Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.2004, Síða 25

Ægir - 01.09.2004, Síða 25
25 N O R Ð AU S T U R H O R N I Ð næsta árs. Miðað við síðasta skráða gengi á bréfum Tanga í Kauphöll Íslands má ætla að verðmæti hlutar Vopnafjarðar- hrepps, Skipshólma og Spari- sjóðabankans, sem kaupskylda Vopnafjarðarhrepps hvílir á, nemi um 660 milljónum króna. Þá má ekki gleyma því að Vopnafjarðarhreppur á hlut í Bjarnarey ehf., sem er stærsti ein- staki hluthafinn í Tanga hf., með um 23% hlut. Aðrir eigendur Bjarnareyjar eru Tangi hf., Bílar- og vélar hf. á Vopnafirði, Mælifell ehf. á Vopnafirði og Kaupfélag Vopnfirðinga. Vilhjálmur segir að miklar og tíðar breytingar í eignarhaldi séu ekki æskilegar fyrir hvaða fyrir- tæki sem er. „Það er vissulega erf- iðara fyrir stjórnendur og starfs- menn að einbeita sér að verkefn- um dagsins þegar slíkt umrót í eignarhaldi á sér stað,“ segir Vil- hjálmur. HB-Grandi inn í Tanga hf.? Stærri sjávarútvegsfyrirtæki hafa fylgst náið með rekstri Tanga. Meðal annars hefur HB-Grandi hf. skoðað þar aðstæður, en ekki liggur enn fyrir hvort félagið mun koma inn í Tanga hf. Ef það hins vegar gerist er ljóst að for- ráðamenn HB-Granda væru að tryggja sér ákveðna stöðu varð- andi uppsjávarvinnslu, en mikið óhagræði er fyrir skip félagsins að sigla með afla sinn af kolmunna- og loðnumiðunum fyrir norðaust- an og austan land alla leið suður á Akranes. Vilhjálmur staðfestir að þessar þreifingar hafi átt sér stað, en meira sé ekki að segja um mál- ið að svo stöddu. Kolmunninn setur strik í reikninginn Vilhjálmur telur að áfram verði fylgt þeirri stefnu sem fyrirtækið hafi mótað í bolfiskvinnslunni, „en miðað við verkefnastöðu fé- lagsins í uppsjávarvinnslu er ljóst að það þarf að styrkja hana betur. Við þurfum auknar veiðiheimildir í uppsjávarfiski, en það er hins vegar ljóst að þær liggja ekki á lausu.“ Vilhjálmur segir að á síðustu misserum hafi rekstur Tanga hf. verið að styrkjast. „Reksturinn hefur verið að skila stöðugt meira af sér í framlegð fyrir afskriftir og fjármagnskostnað í samanburði við önnur félög í sjávarútvegi, þannig að við erum á réttri leið. Það er hins vegar ljóst að næsta uppgjör verður ekki eins og vonir stóðu til og það sama gildir vænt- anlega um önnur fyrirtæki sem hafa stundað kolmunnaveiðar í sumar, enda gengu þær ekki eins vel og menn gerðu sér vonir um.“ Ekki á leið út úr Kauphöllinni Tangi hf. er eitt fárra sjávarút- vegsfyrirtækja sem eftir er í Kauphöll Íslands. Vilhjálmur segir aldrei hafa komið til tals að taka fyrirtækið af markaði, þó svo að lítil sem engin viðskipti séu með hlutabréf þess.“Við vonumst til þess að við getum gert hluta- bréf félagsins að þeirri verslunar- vöru sem vonir stóðu til þegar það var á sínum tíma sett á mark- að. Með því að fara út af markaði værum við í raun að viðurkenna að okkur hafi ekki tekist að gera bréf félagsins að ákjósanlegum fjárfestingarkosti og jafnframt yrðu hluthafar læstir með sitt hlutafé inni í félaginu. Þar fyrir utan er það vissulega ákveðin hvatning og gerir kröfur til okkar sem stjórnum félaginu að vera með það á hlutabréfamarkaði,“ segir Vilhjálmur Vilhjálmsson. Vilhjálmur Vilhjálmsson: Við tókum um það ákvörðun að vinna fisk í flug, sem hefur verið vaxandi spurn eftir. Vitanlega er flutningskostnaðurinn umtalsverður, en það kostaði líka sitt að fá hingað rússafisk til vinnslu.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.