Tímarit Máls og menningar - 01.08.1961, Page 47
DOMSMALAHAÐHERRANN SEFUR
jónmundur: — Greinilega. Hann sker hrúta eftir nótum.
Þögn. Þeir hlusta báðir. Kýrín baular.
skeleggur, við Jónmund: — Við tökum boðinu.
jónmundur: — Já, við tökum boðinu.
Loki hejur gengið jram hœgra mcgin. Hann sýpur á glasinu.
SKELEGGUR, við Loka: — Við tökum boðinu.
LOKI, kemur til móts við hann: — Hvar er þá klárinn ?
SKELEGGUR, réttir honum höndina: — Hér er hönd mín.
Þeir takast í hendur.
loki: — Mundi hann geta verið skjóttur?
SKELEGGUR, snýr til Jónmundar: — Við höfum enga tryggingu.
Þeir ganga inn sviðið vinstra megin.
jónmundur: — Hann verður fyrst að yrkja.
Loki hejur lagt glasið á ritvélarborðið.
LOKI, slœr gítarinn: — Lucky strike.
Hann gengur til vinstri.
skeleggur, við Jónmund: — Mér detta í hug fornskáldin íslenzku.
Þeir ganga til hœgrí.
Niður úr lojtinu hejur sigið spjald sem á er letrað: LUCKY STRIKE.
loki, syngur: Við skulum ætíð geta góðs til Guðs í hæðum.
Hann kann mæðu allri eyða,
auman fram til sigurs leiða.
jónmundur, við Skelegg: — Mér hefur skjátlazt.
skeleggur: — Hann er þá ekki vitlaus?
jÓnmundur: — Upp með bambusstöngina!
LOKI, syngur: Mótgangsélið geisar grimmt og glepur duginn.
En lúttu höfði! láttu nægja
að Lausnarinn mun því skjótt frá bægja.
jÓnmundur, við Skelegg: — Hringdu eins og skot!
skeleggur: — Ut? Hann leggur frá sér glasið.
JÓNMUNDUR: — Nei, upp! Upp! Fluguna á öngulinn, maður.
Skeleggur hríngir.
loki, syngur: I firði Skutuls skrollir ljós á skildi Trega.
Er í bígerð unaðsdagur?
Uggurinn er þinn Vantrúnaður.
skeleggur, leggur tólið á: — So!
jónmundur: — Kemur hún?
Spjaldið er dregið upp.
205