Ægir

Volume

Ægir - 01.04.2009, Page 34

Ægir - 01.04.2009, Page 34
34 N Ý S K Ö P U N Í S J Á V A R Ú T V E G I Fulltrúar nýsköpunar-, rann- sókna og sprotafyrirtækja í strandríkjum Kanada voru fjölmennir á ráðstefnu um ný- sköpun í norrænum sjávarút- vegi sem haldin var í Reykjavík nú í maímánuði. Ráðstefnu- gestir voru vel á annað hundr- að frá tólf löndum. Í fram- söguerindum kom fram að óendanlega margir möguleik- ar væru á rannsóknum og ný- sköpun í sjávarútvegi. Eftir- spurn eftir fiski og sjávaraf- urðum hefði aldrei verið meiri, en á sama tíma færi allt of mikið af auðlindum hafsins til spillis. Íslendingar fara nú með formennsku í Norrænu ráð- herranefndinni en ráðstefnan var haldin í samstarfi íslenska sjávarútvegsráðuneytisins, Norrænu ráðherranefndarinn- ar, Norrænu nýsköpunarmið- stöðvarinnar, Norræna Atl- antssamstarfinu og Matís. Meðal fyrirlesara var Thor- vald Gran, prófessor við Há- skólann í Björgvin, sem benti í erindi sínu á að upplýsinga- tæknin hefði leitt til byltingar í rannsóknum og þekkingar- miðlun í sjávarútvegi. Með opnum hugbúnaði og ný- sköpun hefðu svæðisbundin og alþjóðleg þekkingarnet þanist út og fjarlægðin milli fræðaheims og atvinnulífs orðið minni. „En við megum ekki halda að öll nýsköpun sé góð - hún þarf líka ákveð- ið frelsi utan stofnanaramm- anna. Opin nýsköpun þýðir að miðla verður þekkingu inn á markaðinn - og á sama hátt verða fyrirtæki og fræðaheim- urinn að miðla sinni þekk- ingu. Ef of staðlaðar kröfur eru gerðar til nýsköpunar get- ur það hamlað framförum,“ sagði Gran. Hann benti líka á ýmis svæði væru að verða efnahagslegar grunneiningar í alþjóðlegu þekkingarhagkerfi, s.s. á sviði sjávarútvegs. Johannes Larsen, nýsköp- unarráðgjafi hjá Rannsóknar- ráði Kanada, hvatti norræna ráðstefnugesti til að nota tækifærið og mynda tengsl við samstarfsaðila í strandríkj- um Kanada til að koma á samstarfi í nýsköpun og rekstri sprotafyrirtækja. Hann upplýsti að 21 einkafyrirtæki sem stuðluðu með stjórnvöld- um að nýsköpun væru við Atlantshafsströnd Kanada. „Við höfum mikinn áhuga á samstarfi við norrænar stofn- anir og fyrirtæki um nýsköp- un,“ sagði Larsen. Tækifærin leynast víða Sigríður Þormóðsdóttir sem Frá ráðstefnunni um nýsköpun í norrænum sjávarútvegi. Ráðstefna um nýsköpun í norrænum sjávarútvegi: Er þess fullviss að nýsköpnartækifæri liggja víða í sjávarútveginum - segir Sigríður Þormóðsdóttir hjá Norrænu nýsköpunarmiðstöðinni í Osló

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.