Ægir - 01.04.2009, Síða 16
16
tonnum, sem er rúmlega 2
þúsund tonna aukning frá ár-
inu 2007. Stærsti hluti þess
útflutnings voru tæplega 18
þúsund tonn af rækju.
… en verðmætið eykst!
Útflutningsverðmæti sjávaraf-
urða árið 2008 nam 171,3
milljörðum króna og er það
aukning um tæpa 44 millj-
arða, eða um 34,3%, frá fyrra
ári. Hlutdeild sjávarafurða af
heildarverðmæti vöruútflutn-
ings landsins fer enn minnk-
andi, var 36,7% samanborið
við 41,8% árið 2007.
Afurðir botnfisks eru tæp
65% af verðmæti sjávarafurða
eða tæpir 111 milljarðar og
eykst verðmæti botnfisks um
25,6% milli ára. Hlutur
þorskafurða er stærstur, en
útflutningsverðmæti þeirra
nam tæpum 60 milljörðum og
jókst um 20,4% milli ára. Út-
flutningsverðmæti ýsuafurða
jókst úr tæpum 17 milljörðum
2007 í tæpa 20 milljarða árið
2008 eða um 19,9%.
Mikil verðmætisaukning í
síldinni
Hlutur uppsjávartegunda af
útflutningsverðmæti sjávaraf-
urða var 17%, eða 22 milljarð-
ar króna. Af einstökum teg-
undum var útflutningsverð-
mæti síldarafurða hæst og
nam 18,8 milljörðum sem er
99% aukning frá fyrra ári.
Verðmæti loðnuafurða jókst
um 18,4% eða um tæpa 2
milljarða frá árinu 2007 og
nam 11,7 milljörðum króna
árið 2008. Útflutningsverð-
mæti kolmunnaafurða var 3,4
milljarðar króna, sem er
aukning frá fyrra ári um 0,6
milljarða króna. Verðmæti
blandaðs fiskmjöls var 4 millj-
arðar króna árið 2008.
Ísaðar afurðir sækja á
Af einstökum afurðaflokkum
skilaði frysting um helmingi
alls útflutningsverðmætis eða
84,9 milljörðum króna sem er
tæplega 22 milljarða aukning
frá árinu 2007. Útflutnings-
verðmæti ísaðra fiskafurða
hefur verið að aukast undan-
farin ár og verðmæti þeirra
jukust um rúma 9 milljarða,
námu 24 milljörðum króna.
Þetta er fjórða árið í röð sem
verðmæti ísaðra afurða eru
meiri en saltaðra, en verð-
mæti þeirra urðu um 25 millj-
arðar króna. Hlutfall ísaðra
afurða af útflutningsverðmæti
var um 20% en hlutur saltaðra
afurða nam tæpum 15%. Út-
flutningsverðmæti mjöls og
lýsis námu 13% af útflutnings-
verðmæti sjávarafurða og skil-
uðu 22,3 milljörðum króna í
útflutningstekjur en 14,6 millj-
örðum árið 2007.
Blautverkaður saltfiskur úr
þorski skilaði mestu útflutn-
ingsverðmæti, sem nam 14
milljörðum króna, þá fryst
rækja sem skilaði 8,8 milljörð-
um, landfryst þorskflök gáfu
7 milljarða króna og ný kæld
eða ísvarin þorskflök 6,8
milljarða.
Útflutningsverðmæti sjáv-
arafurða umreiknað í Banda-
ríkjadali var 1.950 milljónir á
árinu 2007 og dróst saman
um 48 milljónir eða 2,4% frá
fyrra ári. Krónan veiktist á ár-
inu og hækkaði meðalverð á
dollara um 38% á árinu 2008
miðað við fyrra ár og í heild
hækkaði meðalverð gjald-
miðla um 41% á árinu.
Samdráttur miðað við fast
verð
Útflutningsframleiðsla sjávar-
afurða jókst um 42,3% frá ár-
inu 2007. Sé útflutningsfram-
leiðslan hins vegar metin á
föstu verði ársins 2004 er um
samdrátt að ræða sem nemur
1,5%. Til útflutningsfram-
leiðslu sjávarafurða teljast
hvorki afurðir fiskeldis né
niðurlagðar sjávarafurðir.
Heildarverðmæti útflutn-
ingsframleiðslunnar á árinu
2008 nam 181 milljarði króna
en framleiðsla ársins 2007
nam 127 milljörðum.
Hlutur sjávarafurða af heildarverðmæti vöruútflutnings 1998–2008.
Verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða 2007 og 2008.
Ú T F L U T N I N G U R
SH
S
/ 1
06
24