umsvifamikill í íslensku viðskipta- lífi eftir að félag hans, Avion Group, keypti Eimskipafélagið af Burðarás. Avion Group verður önnur stærsta fyrirtækjasam- steypa á Íslandi, með um 110 milljarða veltu og 4.400 starfs- menn. Magnús er þar stjórnarfor- maður og langstærsti eigandinn. Avion Group kemur næst á eftir risanum Bakkavör Group – Geest sem er með áætlaða veltu í kringum 120 milljarða. Heildarverðið á Eimskip í viðskiptunum var 23 milljarðar kr., en sagt hefur verið frá því að FL Group hafi viljað kaupa Eimskip á um 20 milljarða fyrr á árinu. Avion Group keypti 94,1% hlut Burðaráss í Eimskip, en færeyska félagið P/F Tjaldur á afganginn 5,9%. Nokkrum dögum áður en Magnús hélt blaðamanna- fundinn og tilkynnti um kaupin á Eimskip var grein frá því að hann hefði selt hlut sinn í Samson og Samson Holding, en helstu eignir þessara félaga eru bundnar í Landsbankanum og Burðarási. Magnús átti mun minna í Samson en feðgarnir Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor og var hlutur hans 14,5% og var greint frá því í Fréttablaðinu að hlutur Magnúsar í Samson hefði verið að veðmæti í kringum 12 milljarðar kr. Þar af hefði hlutur hans í Landsbankanum í gegnum Samson verið um 10 milljarða virði. Magnús hefur fimmfaldað virði hlutar síns á aðeins tveimur og hálfu ári. Söluverð hlutar 94,1% hlutar Burðaráss var 21,6 milljarðar kr. Þar af skuldbindur Avion Group sig til að greiða 12,7 milljarðar kr. með peningum og 8,9 mill- jarðar króna með hlutabréfum í Avion Group, en fjöldi hluta verður endanlega ákvarðaður við skráningu Avion Group í Kauphöll Íslands. Innleystur sölu- hagnaður Burðaráss í viðskipt- unum var 15,5 milljarðar króna – sem er auðvitað sögulegur árangur. Stefnt er að skráningu Avion Group í Kauphöll Íslands eigi síðar en 31. janúar 2006. Náist þetta markmið ekki hafa stærstu hluthafar Avion Group skuldbundið sig til að kaupa áðurnefnda hluti af Burðarási á sömu kjörum. Magnús er fæddur á Djúpavogi 6. desember 1961. Hann er því aðeins 44 ára. Hann ólst upp á Egilsstöðum, en faðir hans Þorsteinn Sveinsson var þar kaupfélagsstjóri til margra ára. Magnús gekk í Samvinnuskólann. Hann kynnt- ist Björgólfi Guðmundssyni og Björgólfi Thor þegar hann var framkvæmdastjóri Viking Brugg á Akureyri. Hann hélt með þeim í víking til Rússlands árið 1993 og byggði upp með þeim drykkjarvörufyrirtækið Bravo, en bjórverksmiðja þess var seld til Heineken í ársbyrjun 2002. Þar með varð Magnús Þorsteinsson þekktur maður í íslensku við- skiptalífi. Lengi vel var gantast með það að Samvinnuskólinn og Verslunarskólinn mættust og sneru bökum saman þegar rætt var um þá Magnús og Björgólf Thor. Magnús var verk- smiðjustjóri Bravo í Rússlandi og sagður mikill harðjaxl við rekstur verksmiðjunnar, slík tök hafði hann á Rússunum sem þar voru í vinnu. Frjáls verslun útnefndi þá félaga í Samson „menn ársins í íslensku viðskiptalífi árið 2002“. 31. maí Magnús kaupir Eimskip Magnús Þorsteinsson. Lengi vel var gantast með það að Samvinnuskólinn og Verslunarskólinn mættust og sneru bökum saman þegar rætt var um Magnús og Björgólf Thor.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.