Frjáls verslun - 01.04.2005, Page 92
92 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 5
SUMARIÐ ER TÍMINN
Brennandi golfáhugi meðal starfsmanna Hönnunar leiddi til þess að geta boðið sérhannaðar lausnir fyrir golfvelli. Nú færist í vöxt að gerðar séu GPS mælingar af brautum vall-
anna, sem hægt er að færa inn í kortagrunn, þar sem nákvæmni
lengda og hæða er sýnd með mikilli nákvæmni. Mælipunktarnir eru
færðir inn og með grafískum þrívíddarlausnum er hægur vandi að
búa til myndskeið af golfvöllum og einstökum brautum. Þrívídd-
armyndskeiðin má hafa á geisladiski eða á heimasíðu viðkomandi
vallar, eins og tíðkast erlendis. Útsendingar frá stórmótum í golfi
erlendis eru gjarnan með slíkum yfirlitsmyndum, eins og íslenskir
sjónvarpsáhorfendur þekkja vel.
Nákvæmar mælingar „Hér áður voru það einkum kylfingarnir
sjálfir sem hönnuðu vellina og svo er að miklu leyti enn. Á síðari
árum hafa komið til sögunnar menntaðir golfvallaarkitektar sem sjá
um hönnun nýrra golfvalla og tæknimenn taka í auknum mæli þátt í
undirbúningi framkvæmda. Við hjá Hönnun höfum til dæmis hannað
jarðvegsframkvæmdir og unnum útboðsgögn með verklýsingum og
-teikningum vegna framkvæmda við golfvöll GKG við Vífilsstaði,“
segir Finnur Jónsson verkfræðingur sem hefur verið tengdur golfi
allt frá síðari heimstyrjöld.
Þeir Sveinn Bjarnason þrívíddarhönnuður og Ásbjörn Jónsson
tæknifræðingur segja skynsamlegt að gera nákvæmar mælingar á
golfvöllum strax þegar framkvæmdir standa yfir. Þannig megi spara
mikinn óþarfa kostnað sem fallið geti til á seinni stigum. „Góðir
kylfingar vilja hafa helstu kennileiti á
og umhverfis hverja braut færð í vall-
arvísi með fjarlægð frá holu, þannig
að þeir geti slegið hvert einasta högg
með tilliti til nákvæmrar lengdar og
staðsetningar. Þegar kylfingar verða
þjálfaðri snýst málið ekki endilega um
að slá sem lengst í hvert sinn, heldur
að slá hvert högg hnitmiðað. Tilgang-
urinn er augljóslega að bæta skorið,“
segja þeir félagar.
Hönnunarmótið í golfi Allmargir nýir golfvellir hafa verið hannaðir
hér á landi síðustu árin eða hinir eldri endurbættir. Fer það saman
við mjög aukinn áhugi almennings á þessu sporti en áhugi á því tók
mjög að aukast fyrir um tíu til fimmtán árum og ekkert lát hefur
orðið á síðan. Alls eru komnir um 25 góðir golfvellir innan 100 km
fjarlægðar frá Reykjavík. Hönnun hefur komið að málum við gerð
nokkurra þessara valla.
Um það bil 25 starfsmenn Hönnunar í Reykjavík spila golf reglu-
lega. Þann 9. júní næstkomandi heldur Hönnun árlegt boðsmót sem
kennt er við fyrirtækið og hefur verið efnt til mörg undanfarin ár.
Hinir kappsömu Hönnunarmenn láta sér ekki einasta duga að slá
kúlurnar úti á grænum völlum, heldur eru þeir einnig með sérstakan
golfhermi og þar til gerðar brautir í kjallara höfuðstöðva Hönnunar
að Grensásvegi 1 í Reykjavík.
Hönnun er stærsta verkfræðistofa landsins, með vel á annað
hundrað manns í vinnu. Verkefni stofunnar eru mjög fjölþætt, og
hafa á undanförnum misserum mikið verið tengd stóriðju og virkjun-
arframkvæmdum. Þess má einnig geta að Hönnun var valið fyrirtæki
ársins 2005 í hópi stærri fyrirtækja meðal félagsmanna VR.
Golfvellir í GPS
Golfbrautin teiknuð
í þrívídd og hægt
að meta fjarlægðir
mjög nákvæmlega
með gerð vallarvísa.
Sérhannaðar lausnir.
Fjölþætt þjónusta.
Hönnun:
„Að slá hvert högg hnit-
miðað,“ segja golfar-
arnir Sveinn Bjarnason,
Ásbjörn Jónsson og
Finnur Jónsson hjá verk-
fræðistofunni Hönnun.