Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.2009, Blaðsíða 14

Ægir - 01.04.2009, Blaðsíða 14
14 Árið 2008 nam verðmæti út- flutningsframleiðslu sjávaraf- urða 181 milljarði króna og jókst um 42,3% frá fyrra ári. Framleiðslan mæld á föstu verði dróst hins vegar saman um 1,5%. Fluttar voru út sjáv- arafurðir að verðmæti 171,3 milljarðar króna og jókst verð- mæti þeirra milli ára um 34,3% en í magni um 12,5%. Útflutt afurðaverðmæti allra aflategunda nema skel- og krabbadýra og flatfisks jókst frá fyrra ári. Líkt og undanfar- in ár skiluðu frystar afurðir um helmingi útflutningsverð- mætis. Af einstökum afurðum vóg verðmæti blautverkaðs saltfisks úr þorski mest, 14 milljarða króna. Af heildarút- flutningi sjávarafurða fór 79% til Evrópska efnahagssvæðis- ins, 6,3% til Asíu og 5,6% til Norður-Ameríku. Minna flutt út af þorsk- afurðum … Á milli áranna 2007 og 2008 jókst útflutningur sjávarafurða alls um rúm 77 þúsund tonn eða 12,5%. Árið 2008 voru flutt út 697 þúsund tonn sam- anborið við 620 þúsund tonn árið áður. Tæp 252 þúsund tonn voru flutt út af botnfiskafurð- um, þar af námu þorskafurðir 88 þúsund tonnum en voru árið áður 100 þúsund tonn. Útfluttar afurðir flatfiskteg- unda námu rúmum 18 þús- und tonnum árið 2008 sam- anborið við tæp 17 þúsund tonn árið 2007. Afurðir grá- lúðu vega þyngst í flatfisk- afurðum og nam hlutur henn- ar tæpum 9 þúsund tonnum sem er um þúsund tonnum meira en árið áður. Hlutur uppsjávartegunda var 47% af heildarútflutningi sjávarafurða og nam tæpum 329 þúsund tonnum, sem er um 16 þúsund tonna magn- aukning frá árinu 2007. Síld- arafurðir skipuðu stærstan sess í útflutningi uppsjávaraf- urða líkt og árið áður, en þær voru um 184 þúsund tonn, sem er rúmlega 30 þúsund tonna aukning frá árinu áður. Samdráttur varð í útflutningi loðnuafurða á milli áranna 2007 og 2008. Samtals voru flutt út 77 þúsund tonn af loðnuafurð- um árið 2008 samanborið við 100 þúsund tonn árið áður. Vert er að benda á að töluvert magn af fiskmjöli er ekki teg- undaskipt í útflutningsskýrsl- um og flokkast því utan afla- tegunda. Þetta mjöl er að stærstum hluta uppsjávarfisk- ur og var rúmlega 41 þúsund tonn flutt út af því. Að sama skapi ber að skoða tölur um útflutning á mjöli einstakra tegunda með fyrirvara þar sem blöndun afurða á sér stað í vinnsluferli þeirra. Útflutningur skel- og krabbadýra nam 20 þúsund Ú T F L U T N I N G U R Útflutningur sjávarafurða nálgast 200 milljarða á ári - sjávarafurðir innan við 40% af heildarverðmæti vöruútflutnings í fyrra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.