Tímarit Máls og menningar - 01.12.1959, Blaðsíða 6
Vegamót lísíh í fullri liæð
^~^ft er nndan Jjví kvarlað að dranmar fái ekki að rælast, menn reisi sér í ímyndun sinni
hallir sem aldrei sjái dagsins ljós og verði skýjaborgir einar. Þessi umkvörtun um
draumana sem ekki rætist heldur stöðugt áfram þó að mannkynssagan sé alltaf að afsanna
hana, og sé litið á framfarir nútímans mælti frekar segja að [jær fari fram úr ímyndun
manna, fram úr Jjeim draumum sem jafnvel Jjeir spökustu gerðu sér um framtíðina. Eða
hvað segja menn um vísindasigrana, geimfarirnar o. s. frv.?
Vegamót, félagsheimili Máls og menningar á Eaugavegi 18, eru að vísn enginn spútník,
ekki nein stórframkvæmd í venjulegum skilningi, engin meiriháttar uppfinning. En fyrir
sex árum þótli Jjó djarft ævintýri fyrir Mál og menningu, fátækt bókmenntafélag með ekki
eyri í sjóði, að leggja út í að kaupa lóð á Laugavegi 18 fyrir 1250 þús. kr. og ætla sér að
reisa þar stórhýsi fyrir 5—6 miljónir króna að auki. Margir litu á þetta sem einn af þeim
draumum sem aldrei mundu rætast. En hvað nú? I dag getum við flutt félagsmönnum Jiau
tíðindi að byggingin er komin undir þak, Vegamót risin í fullri hæð, fimm liæðir atik
kjallara, eins og fyrirhuguð var eftir teikningu Sigvalda Thordarsonar arkitekts.
Stjórn Máls og menningar og Vegamóta fagnar þessum áfanga og nú höfum við góðar
vonir uin að byggingin standi fullgerð næsta haust og þá niunu menn sjá að hér hefur
góður draumur rætzt, risið fagurt hús sem setur svip á bæinn og gleður augu Jjeirra sem
iiin Laugaveginn ganga og verður til ánægju þeim sem unnið liafa að byggingunni. Og
liver veit nema eitthvert skáldið yrki um hana fagurt kvæði?
Um leið og þessum áfanga er náð flytjum við einlægar þakkir öllum sem lagt liafa vinnu
og fé í Vegamót. Að Jjví er snýr að Máli og menningu er eftir stærsta átakið að innrétta í
hinni nýju hyggingu bókabúð félagsins og gera liana sem bezt úr garði. Eigum við ekki að
láta okkur dreyma um að við lyftum því átaki einnig með sameiginlegum kröftum?
Kr. E. A.
196