Tímarit Máls og menningar - 01.08.1961, Side 14
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
Eitt er víst: Bandaríkjamenn voru
ekki hræddari við yfirgang Japana en
svo, að 1937 stórjuku þeir útflutning
til þeirra á olíu, brotaj árni og öðrum
varningi sem Japönum var lífsnauð-
synlegur til hernaðarreksturs síns.
Arið 1938 nam hernaðarhráefnið
67% af öllum útflutningi Bandaríkj-
anna til Japans, og jókst upp í 70% á
næsta ári.
En sem áður segir gjörbreyttist við-
horfið eftir Pearl Harbour-árásina.
Bandaríkin höfðu þá ekki lengur
hagnað af tvístruðu Kínaveldi. Leppn-
um Sjang Kæ-sjek var ekki lengur
ætlað það hlutverk að plægja akur
bandaríska auðvaldsins í Kína, held-
ur að sameina Jrjóðina til baráttu
gegn japönsku svikurunum. Og nú
opnuðust augu Bandaríkjamanna fyr-
ir eðli þeirrar leppstjórnar sem þeir
höfðu sjálfir komið á fót í Kína. Nú
urðu þeir að horfast í augu við stað-
reyndir verka sinna, og sjá: leppurinn
Sjang var ekki aðeins ómerkilegur
leppur sem einskis fylgis naut meðal
kínversku þjóðarinnar, heldur einnig
fasískur svikari sem reiðubúinn var
að svíkja húsbændur sína í tryggðum
hvenær sem færi gafst, — ef hann
hefði hag af ])ví sjálfur. Og banda-
risku erindrekarnir urðu svo skyggn-
ir að þeir sáu jafnvel og viðurkenndu
að kínversku kommúnistarnir hörð-
ust í umboði allrar þjóðarinnar, að
þeir voru „aflið sem óhj ákvæmilega
hlýtur að sigra í Kína“, eins og segir
í einni af skýrslum þeirra til Banda-
ríkjastjórnar.
Það er ekki úr vegi að birta nokkr-
ar glefsur úr þessum skýrslum. Þær
voru gerðar og sendar Bandaríkja-
stjórn á árunum 1944—45, og gefa
glögga hugmynd um gang mála í Kína
á þessu tímabili. Höfundar þeirra
verða varla sakaðir um hlutdrægni
kommúnistum í hag.
Glefsur úr skýrslum bandarísku utan-
ríkisþjónustunnar, teknar úr bókinni
„U. S. relations with China", útgefinni
af Bandaríkiastjórn í ágúst 1949, bls.
556—574:
9. okt. 1944:
„Frásagnir tveggja bandarískra
liðsforingja, fjölmargra blaðamanna
og tuttugu erlendra ferðamanna, af
ástandinu í þeim héröðum Norður-
Kína sem lúta stjórn kommúnista eru
undarlega samhljóða. Þessi ein-
drægni, sem byggð er á nákvæmum
athugunum, er mjög þýðingarmikil.
Hún knýr okkur til að viðurkenna
ákveðnar staðreyndir og draga af
þeim mikilvægar ályktanir.
„Japönum hejur verið veitt öflug
mótspynia“ (Allar leturbreytingar í
skýrslunum eru Bandarísku utanríkis-
þjónustunnar) „... Þessi andspyrna
verður æ öflugri. Japanir geta um
stundarsakir brotið hana á bak aftur
á takmörkuðum svæðum með því að
beita ofurefli liðs. En þeim tekst
aldrei að hefja allsherjarsókn inn á
172