Ægir - 01.09.2004, Blaðsíða 14
14
N O R Ð AU S T U R H O R N I Ð
Eftir að bolfiskvinnslan á Rauf-
arhöfn var lögð af var mikil um-
ræða um þörf á björgunaraðgerð-
um frá hinu opinbera og stofnað
var til nefndar sem átti að taka á
vandanum. Talað um hrun at-
vinnulífsins á Raufarhöfn og þar
með byggðarlagsins. Ekkert hefur
heyrst frá þessari björgunarnefnd,
enda er það svo að litlu færri hafa
atvinnu við þá vinnslu sem GPG
er með núna á Raufarhöfn en voru
undir það síðasta í bolfiskvinnslu
Brims.
Öflugir í saltfiski
GPG er með gríðarlega öfluga
saltfiskvinnslu á Húsavík, þar
sem áherslan er á þurrsaltaðan
fisk fyrir Portúgal og Spán.
Einnig hefur GPG haslað sér völl
í saltfiskvinnslu í Norður-Noregi.
Sú vinnsluaðferð sem er beitt á
Raufarhöfn er þekkt hér á landi,
en engu að síður eru ekki mörg
fyrirtæki sem hafa svo umfangs-
mikla vinnslu á þessu sviði.
Það sem vekur óneitanlega
töluverða athygli þegar inn í
vinnslusali GPG á Raufarhöfn er
komið er hversu vel tækjum búin
þessi vinnsla er.
Aukin afköst
Magnús Einarsson, verkstjóri hjá
GPG á Raufarhöfn, segir að
vissulega hafi það verið töluvert
stórt stökk að fara úr hefðbund-
inni bolfiskfrystingu yfir í létt-
Léttsaltað á
Raufarhöfn
Þann 1. október 2003 hóf saltfiskverkunar- og fiskþurrkunarfyrirtækið
GPG á Húsavík vinnslu á léttsöltuum þorsflökum á Raufarhöfn. Vinnsl-
an er í húsnæði þar sem áður var bolfiskvinnsla á vegum Jökuls hf. og
síðar ÚA og Brims. Þeirri vinnslu, sem byggði fyrst og fremst á rússa-
fiski, var hætt síðsumars 2003, enda var afkoma af henni sögð óviðun-
andi.
Léttsöltuðu flökin eru í kerunum í saltpækli í tvo sólarhringa.