Tímarit Máls og menningar - 01.12.1959, Blaðsíða 61
PÓLSKA ALÞÝÐULÝÐVELDIÐ 15 ÁRA
miklu hægari. Þar hefur verið við
mikla erfiðleika að etja: frumstæða
lifnaðarhætti sveitafólksins og æva-
forna, víðtækt ólæsi. Þó hefur einnig
nokkuð á unnizt á þeim vettvangi.
Framleiðsla landbúnaðarafurða hef-
ur aukizt um fjórðung, enda þótt
landbúnaðarhéruð séu víðáttuminni
en fyrir stríð vegna breyttra landa-
mæra og fólksstraumurinn hafi legið
úr sveitum til bæja á þessu tímabili.
Enn býr þó nær helmingur þjóðarinn-
ar í sveitum.
Hin mikla iðnvæðing Póllands hef-
ur þegar haft mjög víðtæk áhrif á ut-
anríkisverzlun landsins. Fyrir stríð
námu landbúnaðarafurðir 40% af
heildarútflutningnum, en mikill hluli
hans var annars hráefni og hálfunnar
vörur. Árið 1938 nam útflutningur
véla einum hundraðshluta af heildar-
útflutningnum, 1949 tveim, en 1958
27 af hundraði.
Á menningarsviðinu hefur einnig
verið um mikla sókn að ræða. Pól-
land átti frá fyrri tíð háþróaða menn-
ingu á miðevrópuvísu, en hún var að-
eins eign lítils hluta þjóðarinnar. Það
hefur verið meginviðfangsefni und-
anfarandi ára að útbreiða menning-
una meðal almennings, eyða ólæsi í
sveitum, veita alþýðu manna skóla-
göngu og auðvelda henni aðgang að
hvers konar menningarverðmætum.
I menningarmálum hefur verið ríkj-
andi meira frjálsræði í Póllandi síð-
ustu árin heldur en í öðrum sósíalist-
ískum löndum, og verður fróðlegt að
sjá, hvaða raun það gefur.
Efnahagsleg afkoma almennings
hefur eins og gefur að skilja verið
erfið þetta tímabil, t. d. hefur hús-
næðisvandamálið verið erfitt og er
enn þrátt fyrir mjög mikla bygging-
arstarfsemi. Mikil áherzla hefur verið
lögð á að hæta lífskjörin í sveitunum,
þar sem þau voru frá fornu fari mjög
bágborin. Hefur í því efni stórminnk-
að bilið milli sveita og bæja. I bæj-
unum hefur þróunin lengstaf verið
hæg, þar til þrjú síðustu árin, á því
tímabili hefur kaupgeta aukizt um
fjórðung eða þar um bil.
Sósíalistískur áætlunarbúskapur
hefur verið reyndur í Póllandi við
hin erfiðustu skilyrði, en hefur einn-
ig þar skilað miklum árangri. Mun
óhætt að fullyrða, að hann sé kom-
inn yfir verstu byrjunarerfiðleikana.
Nú orðið er gengið að því sem vísu,
að sósíalistísk ríki muni framkvæma
áætlanir sínar á tilsettum tíma, ef
ekki skemmri, og samkvæmt því ætti
pólska þjóðin að geta horft vongóð
til komandi ára. Áætlun sú, sem nú
er að hefjast, nær til ársins 1965.
Samkvæmt henni er ráðgert, að af-
kösl iðnaðarins aukist um 80% mið-
að við 1958, en afköst landbúnaðar-
ins um 30%. Gert er ráð fyrir, að
kaupgeta aukist um 30—35% á tíma-
bilinu.
Hið mikla átak, sem pólska þjóðin
hefur gert á undanförnum árum til að
251