Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.2004, Síða 42

Ægir - 01.09.2004, Síða 42
42 F R É T T I R K R O S S G Á TA N Sæmundur Einarsson, smábáta- eigandi í Reykjanesbæ, ræddi um stöðu Landssambands smábáta- eigenda á fundi sambandsins um miðjan október. Á vef LS er vitn- að til orða Sæmundar, en hann sagði m.a.: „Fyrir um það bil tuttugu árum komu menn saman að stofnun smábátafélags til hags- bóta fyrir útgerðir báta sinna, grasrótarhreyfing einyrkja, blaut- ir á bak við bæði eyrun. Þessi fé- lagsskapur manna með landsam- band sem brjóstvörn hefur komið miklu til leiðar í gegnum tíðina svo eftir er tekið. Til dæmis veið- heimildir í lokuðum potti króka- báta. Almenningur í landinu hefur stutt dyggilega við þennan út- gerðarflokk því hann er í senn vistvænn og atvinnuskapandi og lífgar sérstaklega upp á mannlífið í dreifðum byggðum. Kapp er best með forsjá, stend- ur einhvers staðar! Því nú á aðeins einu kynslóðabili eru teikn á lofti um óæskilega stefnu í félaginu sem stendur nú á tímamótum með mikla möguleika ef rétt er á spilum haldið. Í fyrsta lagi með stækkun bátanna úr fimmtán tonnum í tuttugu og fimm til þrjátíu tonn. Í öðru lagi frjálsræði í vali á veiðaðferð í krókakerfinu. Að mínu viti glatast stuðning- ur almennings við smábátamenn og einyrkinn hverfur að mestu ef af þessu verður, peningahyggjan og hnefarétturinn kemur inn, góð lífsgildi og virðing á mannrétt- indum hverfa. Það er umhugsunar vert hvað löggjafinn hefur oft sett lög þvert á stefnu L.S. og þar með gert samþykktir aðalfunda félagsins ómerkar. Því spái ég, að eins og svo oft áður, verði sjónarmið þess stóra í félaginu sem ræður för, þegar kemur að lagasetningu á löggjafa- samkundunni, en ekki félagsleg niðurstaða aðalfunda eins og menn hafa haldið og vonast til.“ „Á tímamótum með mikla möguleika“ Frá höfninni á Bakkafirði.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.