Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.2004, Blaðsíða 32

Ægir - 01.09.2004, Blaðsíða 32
N Ý R B Á T U R Í lúkar er góða aðstaða fyrir þrjá menn. Þar er ísskápur, ör- bylgjuofn, keramikhelluborð og sjónvarp. Í stýrishúsi eru þrír stólar. Þar eru annars öll tæki frá R.Sigmundssyni, en tæknimenn frá fyrirtækinu Mareind í Grund- arfirði settu þau í. Tækniupplýsingar Sem fyrr segir er Matthías SH-21 14,9 brúttótonn eða 11,8 brúttó- rúmlestir. Báturinn ber 12 660 lítra ker. Hámarksganghraði er 30 sjómílur, en ganghraði með allan búnað um borð er 28 sjó- mílur. Á 1800 snúningum er ganghraði 20 sjómílur og er þá eyðslan ca. 3,8 lítrar á sjómílu. Við 2000 snúninga er ganghrað- inn 24 mílur og eyðslan ca. 3,8 lítrar á sjómílu. Við 2200 snún- inga er ganghraðinn 26 sjómílur og eyðslan ca. 4 lítrar á sjómílu. Þyngd bátsins, þegar hann er með öllum búnaði og fullum olíu- tanki, er 14,2 tonn. Fellikjölur bátsins, sem dregur úr reki og gerir bátinn betri í andófi, er 40 cm djúpur og 5,5 metra langur, fer sjálfkrafa upp þegar báturinn fer yfir 12 mílur. Vélin er af gerðinni Volvo D12 650 hp. Gír og gírhlutfall er ZF 325IV 2:1. Skrúfan er 31“-27,5“. Hliðar- skrúfan er 250m/m glussadrifi 15 hp. Hliðarskrúfa er tengd sjálfstýr- ingu og sér um að halda bátnum á réttri stefnu þegar línan er dregin. Og fellikjölurinn sér til þess að báturinn snúist ekki und- an vindi. Mustad beitningarvélin er með 13.000 þúsund krókum. Um borð eru öll fullkomnustu fiski- leitartæki; radar, plotter og sjálf- stýring. Yfirbygging bátsins er ca. 800 kg og gerð með lofttæmiaðferð og PVC kjarna. Á bátnum eru tvær hurðir og þrjár lúgur. Vel sáttir við útkomuna Sigurjón Ragnarsson hjá Seiglu segir að menn sé mjög sáttir við bátinn, bæði framleiðendurnir og eigendur. Nú þegar sé búið að fara í nokkra róðra á Matthíasi og hann komi mjög vel út. Sigurjón segir að menn hafi sýnt þessari tegund báta mikinn áhuga og því býst hann fastlega við að fram- hald verði á. „Það er alveg ljóst að þessi aðferð við smíði báta er víð- ast að ryðja sér mjög til rúms og við tökum að sjálfsögðu þátt í því,“ segir Sigurjón og vísar þar til svokallaðrar vakúm-lofttæmi- aðferðar. Þessi aðferð við smíðina er mun umhverfisvænni en áður og nú er Seigla með í smíðum 30 tonna netaveiðiskip, Happasæl KE, og þar er þessari vakúm-að- ferð beitt við smíðina á skrokkn- um. „Ég hygg að þarna séum við að þróa framtíðar fiskibát,“ segir Sigurjón, en við það er miðað að Happasæll verði fullbúinn innan fárra vikna. Matthías SH-21 frá Seiglu ehf. Seigla ehf. hefur afhent fyrsta yfirbyggða bátinn af gerðinni Seigur 1160. Báturinn hlaut nafnið Matthías SH-21 og er er 14,9 brúttótonn að stærð. Eigandi er Nónvarða ehf., sem er í eigu Kristjáns Jónssonar á Hellissandi. Báturinn, sem verður gerður út frá Rifi, er á krókaaflamarki. Hann er 11,6 metra langur og 3,6 metra breiður og er fjórði báturinn af þessari tegund sem Seigla smíðar. Matthías er búinn beitningarvél frá Mustad, í honum er 650 hestafla Volvo-aðalvél og er mesti ganghraði 30 sjómílur á klukkustund. Lestin tekur tólf 660 lítra fiskikör. Matthías SH er 14,9 brúttó- tonn að stærð. Eigandi er Nónvarða ehf. á Hellissandi. Sigurjón Ragnarsson: Mjög sáttir við útkomuna. 32

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.